Morgunblaðið - 08.10.2013, Qupperneq 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013
✝ Hörður Garð-arsson fæddist
á Rifkelsstöðum í
Öngulst.hr. 24.
maí 1928. Hann
andaðist á Hjúkr-
unar- og dval-
arheimilinu Hlíð á
Akureyri, 23. sept-
ember 2013.
Foreldrar hans
voru Garðar Hall-
dórsson,, f. 30.12.
1900 á Sigtúnum í sömu sveit,
d. 11.4. 1961 í Reykjavík,
bóndi á Rifkelsstöðum, oddviti
og alþ.maður, og k.h. Hulda
Davíðsdóttir, f. 13.6. 1900,
einnig á Sigtúnum, d. 22.11.
1986 á FSA, húsfreyja á Rif-
kelsstöðum. Bróðir Harðar var
Halldór Garðarsson, f. 1929, d.
2009, búsettur lengst af í
Reykjavík.
Hörður kvæntist 11. febrúar
1951 eftirlifandi maka sínum,
Rósfríði Kristínu Vilhjálms-
dóttur, f. 3.4. 1930 á Akureyri.
Foreldrar hennar voru Vil-
hjálmur Guðjónsson, f. 1892, d.
1947, verkamaður á Akureyri,
og k.h. Katrín Aðalheiður
Hallgrímsdóttir, f. 1892, d.
1950, húsmóðir þar. Hörður og
Rósfríð eignuðust fimm börn,
þau eru: 1) Hulda, f. 17.8.
1951, gift Áslaugi Haddssyni,
Rifkelsstöðum, eða frá 1954-
60, en þau bjuggu þá á helm-
ingi jarðarinnar í tvíbýli við
Jónas bróður Garðars. Þau
hjón tóku alfarið við búi 1960
og bjuggu þar myndarbúi til
1974, og áfram félagsbúi við
dóttur þeirra Aðalheiði og fjöl-
skyldu hennar fram til ársins
1983. Rifkelsstaðir eru enn í
ábúð fjölskyldu Harðar, því
nafni hans Atli Hörður býr þar
nú. Við búskaparlok fóru þau
hjón að stunda vinnu utan bús-
ins, hún á Kristnesspítala og
hann sem starfsmaður hjá
KEA í fullu starfi til 1995, að
meginstarfi á sláturhúsi fé-
lagsins, en einnig við af-
greiðslu áburðar að vori og
móttöku kartaflna á hausti, en
áður hafði hann verið við störf
í sláturtíð margra hausta.
Hörður sinnti félagsmálum
sveitar sinnar og búsins vel og
árið 1970 var hann kominn í
hreppsnefnd, oddviti hennar
1978-83 og í sýslunefnd 1983-
86. Þessum störfum gegndi
hann meðfram bústörfum, auk
margra nefndarstarfa bæði
fyrir hrepp, sýslu og fjórð-
ungssamband. Hann starfaði
einnig í hinum ýmsum bænda-
klúbbum og þar oft valinn til
embætta. Eftir að þau hjón
fluttust til Akureyrar 1987
bjuggu þau lengst af í Álfa-
byggð 13, en hin síðari ár í
Kjarnagötu 14. Fyrir tveimur
árum fór Hörður inn á Hjúkr-
unar- og dvalarheimilið Hlíð.
Útför Harðar fór fram í
kyrrþey.
þau eiga þrjú
börn: Dröfn, Hadd
og Rósfríði Krist-
ínu, 2) Sigrún, f.
31.5. 1953, gift
Birni Jóhannssyni,
þau eiga þrjú
börn: Jóhönnu
Mjöll, Óðin Snæ og
Björn Torfa, 3)
Aðalheiður, f.
21.3. 1958, frá-
skilin Bjarna
Kristinssyni, þau eiga fjóra
syni: Atla Hörð, Jóhann Birki,
Sindra Pál og Bjarna Snævar,
4) Vala Björk, f. 12.12. 1965,
gift Jóhanni Jóni Eiríkssyni,
þau eiga þrjú börn: Berglindi
Petru, Aron Má og Andreu
Dögg og 5) Hörður Kristinn, f.
15.12. 1969, ókvæntur, hann á
eina dóttur með Írisi Rut Jak-
obsdóttur: Evu Jónu. Barna-
barnabörnin eru 21.
