Morgunblaðið - 08.10.2013, Qupperneq 1
Skipulögð bólusetning gegn ár-
legri inflúensu er nú hafin og hægt
er að fá sprautu á næstu heilsu-
gæslustöð eða heilbrigðisstofnun.
Inflúensan er þó ekki komin til
landsins að sögn Haralds Briem
sóttvarnalæknis. Von er á henni í
desember eins og fyrri ár.
Tvær tegundir fuglaflensu, H1N1
og H3N2 eru í gangi og er mótefni
gegn þeim í bóluefninu sem nú er
gefið. Á bilinu fimmtíu til sextíu
þúsund manns láta bólusetja sig hér
á landi ár hvert og er ákveðnum
hópum einkum ráðlagt að láta bólu-
setja sig, eins og eldri borgurum og
þeim sem þjást af ónæmisbælandi
sjúkdómum. »22
Bólusetning hafin
og flensan á leiðinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
233. tölublað 101. árgangur
Þ R I Ð J U D A G U R 8. O K T Ó B E R 2 0 1 3
FANNST HÚN
GETA ANDAÐ
Á ÍSLANDI
SVART
SKAL ÞAÐ
VERA
HJÓLAÐ Í VILLTA
VESTRINU Á
BJARGBRÚNINNI
BÍLAR BJARTUR OG FÉLAGAR Í MOAB 10CATHY Á VOPNAFIRÐI 16
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Morgunblaðið/Júlíus
Mikill samdráttur hefur orðið í
fataverslun hér á landi þar sem fólk
sparar annaðhvort við sig eða
kaupir föt erlendis. Raunvirði fata-
verslunar er 39% minna nú en 2007.
„Það hafa margir lýst því þannig
að á góðærisárunum hafi þeir átt
þrennar til fernar góðar gallabux-
ur. Nú eigi þeir bara einar eða
tvennar. Það munar um þetta,“ seg-
ir Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu. »4
Færri gallabuxur
í fataskápunum
Makríll á Íslandsmiðum
» Um 1,5 milljónir tonna í lög-
sögunni síðustu sumur.
» Makríllinn þyngist um meira
en 40% meðan hann er á Ís-
landsmiðum og er talinn éta
2-3 milljónir t. af sjávarfangi.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Miklar makrílgöngur vestur og
norður með landinu valda mönnum
áhyggjum því á þeim slóðum eru
uppeldisslóðir ungviðis þorsks og
loðnu. Rannsóknir Hafrannsókna-
stofnunarinnar benda til þess að
uppistaðan í fæðu makríls hér við
land sé áta, svifdýr af krabbaættum.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri, sagði
að á meðan makríllinn hélt sig mest
fyrir suðaustan og austan land hefðu
menn verið rólegir því þar skaraðist
hann ekki við nytjastofna á borð við
t.d. ungloðnu og þorskseiði.
„Nú þegar makríllinn hefur teygt
sig vestar og norðar, sérstaklega í ár
og í fyrra, þá er komin skörun,“ sagði
Jóhann. Ekki liggja fyrir niðurstöð-
ur rannsókna þar sem sýnt er fram á
skaðleg áhrif makríls á umrætt ung-
viði og líklega verður seint hægt að
sanna þau, að mati Jóhanns. Hann
minnti á að þorskárgangurinn frá
2012 virtist vera vel heppnaður,
þrátt fyrir að makríllinn hefði farið
vestur og norður fyrir land í fyrra.
Frekari rannsókn er að hefjast á
því hvað makríllinn étur helst.
MÁhyggjur af áhrifum... »6
Makríllinn fer á seiðaslóðir
Skörun makríls við seiði þorsks og loðnu fyrir norðan og vestan veldur mönnum
áhyggjum Þorskárgangur 2012 virðist vel heppnaður þrátt fyrir makrílgönguna
Lánsöm Stella Stefánsdóttir.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Stella Stefánsdóttir á 90 ára afmæli í
dag og á von á 190. afkomanda sín-
um í heiminn í nóvember. Stella
eignaðist 14 börn, á 52 barnabörn,
106 langömmubörn og 17 langalang-
ömmubörn. Hún á því 189 afkom-
endur núna eða fleiri en nokkur ann-
ar lifandi Íslendingur. „Það er
auðvitað alveg dýrlegt og þetta er
allt saman besta fólk. Það er held ég
það sem vantar í þessa blessuðu ver-
öld, það eru einhver gæði og sam-
heldni í fólki,“ segir Stella um af-
komendafjöldann. Stella hefur alla
tíð búið á Akureyri, segist vera
heilsuhraust og sér enn um sig sjálf.
„Það er alltaf einhver sem lítur inn
svo til daglega. Sjö barna minna eru
í bænum og ég fer til skiptis til
þeirra í mat. Ég reyni svo að bjarga
mér að öðru leyti heima.“
Stella eignaðist sitt fyrsta barn 17
ára gömul og bjóst þá ekki við að
börnin yrðu svona mörg. „Ætli þetta
hafi ekki bara verið hugsunarleysi.
Það held ég að megi flokkast undir
það,“ segir hún kankvís.
Stella vann lengi á Sjúkrahúsinu á
Akureyri og skellti sér í sjúkraliða-
nám á fimmtugsaldri. Hún segir að
það hafi gengið vel að vera útivinn-
andi með stóra fjölskyldu. „Það hef-
ur nú sjálfsagt eitthvað mátt setja út
á uppeldið en við höfum verið mjög
heppin með börn.“
Stella á von á flestum sínum af-
komendum í veislu í dag. En man
hún nöfnin á þeim öllum? „Það
stendur nú stundum í mér ef ég er
snögglega spurð núorðið en ef ég fæ
umhugsunarfrest þá held ég að ég
muni þau nú flest.“ »34
Bíður eftir 190. afkomandanum
Á fleiri afkomendur en nokkur annar núlifandi Íslendingur Níræð í dag
Kuldinn beit ekki á þessa götusölukonu sem sat
úti og seldi vörur sínar í Austurstræti í gær.
Skartið sem hún seldi fangaði athygli sumra
vegfarenda sem gengu vel klæddir framhjá. Þó
að kalt hafi verið í veðri var bjart og stillt og sól-
in náði að ylja. Í dag gæti hins vegar snjóað.
Skartið glitrar í haustsólinni í Austurstrætinu
Morgunblaðið/Golli
Bjart og fallegt haustveður var í höfuðborginni í gær
Ódýrara gæti
verið fyrir ríkið
að leigja aðra
ferju sem ristir
grynnra til að
sigla til Land-
eyjahafnar í vet-
ur en að láta
Herjólf sigla til
Þorlákshafnar
þegar hann
kemst ekki í
Landeyjahöfn.
Leiga á ferju til viðbótar við
Herjólf er í skoðun hjá innanríkis-
ráðuneytinu. Gert er ráð fyrir
heimild fyrir leigunni í fjárlaga-
frumvarpi næsta árs. »2
Hugsanlega bætt
við annarri Eyjaferju
Herjólfur við
Vestmannaeyjar.