Morgunblaðið - 08.10.2013, Síða 35

Morgunblaðið - 08.10.2013, Síða 35
En þrátt fyrir stóran barnahóp var Stella vökukona við Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri frá 1956. Hún hóf sjúkraliðanám 1966 og var síðan sjúkraliði við FSA á árunum 1967-90. Stella og eiginmaður hennar fluttu í Lækjargötu 22 á Akureyri árið 1948 og þar var hún búsett til 2006. Þá flutti hún að Mýrarvegi 117 þar sem hún er enn búsett. Stella sinnti ýmsum félagsstörfum með heimilisstörfunum. Hún starf- aði lengi með kvenfélaginu Hlíf og starfar með Mæðrastyrksnefnd. Einnig sat hún um skeið í stjórn Sjúkraliðafélagsins á Akureyri. Sonarsonur Stellu og alnafni afa síns, Gunnar Konráðsson kvik- myndagerðarmaður, gerði stutt- mynd um ömmu sína, Ömmu Stellu, fyrir þremur árum. Myndin var frumsýnd fyrir fjölskylduna í lok árs 2010, var sýnd á stuttmyndahátíð í Regnboganum og hefur nú verið keypt af RÚV. Fjölskylda Stella giftist 15.5. 1943 Gunnari Konráðssyni, f. 26.6. 1920, d. 26.5. 2004, verkamanni á Akureyri. For- eldrar hans voru Konráð Jóhanns- son, f. 1895, d. 1981, gullsmiður á Akureyri, og Svava Jósteinsdóttir, f. 1895, d. 1986, húsfreyja. Börn Stellu og Gunnars eru Hjör- dís Ingunn, f. 1940, búsett í Dan- mörku en maður hennar er Helgi Sörensen; Svava, f. 1942, búsett á Akureyri en maður hennar er Bjarni Jónasson; Guðrún Jóna, f. 1943, bú- sett á Akureyri en maður hennar er Finnur Marinósson; Stefanía Erla, f. 1945, búsett í Kópavogi en maður hennar er Kristleifur Kolbeinsson; Elín Stella, f. 1947, búsett í Reykja- vík en maður hennar var Ólafur Arnars sem er látinn; Gylfi Þorgeir, f. 1948, búsettur í Grímsey en kona hans er Sigrún Þorláksdóttir; Kon- ráð Stefán, f. 1950, d. 1955; Ragna, f. 1952, búsett í Grímsey en maður hennar er Gunnar Hannesson; Fríð- ur, f. 1954, búsett á Akureyri en maður hennar er Bjarni Bjarnason; Konráð Stefán, f. 1956, búsettur á Akureyri en kona hans er Guðfinna Sölvadóttir; Ingibjörg Margrét, f. 1957, búsett á Akureyri en maður hennar var Þorleifur Ólason sem lést 1981 og seinni maður Peter Jon- es sem lést 2008; Bessi, f. 1960, bú- settur á Akureyri en kona hans er Indíana Ásmundsdóttir; Sigrún, f. 1961, búsett á Akureyri en maður hennar er Gunnar Jónsson; Hanna Dröfn, f. 1964, búsett í Kanada en maður hennar er Ólafur Þor- steinsson. Hálfsystir Stellu, samfeðra, var Greta Sólveig Hansen, f. 1922, d. 1995. Hálfbræður Stellu, sammæðra, voru Pétur Ágúst Þorgeirsson, f. 1928, d. 2003; Einar Grétar Þor- geirsson, f. 1930, d. 2002, og Stefán Þorgeirsson, f. 1931, d. 2001. Foreldrar Stellu voru Stefán Hin- riksson, f. á Reyðarfirði 1898, en hann fórst með Dettifossi árið 1945, vélstjóri, og Guðrún Einarsdóttir, f. á Hæringsstöðum í Svarfaðardal 1899, d. 1985, húsfreyja. Stella verður með opið hús á veit- ingahúsinu Bryggjunni á Akureyri, á