Hörður ólst upp hjá for-
eldrum og hlaut sína skóla-
göngu í farskóla sveitarinnar,
sem m.a. var starfandi á Rif-
kelsstöðum, jafnframt því sem
hann starfaði að búi þeirra.
Hann fór í Bændaskólann á
Hvanneyri haustið 1946 og út-
skrifaðist þaðan sem búfræð-
ingur vorið 1948. Stuttu síðar
hóf hann formlega félags-
búskap með foreldrum sínum á
Elsku pabbi, nú hefur þú
kvatt okkur og ert kominn á
æðra stig. Það var fallegur
morgunn þegar þú kvaddir,
stillt veður, haustlitirnir skört-
uðu sínu fegursta og fé komið
af fjalli í sveitinni þinni sem þér
þótti svo vænt um.
Þú varst fyrst og fremst
bóndi og þar var dugnaður og
kraftur í fyrirrúmi. Fljótt
kenndir þú okkur systkinunum
að vinna og þar þýddi ekkert
slór eða undankoma, allt skyldi
vera vel unnið og snyrtilegt.
Þetta tók ég með mér út í lífið
og þakka þér það. Með bústörf-
unum starfaðir þú í ótal nefnd-
um og ráðum fyrir sveitarfélag-
ið og má segja að oft hafi verið
gestkvæmt hjá ykkur mömmu
og allir velkomnir hvenær sem
var á sólarhringnum.
Yndi hafðir þú af því að lesa
bækur, fræðast og ferðast þó
ekki væru nú margar frístund-
irnar á meðan þú varst við bú-
skap. Þó var farið í sunnudags-
ferðir á milli mjalta. Best man
ég ferð austur í Fnjóskadal á
vörubílnum „gamla rauð“ þar
sem við vorum sex í bílnum og
þótti okkur elstu systrunum
tveimur nú ekkert athugavert
við það að þurfa að standa við
mælaborðið mestalla ferðina og
ekki var nú verra ef stoppað
var í sjoppunni við gömlu
Fnjóskárbrúna.
Þegar þú fluttir til Akureyr-
ar urðu frístundirnar fleiri og
nutum við hjónin þess að fá að
fara með ykkur mömmu í ferða-
lög. Það var sama hvert við fór-
um um landið, þú varst fullur af
fróðleik, þekktir hvert kenni-
leiti, jafnvel landamerki á milli
bæja og að sjálfsögðu öll bæj-
arnöfnin. Betri leiðsögumann
var ekki hægt að hugsa sér.
Það er gott til þess að hugsa
að þú ert laus við sársauka og
heim gleymskunnar sem þú
varst smátt og smátt að hverfa
inn í. Við munum geyma sög-
urnar þínar og segja frá og
ekki síst sögunni sem þú sagðir
svo oft og var síðasta sagan
sem þú náðir að segja mér.
Sagan um það þegar þú fórst í
göngur með Jónasi vini þínum,
komuð seint heim og féð vildi
ekki inn í réttina og endaði með
því að þið rákuð það inn í
kirkjugarðinn til geymslu yfir
nótt.
Ég kveð ég þig, pabbi minn,
og þakka þér fyrir að hafa allt-
af verið til staðar þegar við leit-
uðum til þín.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hvíl í friði.
Þín dóttir,
Sigrún.
Á afar fallegum og kyrrum
haustdegi lagði tengdafaðir
minn óvænt af stað í sína hinstu
för. Ljúft veðrið lýsir vel lífs-
viðhorfi hans á margan hátt og
viðeigandi að ferðbúast, þegar
Eyjafjörður skartaði fegurð
sinni. Kynni okkar hófust fyrir
nærri 45 árum, ég nálægt 17
vetra, hafði hug á að fanga
dóttur hans unga. Allt frá þeirri
stundu hef ég mætt ljúfum föð-
ur, manni orða sinna, hjálpleg-
um öllum, miklum vini og góðri
fyrirmynd í flestu. Hann var
höfðingi og um þetta leyti val-
inn til forystu í sinni sveit, jafn-
framt því að búa myndarbúi á
Rifkelsstöðum, bæði sjálfur og
einnig í félagi við fyrri og seinni
kynslóðir.
