Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.08.2013, Blaðsíða 38
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Almennar sýningar á 2 Guns, nýj- ustu kvikmynd Baltasars Kormáks, hófust í gær í Bandaríkjunum en myndin var frumsýnd formlega í New York mánudaginn sl. Kynning á myndinni hefur verið fyrirferðar- mikil í bandarísk- um fjölmiðlum undanfarnar tvær vikur eða svo og fjöldi við- tala við leikstjór- ann og stjörnur myndarinnar, Denzel Wash- ington og Mark Wahlberg, hefur verið birtur á hinum ýmsu vef- miðlum. Óttaðist blaðamaður því að Baltasar væri búinn að fá nóg af því tala um myndina þegar hann sló á þráðinn til hans í fyrradag. Mikil samkeppni -Þú ert væntanlega þurrausinn hvað viðtöl snertir? „Það má segja það,“ segir Baltas- ar og hlær þreytulega. -Það er býsna mögnuð kynningar- maskína á bak við þessa mynd? „Já, þetta er mikið húllumhæ í kringum þetta, mikil pressa. Þeir hafa mikla trú á henni og setja mikið í kynninguna.“ -Hvernig er kynningin á þessari mynd samanborið við kynninguna á Contraband á sínum tíma? „Þetta er ívið meira, myndi ég halda. Á sumrin er svo rosaleg sam- keppni og það má segja að menn þurfi að leggja meira í þetta ef þeir ætla út í þann slag. Annars geturðu bara drukknað,“ svarar Baltasar. -Og það er væntanlega meira und- ir með þessa mynd? „Það er reyndar ekki eins mikið undir og lítur út fyrir,“ segir Baltas- ar. Myndin hafi verið seld til dreif- ingar á alþjóðamarkað á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín og því sé þegar búið að afla mikils fjár upp í framleiðslukostnaðinn. Myndin hafi kostað 50-60 milljónir dollara í framleiðslu, þegar skattaafsláttur hafi verið dreginn frá og það sé í raun ekki svo há upphæð þegar um sumarmynd er að ræða. Til sam- anburðar hafi The Lone Ranger kostað um 140 milljónir dollara. -Nú hefjast almennar sýningar á myndinni á morgun [í gær] þannig að þetta er væntanlega mikil stress- helgi hjá þér, frumsýningarhelgin? „Jú, þetta er eins slæmt og það gerist, það verður ekki mikið verra,“ segir Baltasar, léttur í bragði. -Frumsýningarhelgin gefur vís- bendingu um það hvernig kvik- myndin mun ganga í miðasölu yfir- leitt, ekki satt? „Jú, það er byrjunarreiturinn. Svo er spurning hvað hún getur gengið en það liggur meira í því hvernig hún spyrst út,“ segir Balt- asar. Það sé nauðsynlegt að ná góðu starti. Öllu vanur þegar kemur að dómum -Nú eru dómar um myndina farn- ir að tínast inn og þeir eru upp og of- an, sumir hrifnir og aðrir ekki... „Það er eins og það er og svona myndir reiða sig ekki mjög mikið á það, þessi mynd er fyrst og fremst „entertainment“. Það var því við ýmsu að búast en það er líka mikið af mjög jákvæðri gagnrýni. Það er áhugavert hvað menn sjá hana með ólíkum hætti,“ segir Baltasar og nefnir að sjónvarpsmaðurinn heims- kunni Larry King hafi ausið mynd- ina lofi, sagt hana þá bestu sem hann hefði séð í mörg ár. Af jákvæð- um dómum má svo nefna dóma Var- iety og Hollywood Reporter, kvik- myndarita sem hafa allnokkra vigt í geiranum. „Maður er svo sem öllu vanur í þessu, auðvitað er alltaf skemmtilegra að allt sé jákvætt en það er sjaldan þannig. Það var þann- ig með Djúpið, allt jákvætt eig- inlega,“ segir Baltasar. -Heldurðu að dómarnir