Morgunblaðið - 03.08.2013, Qupperneq 38
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Almennar sýningar á 2 Guns, nýj-
ustu kvikmynd Baltasars Kormáks,
hófust í gær í Bandaríkjunum en
myndin var frumsýnd formlega í
New York mánudaginn sl. Kynning
á myndinni hefur verið fyrirferðar-
mikil í bandarísk-
um fjölmiðlum
undanfarnar
tvær vikur eða
svo og fjöldi við-
tala við leikstjór-
ann og stjörnur
myndarinnar,
Denzel Wash-
ington og Mark
Wahlberg, hefur
verið birtur á
hinum ýmsu vef-
miðlum. Óttaðist blaðamaður því að
Baltasar væri búinn að fá nóg af því
tala um myndina þegar hann sló á
þráðinn til hans í fyrradag.
Mikil samkeppni
-Þú ert væntanlega þurrausinn
hvað viðtöl snertir?
„Það má segja það,“ segir Baltas-
ar og hlær þreytulega.
-Það er býsna mögnuð kynningar-
maskína á bak við þessa mynd?
„Já, þetta er mikið húllumhæ í
kringum þetta, mikil pressa. Þeir
hafa mikla trú á henni og setja mikið
í kynninguna.“
-Hvernig er kynningin á þessari
mynd samanborið við kynninguna á
Contraband á sínum tíma?
„Þetta er ívið meira, myndi ég
halda. Á sumrin er svo rosaleg sam-
keppni og það má segja að menn
þurfi að leggja meira í þetta ef þeir
ætla út í þann slag. Annars geturðu
bara drukknað,“ svarar Baltasar.
-Og það er væntanlega meira und-
ir með þessa mynd?
„Það er reyndar ekki eins mikið
undir og lítur út fyrir,“ segir Baltas-
ar. Myndin hafi verið seld til dreif-
ingar á alþjóðamarkað á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Berlín og því
sé þegar búið að afla mikils fjár upp
í framleiðslukostnaðinn. Myndin
hafi kostað 50-60 milljónir dollara í
framleiðslu, þegar skattaafsláttur
hafi verið dreginn frá og það sé í
raun ekki svo há upphæð þegar um
sumarmynd er að ræða. Til sam-
anburðar hafi The Lone Ranger
kostað um 140 milljónir dollara.
-Nú hefjast almennar sýningar á
myndinni á morgun [í gær] þannig
að þetta er væntanlega mikil stress-
helgi hjá þér, frumsýningarhelgin?
„Jú, þetta er eins slæmt og það
gerist, það verður ekki mikið verra,“
segir Baltasar, léttur í bragði.
-Frumsýningarhelgin gefur vís-
bendingu um það hvernig kvik-
myndin mun ganga í miðasölu yfir-
leitt, ekki satt?
„Jú, það er byrjunarreiturinn.
Svo er spurning hvað hún getur
gengið en það liggur meira í því
hvernig hún spyrst út,“ segir Balt-
asar. Það sé nauðsynlegt að ná góðu
starti.
Öllu vanur þegar
kemur að dómum
-Nú eru dómar um myndina farn-
ir að tínast inn og þeir eru upp og of-
an, sumir hrifnir og aðrir ekki...
„Það er eins og það er og svona
myndir reiða sig ekki mjög mikið á
það, þessi mynd er fyrst og fremst
„entertainment“. Það var því við
ýmsu að búast en það er líka mikið
af mjög jákvæðri gagnrýni. Það er
áhugavert hvað menn sjá hana með
ólíkum hætti,“ segir Baltasar og
nefnir að sjónvarpsmaðurinn heims-
kunni Larry King hafi ausið mynd-
ina lofi, sagt hana þá bestu sem
hann hefði séð í mörg ár. Af jákvæð-
um dómum má svo nefna dóma Var-
iety og Hollywood Reporter, kvik-
myndarita sem hafa allnokkra vigt í
geiranum. „Maður er svo sem öllu
vanur í þessu, auðvitað er alltaf
skemmtilegra að allt sé jákvætt en
það er sjaldan þannig. Það var þann-
ig með Djúpið, allt jákvætt eig-
inlega,“ segir Baltasar.