Af fjölskyldu er honum þann-
ig lýst að hann ósérhlífinn hafi
ýtt af ákafa verkum áfram, sem
ungum dugandi bændum er
tamt, þannig að allir legðu sitt
besta af mörkum, við fjölbreytt
störf búsins, enda sýnilegur
myndarskapur og snyrti-
mennska í fyrirrúmi. Honum
búnaðist vel og fengu börn hans
fljótt að ganga til flestra verka
og þeim treyst ungum fyrir
hlutverkum með ábyrgð. Þegar
við Sigrún dóttir hans hófum
svo okkar búskap hér á Ak-
ureyri var hann ætíð tilbúinn,
sæi hann minnsta tækifæri til
að aðstoða okkur með þeim orð-
um að „hún er löngu búin að
vinna fyrir þessu“ og þannig
launaði hann dugnað hennar og
vildi „ýta vel úr vör“. Hann var
algjör reglumaður og þau hjón-
in bæði og gantaðist ég með
það að það sterkasta sem hann
hafi neytt væri „Vallash“.
Hann var framsýnn við bú-
skapinn og var ætíð vel verk-
færum búinn, þannig að forði
vetrar var ætíð nægur og oftar
var hann aflögufær með hey að
vori og gat hann orðið öðrum
að liði. Þó búverkin væru mest
fjölskyldunnar, þá var ætíð
ungt fólk hjá þeim hjónum,
sumrungar og stundum fleiri en
einn og vistin það góð að þau
sóttust eftir að koma aftur.
Hörður aðhylltist sjónarmið
samvinnu og tók þátt í þeirri
hreyfingu, þó svo að hann hafi
ekki verið bundinn í báða skó,
þannig var hann lengi með
þjónustu fyrir BP, með sölu-
tank við þjóðveg.
Hann hafði yndi af bókum og
átti þær margar og las sér til
fróðleiks, ekki minnst um bú-
hætti í öðrum sveitum og var
afar fróður og því unun að
ferðast með honum vegna þess.
Ekki gáfust þó margar stundir
til slíks í búskapartíð, en hann
ræktaði samband við skóla-
bræður sína frá Hvanneyri og
heimsóknir þeirra á milli þótti
honum góðar. Þau hjón gátu
síðar einnig ferðast erlendis í
kosti félagsbúskapar.
Rétt eins og faðir hans var
hann félagslega sinnaður og gaf
af sér ríkulega til samfélagsins,
með oddvitastarfi í sveit sinni.
Þá var skrifstofa oddvitans ekki
með neinn sérstakan afgreiðslu-
tíma og gat verið erill á heim-
ilinu á flestum tímum sólar-
hrings og vinnudagar oft lengri
vegna fundarhalda. Hann var
einnig þess utan hjálplegur
mörgum, t.d. með skýrslugerð
o.fl. og það var því undarlegt
en jafnframt ljúft að geta að-
stoðað þau hjón með sömu mál,
þegar minni hans lét undan og
saga fortíðar dofnaði í huga
hans.
Hann var ætíð ljúfur, farsæll
og átti góða dugnaðarfjöl-
skyldu. Það er því fátt sem lífið
launar betur. Hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Björn Jóhannsson.
Elsku afi minn. Það er alveg
ólýsanlegt hvað ég sakna þín
mikið.
Við vorum svo miklir vinir,
gerðum svo margt saman og
áttum alveg einstakt samband
okkar á milli. Ég á svo margar
minningar um þig, það var svo
margt sem við gerðum saman.
Það var yndislegt að heim-
sækja ykkur ömmu í Álfa-
byggðina og þar eyddi ég
mörgum stundum. Oftar en
ekki sat ég inni á skrifstofu hjá
þér og dundaði mér við að lita
meðan þú varst að vinna og svo
var kíkt í skrifborðið því þar
leyndist alltaf dós full af
nammisnuddum þar sem boðið
var upp á þrjú stykki á mann í
einu.
Þegar ég var lítil þótti mér
svo gaman að fara með þér í
bíltúra. Þú varst alltaf tilbúinn
í smábíltúr þegar við systkinin
báðum um það og oftar en ekki
tókum við hring í hesthúsa-
hverfinu og enduðum svo á því
að kíkja í Garðshorn til að fá
„smágott“.