skipti miklu upp á aðsókn? „Nei, ég held nú ekki, ég held að svona myndir byggi ekki mikið á því. Sjálfsagt eitthvað, jákvæðir dómar hjálpa frekar en hitt. Maður sér oft myndir sem fá fína dóma en gera ekki neitt og öfugt,“ segir Balt- asar. Þegar myndin hafi verið próf- uð á áhorfendum hafi hún fengið háa einkunn, hærri en Contraband og því séu menn nokkuð bjartsýnir hvað aðsókn varðar. Frábær leikari -Nú hlýtur þú að læra eitthvað nýtt með hverri mynd sem þú leik- stýrir. Hvað heldurðu að þú hafir lært af þessari? „Maður vex við hverja raun og það er kannski erfitt að fara að greina það á þessum tímapunkti. Maður þarf að sjá hvað þetta gerir og hvar þetta lendir, hvernig hún gengur um helgina. Ef hún gengur illa þarf að skoða þetta í öðru sam- hengi. Það er svolítið snemmt að fara að greina það núna.“ -Þú verður alla vega sífellt sjóaðri í því að stýra kvikmyndastjörnum. „Já, já, það er engin spurning. Eftir að hafa átt við Denzel er ekk- ert sem kemur manni út af laginu,“ segir Baltasar kíminn en hann hefur sagt frá því í viðtölum að Denzel Washington hafi ekki verið neitt lamb að leika sér við. „Hann er frá- bær leikari, einn albesti leikari í heimi en það er ekkert auðvelt að eiga við hann. Hann gerir miklar kröfur enda er hann búinn að vinna sér inn fyrir því.“ -Var þetta ekki gott frumsýning- arpartí í New York? „Þetta var æðislegt. Rosalega flott partí á Standard-hótelinu, of- boðslega fallegt útsýni yfir alla borgina og mikið húllumhæ. Það var frábært, mjög skemmtilegt,“ segir Baltasar að lokum. Vex við hverja raun Hasar Denzel Washington og Mark Wahlberg í kröppum dansi í kvikmynd Baltasars, 2 Guns.  „Þetta er eins slæmt og það gerist,“ segir Baltasar Kor- mákur um stressið sem fylgir frumsýningarhelgi 2 Guns Baltasar Kormákur 2 Guns segir af tveimur mönn- um, fíkniefnalögreglumanni og starfsmanni leyniþjónustu bandaríska sjóhersins, sem ganga til liðs við glæpasamtök í þeim tilgangi að standa hvor annan að glæp og handtaka. Þeir ræna mexíkóskan eitur- lyfjabarón og komast í kjölfarið að því að þeir hafa verið leiddir í gildru og að hvorugur er sá sem hann þykist vera. Á vefnum Metacritic má finna samantekt dóma hinna ýmsu fjölmiðla um myndina og í gær höfðu 33 dómar bandarískra fjölmiðla verið teknir saman. Meðaltalseinkunn myndarinnar var þá 55 af 100 mögulegum,16 dómar taldir jákvæðir, 14 hvorki jákvæðir né neikvæðir og þrír neikvæðir. Meðal hinna jákvæðu eru Entertainment Weekly (88/ 100), New York Magazine (80/ 100), The New York Times (70/ 100), Hollywood Reporter (70/ 100) og Variety (70/100). Dómar flestir jákvæðir SUMARMYNDIN 2 GUNS 38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands: Þjóð verður til - Menning og samfélag í 1200 ár Sigfús Eymundsson myndasmiður - Frumkvöðull íslenskrar ljósmyndunar í Myndasal Silfur Íslands í Bogasal, Silfursmiður í hjáverkum í Horni Skemmtilegir ratleikir, safnbúð og kaffihús. Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu: Handritin: Nokkur af merkustu skinnhandritum Íslendinga. Þúsund ár: Fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands Safnbúð og kaffihús. Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is www.thjodmenning.is www.facebook.com/thjodminjasafn og www.facebook.com/thjodmenning Opið alla daga í Þjóðminjasafni 10-17, Þjóðmenningarhúsi 11-17 Óvænt kynni - Innreið nútímans í íslenska hönnun (7.6.-13.10.2013) Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is GERSEMAR 18.5.-25.8. 2013 MEMENTO MORI - SARA RIEL 5.7.-25.8.2013 SAFNBÚÐ - Listaverkabækur, gjafakort og listrænar gjafavörur. KAFFISTOFA - Heit súpa í hádeginu, úrval kaffidrykkja og heimabakað meðlæti. Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR UMHVERFIS LANDIÐ Á FÁEINUM ÁRATUGUM og FORNMENN Opið þriðjudag-fimmtudag kl. 11-14, sunnudag 13-16 Bergstaðastræti 74, sími 515 9625. www.listasafn.is LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR ÚR DJÚPUNUM - Samsýning Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og Listasafns Íslands SUMARTÓNLEIKAR - þriðjudaginn 6. ágúst kl. 20:30 - Áshildur Haraldsdóttir flauta og Kristínn H. Árnason gítar. Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Tilvist Eiríkur Smith olíumálverk og vatnslitamyndir frá 1968 - 1982 Opið frá 12 – 17 á frídegi verslunarmanna mánudaginn 5. ágúst Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þriðjudaga. www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Sýning norska listamannsins Øy- vinds Aspens verður opnuð í kvöld klukkan 19 í Galleríi Dvergi. Sýn- ingin verður einnig opin á morgun, sunnudaginn 4. ágúst, klukkan 15 til 18. Sýningin verður einungis op- in á þessum tveimur dögum og nefnist hún Hard Work Lard Work Art Work. Sýningin tekur sem út- gangspunkt hið mannlega ástand og samfélag manna út frá líkam- legri hegðun og upplifun. Lista- maðurinn Øyvind Aspen kannar sérstaklega það sem við mennirnir skiljum eftir okkur er við stöndum andspænis flóknum og marglaga veruleika okkar. Aspen býr og starfar í Ósló. Hann vinnur að- allega með myndbandsmiðilinn, texta, skúlptúr og gjörninga. Hann er einnig stofnandi og rekstraraðili sýningarýmisins Tidens Krav í Ósló. Sýningarými Gallerís Dvergs er í kjallara bakhúss að Grund- arstíg 21 í Reykjavík. Flókinn og margbreytilegur veruleiki í túlkun Øyvinds Aspens í Galleríi Dvergi Listasýning Norski listamaðurinn Øyvind Aspen sýnir á Galleríi Dvergi. Listamaðurinn Dagbjört Brynja Harðardóttir opnar sýninguna Píkublóm í sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri í dag klukk- an 14-19. Brynja sýnir málverk sem eru unnin með olíu og akrýl ásamt innsetningu á píkublómum úr hekl- uðum pottaleppum og dúllum. „Sýningin mín er lofgjörð til kven- leikans, lífs og vaxtar en er um leið ádeila á öfgafull fegurðarviðmið sem m.a. birtast í aukinni tíðni á lýtalækningum á píkum,“ segir Brynja en hún vill með sýningunni m.a. skapa umræðu um öfgafull fegurðarviðmið sem geta bjagað sjálfsmynd og líðan kvenna. Brynja er búsett á Akureyri og starfar sem framkvæmda- stjóri Sinfón- íuhljómsveitar Norðurlands. Hún lauk for- námi við Mynd- listarskólann á Akureyri árið 2001 og mynd- listarnámi við Örebro Konst- skola í Svíþjóð árið 2007. Brynja er einnig uppeldis- og menntunar- fræðingur, kennari og lýðheilsu- fræðingur. Hún hefur unnið að píkublómum í ýmsum myndum frá árinu 2006. Innsetning á píkublómum á Akureyri Píkublóm eftir Dagbjörtu Brynju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.