-Heldurðu að dómarnir skipti
miklu upp á aðsókn?
„Nei, ég held nú ekki, ég held að
svona myndir byggi ekki mikið á
því. Sjálfsagt eitthvað, jákvæðir
dómar hjálpa frekar en hitt. Maður
sér oft myndir sem fá fína dóma en
gera ekki neitt og öfugt,“ segir Balt-
asar. Þegar myndin hafi verið próf-
uð á áhorfendum hafi hún fengið háa
einkunn, hærri en Contraband og
því séu menn nokkuð bjartsýnir
hvað aðsókn varðar.
Frábær leikari
-Nú hlýtur þú að læra eitthvað
nýtt með hverri mynd sem þú leik-
stýrir. Hvað heldurðu að þú hafir
lært af þessari?
„Maður vex við hverja raun og
það er kannski erfitt að fara að
greina það á þessum tímapunkti.
Maður þarf að sjá hvað þetta gerir
og hvar þetta lendir, hvernig hún
gengur um helgina. Ef hún gengur
illa þarf að skoða þetta í öðru sam-
hengi. Það er svolítið snemmt að
fara að greina það núna.“
-Þú verður alla vega sífellt sjóaðri
í því að stýra kvikmyndastjörnum.
„Já, já, það er engin spurning.
Eftir að hafa átt við Denzel er ekk-
ert sem kemur manni út af laginu,“
segir Baltasar kíminn en hann hefur
sagt frá því í viðtölum að Denzel
Washington hafi ekki verið neitt
lamb að leika sér við. „Hann er frá-
bær leikari, einn albesti leikari í
heimi en það er ekkert auðvelt að
eiga við hann. Hann gerir miklar
kröfur enda er hann búinn að vinna
sér inn fyrir því.“
-Var þetta ekki gott frumsýning-
arpartí í New York?
„Þetta var æðislegt. Rosalega
flott partí á Standard-hótelinu, of-
boðslega fallegt útsýni yfir alla
borgina og mikið húllumhæ. Það var
frábært, mjög skemmtilegt,“ segir
Baltasar að lokum.
Vex við hverja raun
Hasar Denzel Washington og Mark Wahlberg í kröppum dansi í kvikmynd Baltasars, 2 Guns.
„Þetta er eins slæmt og það gerist,“ segir Baltasar Kor-
mákur um stressið sem fylgir frumsýningarhelgi 2 Guns
Baltasar
Kormákur
2 Guns segir af tveimur mönn-
um, fíkniefnalögreglumanni og
starfsmanni leyniþjónustu
bandaríska sjóhersins, sem
ganga til liðs við glæpasamtök í
þeim tilgangi að standa hvor
annan að glæp og handtaka.
Þeir ræna mexíkóskan eitur-
lyfjabarón og komast í kjölfarið
að því að þeir hafa verið leiddir í
gildru og að hvorugur er sá sem
hann þykist vera.
Á vefnum Metacritic má finna
samantekt dóma hinna ýmsu
fjölmiðla um myndina og í gær
höfðu 33 dómar bandarískra
fjölmiðla verið teknir saman.
Meðaltalseinkunn myndarinnar
var þá 55 af 100 mögulegum,16
dómar taldir jákvæðir, 14 hvorki
jákvæðir né neikvæðir og þrír
neikvæðir. Meðal hinna jákvæðu
eru Entertainment Weekly (88/
100), New York Magazine (80/
100), The New York Times (70/
100), Hollywood Reporter (70/
100) og Variety (70/100).
Dómar flestir
jákvæðir
SUMARMYNDIN 2 GUNS
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2013
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands:
Þjóð verður til - Menning og samfélag í 1200 ár
Sigfús Eymundsson myndasmiður - Frumkvöðull íslenskrar ljósmyndunar í Myndasal
Silfur Íslands í Bogasal, Silfursmiður í hjáverkum í Horni
Skemmtilegir ratleikir, safnbúð og kaffihús.
Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu:
Handritin: Nokkur af merkustu skinnhandritum Íslendinga.
Þúsund ár: Fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands
Safnbúð og kaffihús.