afmælisdaginn milli kl. 16.00 og 20.00. Í stað gjafa og blóma óskar Stella eftir því að kvenfélagið Hlíf njóti gjafmildi gesta. Úr frændgarði Stellu Stefánsdóttur Stella Stefánsdóttir Kristín Jónsdóttir húsfr. á Hóli Björn Björnsson b. á Hóli í Svarfaðardal Margrét Björnsdóttir húsfr. á Skeiði, Dalvík og Siglufirði Einar Jónsson b. á hluta af Skeiði, var á Dalvík og loks á Siglufirði Guðrún Einarsdóttir húsfr. á Akureyri Hallfríður Ólafsdóttir húsfr. í Brekkukoti Jón Þorvaldsson b. á hluta af Brekkukoti í Svarfaðardal Gróa Sveinsdóttir húsfr. á Borðeyri og veitingakona Stefán Jónsson b. á Barkarstöðum í Húnavatnssýslu Guðríður Stefanía Stefánsdóttir húsfr. á Akureyri Hinrik Benedikt Pétursson Concile smiður á Akureyri Stefán Hinriksson vélstjóri, fórst með Dettifossi 1945 Málfríður Jónsdóttir vinnukona í Eskifjarðar- seli á Eskifirði Pierre Concile franskur skipstjóri Afmælisbarnið Stella Stefánsdóttir. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013 Björn Jónsson, ritstjóri og ráð-herra, fæddist í Djúpadal íGufudalssveit 8.10. 1846. Foreldrar hans voru Jón Jónsson, bóndi í Djúpadal, og Sigríður Jóns- dóttir húsfreyja. Eiginkona Björns var Elísabet Sveinsdóttir, systir Hallgríms bisk- ups, og Sigríðar, móður Haraldar Níelssonar prófessors. Elísabet var dóttir Sveins, prófasts á Staðarstað Níelssonar, en meðal barna hennar og Björns voru Sveinn, fyrsti forseti lýðveldisins, og Ólafur, stofnandi og ritstjóri Morgunblaðsins. Björn lauk stúdentsprófi og stundaði laganám en lauk ekki prófi. Hann stofnaði blaðið Ísafold 1874, fékk konungsgleyfi fyrir prent- smiðjurekstri hér á landi og pantaði prentsmiðju frá Danmörku. Blaðið Ísafold var fyrst prentað í þessari prentsmiðju 16.6. 1877 og er stofnun Ísafoldarprentsmiðju miðuð við þann dag. Björn var ritstjóri Ísafoldar til 1909 og starfrækti jafnframt prent- smiðjuna, frá 1886, í húsi sínu við Austurstræti, Ísafoldarhúsinu, sem nú stendur við Aðalstræti. Á heimastjórnarárunum var Björn forsprakki Landvarnar- manna, síðar sjálfstæðismanna eldri, og því helsti andstæðingur Hann- esar Hafstein. Eftir stórsigur Upp- kastsandstæðinga í kosningunum 1908 varð Björn annar ráðherra Ís- lands 1909. Sem ráðherra stenst hann ekki samanburð við Hannes Hafstein. Björn gerði m.a. þau póli- tísku mistök að reka bankastjóra Landsbankans, Tryggva Gunnars- son, móðurbróður Hannesar, og í mars 1911 hrökklaðist Björn frá völdum. Björn var alþm. 1878-80 og 1908- 1912 og bæjarfulltrúi í Reykjavík 1885-91. Hann var áhrifamikill rit- stjóri, eindreginn góðtemplari og stuðingsmaður Einars H. Kvaran í umdeildum sálarrannsóknum Til- raunafélagsins á fyrstu árum aldar- innar. Hann var beittur penni en ákafamaður og líklega stundum heldur tilfinningaríkur. Björn lést 24.11. 