Á hverju sumri fórum við
fjölskyldan með ykkur ömmu í
sumarbústað. Mikið voru það
skemmtilegar vikur. Við skoð-
uðum allt í nágrenni bústað-
arins og alltaf vildi ég vera í
bílnum hjá þér og ömmu því þú
þekktir alla staðina sem við
heimsóttum og allar sögur sem
tilheyrðu þeim stað og þreytt-
ist aldrei á að segja mér þær
og fræða mig um landið okkar.
Við áttum það sameiginlegt
að hafa mikinn áhuga á bókum.
Við fórum saman á alla bóka-
markaði sem við komumst á og
keyptum okkur bækur og ég
var ekki orðin gömul þegar ég
var farin að safna bókum því ég
ætlaði mér að eiga margar
bækur alveg eins og þú varst
með á skrifstofunni þinni og í
dag á ég nokkuð gott safn og
átt þú mestan þátt í því safni.
Þegar ég var lítil átti ég það
oftar en ekki til að setjast í
fangið á þér og strjúka yfir
skallann þinn og alltaf hlóstu
og sagðir að ekki væri nú mikið
hárið á hausnum á afa gamla.
Þessar stundir átti ég fram eft-
ir öllum aldri með þér og þótt
ég væri orðin fullorðin átti ég
það til að strjúka yfir skallann
og alltaf fékk ég sama svarið
frá þér elsku afi.
Elsku afi, ég á eftir að sakna
þín svo mikið en ég á allar
góðu minningarnar um þig sem
ég mun geyma og segja stelp-
unum mínum frá því hvað þú
varst góður afi, besti afi sem
nokkur gæti hugsað sér.
Þín afastelpa,
Berglind.
Hörður
Garðarsson
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann
✝
Ástkær konan mín, móðir, tengdamóðir,
amma og systir,
STEFANÍA ÞORGRÍMSDÓTTIR,
Sólvallagötu 64,
Reykjavík,
lést mánudaginn 30. september.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 10. október kl. 13.00.
Gunnar Magnússon,
Ása Hauksdóttir, Halldór Arnar Guðmundsson,
Sigurjón Starri Hauksson, Sólveig Johnsen,
Guðrún Hauksdóttir, Gísli Baldur Sveinsson,
Hreggviður Vopni Hauksson,
Hekla Sif Hreggviðsdóttir,
Áslaug Ingileif Halldórsdóttir,
Þorgrímur Starri Halldórsson,
Malena Níní Starradóttir
og systkini hinnar látnu.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, fósturfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁRNI MELSTAÐ SIGURÐSSON
bifreiðarstjóri,
Smárabraut 6,
Blönduósi,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
föstudaginn 4. október.
Útför hans fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn
12. október kl. 14.00.
Lára Bogey Finnbogadóttir,
Svanur Líndal Hauksson, Rúna Líndal Aðalsteinsdóttir,
Kolbrún Líndal Hauksdóttir,Brynjólfur Dan,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
INGÓLFUR TRYGGVI GUÐBJÖRNSSON,
Víðilundi 20,
Akureyri,
sem lést á Öldrunarheimili Akureyrar föstu-
daginn 27. september, verður jarðsunginn
frá Fossvogskapellu föstudaginn 11. október kl. 13.00.
Rannveig Friðriksdóttir,
Halla Margrét Tryggvadóttir, Elías Bj. Gíslason,
Ingólfur Tryggvi og Friðrik Valur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓRUNN INGVARSDÓTTIR,
Rauðalæk 27,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnu-
daginn 6. október.
Inga Ásgeirsdóttir, Sæmundur Gunnarsson,
Ásgeir Ásgeirsson,
Sigurjón Ásgeirsson, Ragnheiður Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
SVERRIR STEFÁNSSON,
varð bráðkvaddur á heimili sínu föstudaginn
4. október.
Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstu-
daginn 11. október kl. 13.00.
Laufey Sverrisdóttir, Hugi Freyr Einarsson,
Stella Sverrisdóttir, Örnólfur Kristinn Bergþórsson,
Alexander Nökkvi, Gabríel Ómar, Stefán Máni,
Sesselja, Viktor Freyr, Hekla Sif og Óðinn Freyr.
✝
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar og
amma,
JÓHANNA ELÍN KJÆRNESTED,
Kleppsvegi 118,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi laugardaginn
28. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Garðar Árnason,
Ebbe, Frank, Sven,
Esther og barnabörn.