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is www.thjodmenning.is
www.facebook.com/thjodminjasafn og www.facebook.com/thjodmenning
Opið alla daga í Þjóðminjasafni 10-17, Þjóðmenningarhúsi 11-17
Óvænt kynni
- Innreið nútímans í íslenska hönnun
(7.6.-13.10.2013)
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
GERSEMAR 18.5.-25.8. 2013
MEMENTO MORI - SARA RIEL 5.7.-25.8.2013
SAFNBÚÐ - Listaverkabækur, gjafakort og listrænar gjafavörur.
KAFFISTOFA - Heit súpa í hádeginu, úrval kaffidrykkja og heimabakað meðlæti.
Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UMHVERFIS LANDIÐ Á FÁEINUM ÁRATUGUM og FORNMENN
Opið þriðjudag-fimmtudag kl. 11-14, sunnudag 13-16
Bergstaðastræti 74, sími 515 9625. www.listasafn.is
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
ÚR DJÚPUNUM - Samsýning Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og Listasafns Íslands
SUMARTÓNLEIKAR - þriðjudaginn 6. ágúst kl. 20:30
- Áshildur Haraldsdóttir flauta og Kristínn H. Árnason gítar.
Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga.
Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Tilvist
Eiríkur Smith
olíumálverk og vatnslitamyndir
frá 1968 - 1982
Opið frá 12 – 17 á frídegi
verslunarmanna mánudaginn 5. ágúst
Opið 12-17, fim. 12-21,
lokað þriðjudaga.
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Sýning norska listamannsins Øy-
vinds Aspens verður opnuð í kvöld
klukkan 19 í Galleríi Dvergi. Sýn-
ingin verður einnig opin á morgun,
sunnudaginn 4. ágúst, klukkan 15
til 18. Sýningin verður einungis op-
in á þessum tveimur dögum og
nefnist hún Hard Work Lard Work
Art Work. Sýningin tekur sem út-
gangspunkt hið mannlega ástand
og samfélag manna út frá líkam-
legri hegðun og upplifun. Lista-
maðurinn Øyvind Aspen kannar
sérstaklega það sem við mennirnir
skiljum eftir okkur er við stöndum
andspænis flóknum og marglaga
veruleika okkar. Aspen býr og
starfar í Ósló. Hann vinnur að-
allega með myndbandsmiðilinn,
texta, skúlptúr og gjörninga. Hann
er einnig stofnandi og rekstraraðili
sýningarýmisins Tidens Krav í
Ósló. Sýningarými Gallerís Dvergs
er í kjallara bakhúss að Grund-
arstíg 21 í Reykjavík.
Flókinn og margbreytilegur veruleiki í
túlkun Øyvinds Aspens í Galleríi Dvergi
Listasýning Norski listamaðurinn
Øyvind Aspen sýnir á Galleríi Dvergi.
Listamaðurinn Dagbjört Brynja
Harðardóttir opnar sýninguna
Píkublóm í sal Myndlistarfélagsins í
Listagilinu á Akureyri í dag klukk-
an 14-19. Brynja sýnir málverk sem
eru unnin með olíu og akrýl ásamt
innsetningu á píkublómum úr hekl-
uðum pottaleppum og dúllum.
„Sýningin mín er lofgjörð til kven-
leikans, lífs og vaxtar en er um leið
ádeila á öfgafull fegurðarviðmið
sem m.a. birtast í aukinni tíðni á
lýtalækningum á píkum,“ segir
Brynja en hún vill með sýningunni
m.a. skapa umræðu um öfgafull
fegurðarviðmið sem geta bjagað
sjálfsmynd og líðan kvenna.
Brynja er búsett á Akureyri og
starfar sem
framkvæmda-
stjóri Sinfón-
íuhljómsveitar
Norðurlands.
Hún lauk for-
námi við Mynd-
listarskólann á
Akureyri árið
2001 og mynd-
listarnámi við
Örebro Konst-
skola í Svíþjóð árið 2007. Brynja er
einnig uppeldis- og menntunar-
fræðingur, kennari og lýðheilsu-
fræðingur. Hún hefur unnið að
píkublómum í ýmsum myndum frá
árinu 2006.
Innsetning á píkublómum á Akureyri
Píkublóm eftir
Dagbjörtu Brynju