1912. Merkir Íslendingar Björn Jónsson 95 ára Guðbjartur Eiríksson 90 ára Ragnheiður Árnadóttir 85 ára Auðunn Haraldsson Gunnar Guðjónsson Sveinbjörn Þ. Egilson Una Gísladóttir 80 ára Guðmundur Jóhannes Guðmundsson Magnús Guðmundsson Ottó Ragnarsson Sveinn Guðjónsson 75 ára Elín Arnoldsdóttir Helga Benediktsdóttir Pálmi Jónsson 70 ára Guðmundur Garðarsson Guðrún Helga Hauksdóttir Gyða Þorgeirsdóttir Kolbrún Jóna Hilmisdóttir Sigríður G. Kristjánsdóttir Sigríður H. Einarsdóttir Úrsúla E. Sonnenfeld Þorgerður Sigurvinsdóttir 60 ára Bjarni Brands Matthíasson Eiríkur Jónsson Guðbjörg Astrid Skúladóttir Guðbjörg S. Sveinsdóttir Kristín Una Sæmundsdóttir Magnea Sveinsdóttir Matthildur Hafsteinsdóttir Þórólfur Ágústsson 50 ára Bjarni Sigurður Bergsson Drífa Óskarsdóttir Guðmundur G. Gunnarsson Gunnlaugur Stefánsson Hafþór Ólafsson Ingibjörg Helga Ágústsdóttir Ingibjörg R. Sigurðardóttir Jóhannes Sigurðsson Karl Thorberg Birgisson Lucille Helen Terry Maria Sztrunga Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Reyr Sigurjónsdóttir 40 ára Aðalheiður Ævarsdóttir Anna Gísladóttir Ásdís Björk Jónsdóttir Erling Friðrik Hafþórsson Friðfinnur Magnússon Garðar Már Newman Gísli Gunnar Oddgeirsson Henrik Erlendsson Hilmar Brjánn Sigurðsson Ingunn Hjördís Kristjánsdóttir Íris Hrafnkelsdóttir Lilja María Norðfjörð María Lovella Guðmundsdóttir Páll Liljar Guðmundsson Þórir Sigmundur Þórisson 30 ára Arnþór Stefánsson Kamila Slawinska Magna Magdalena Baldursdóttir Patrizia Angela Sanmann Ragnheiður Ásta Birgisdóttir Sigurgeir Þór Helgason Stefnir Stefnisson Sverrir Snær Ingimarsson Til hamingju með daginn 30 ára Rafn ólst upp í Garðinum, lauk BSc-prófi í íþróttafræði frá HR, KSÍ A þjálfaragráðu, stundar MEd-nám og er kennari og þjálfari. Maki: Hildigunnur Krist- insdóttir, f. 1983, tal- meinafræðingur. Dóttir: Helena, f. 2003. Foreldrar: Vilberg Jó- hann Þorvaldsson, f. 1962, húsasmiður, og Hel- ena Rafnsdóttir, f. 1964, grunnskólakennari. Rafn Markús Vilbergsson 30 ára Egill ólst upp í Reykjavík, lauk BSc-prófi í sálfræði frá HÍ, er búsett- ur í Reykjavík og starfar við geðdeild Landspít- alans. Maki: Kolbrún Tómas- dóttir, f. 1988, há- skólanemi. Foreldrar: Einar Guð- mundsson, f. 1956, bíla- málari, og Þóra Kristín Jónsdóttir, f. 1957, skrif- stofumaður hjá Lögregl- unni í Reykjavík. Egill Einarsson 30 ára Hildur ólst upp í Reykjavík, er bygginga- fræðingur, í MA-námi í mannauðsstjórnun við HÍ. Maki: Elmar Andri Svein- björnsson, f. 1979, verk- efnastjóri hjá Marel. Synir: Sævar Þór, f. 2010, og Andri Berg, f. 2012. Foreldrar: Sævar Tryggvason, f. 1947, d. 2005, málarameistari, og Ásta Sigurðardóttir, f. 1950, húsfreyja. Hildur Lind Sævarsdóttir Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is Úrval - gæði - þjónusta Allt fyrir gluggana á einum stað Mælum, sérsmíðum og setjum upp

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.