Morgunblaðið - 08.10.2013, Side 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vegna hæfileika þinna er leitað til þín
með sérstakt verkefni. Hittu vini þína og
njóttu þess að tala við þá í trúnaði.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú getur aðeins sjálfum þér um kennt
ef verkefnin eru að vaxa þér yfir höfuð.
Reyndu að láta sem ekkert sé og sjá hvað
þarna býr undir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú gætir þurft að ræða málefni
tengd sameiginlegum eignum við einhvern í
dag, líkega konu. Hafðu það í huga og vertu í
þínu besta pússi til vonar og vara.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Nú á tímum er hægur vandi að bæta
við þekkingu sína svo þú hefur enga afsökun
fyrir því að láta ekki undan þessari löngun
þinni. Hikaðu ekki við að sýna örlæti þitt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu ekki lítilfjörlegar deilur reita þig til
reiði því reiðin gerir bara illt verra. Hver er
sinnar gæfu smiður, og það á við þig eins og
alla aðra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er bara spurning um að horfa
nógu lengi á hlutina til þess að sjá fegurðina
sem þeir búa yfir. Margar hendur vinna létt
verk og einnig sjá augu betur en auga.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert klár og sérð hlutina í ljósi heims-
borgarans. Það er ekki eftir neinu að bíða
með að kynna hugmynd þína fyrir áhrifafólki
og lyfta starfsframanum á æðra plan.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gættu þess að láta ekki tala þig
til hluta, sem þú innst inni vilt ekki og munt
bara iðrast, ef af verður. Við getum ekki alltaf
sinnt þörfum allra í kringum okkur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hugur þinn þarfnast aukaað-
stoðar til þess að koma sér af stað. Finndu
hvað það er sem veldur þessu og gerðu eitt-
hvað í því. Ef vin þinn vantar peninga skaltu
gefa honum þá ef þú getur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur óaðfinnanlegan smekk
og vilt endilega veita fólki ráð. Gefðu þér tíma
til þess að kanna mál ofan í kjölinn og þá
muntu finna bestu lausnirnar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gerðu það upp við þig hvaða
markmiðum þú vilt ná og hvernig þú ætlar að
fara að því. Bíddu ekki þar til á morgun eða
hinn. Leggðu þinn skerf til mannúðarmála.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þegar þú hefur eitthvað sérstakt fyrir
stafni, líkt og nú, finnst þér heimurinn
töfrandi staður enn á ný. Hikaðu ekki við að
segja ástvinum þínum hve mikils virði þeir
eru þér.
Við Ásdís Kvaran hittumst ánámskeiði um Landnámabók,
sem Magnús Jónsson BA í sagn-
fræði stendur fyrir og er bráð-
skemmtilegt. Í Sturlubók segir frá
norskum manni, Sigurði svín-
höfða, er var kappi mikill, –
„Herjólfur son hans var þá átta
vetra, er hann drap skógbjörn
fyrir það, er hann hafði bitið geit
fyrir honum; þar um er þetta
kveðið:
Bersi brunninrazi
beit geit fyrir Herjólfi,
en Herjólfur holkinrazi
hefndi geitur á bersa.“
Herjólfur fór til Íslands í elli
sinni og nam land milli Búlands-
höfða og Kirkjufjarðar. Af honum
er kominn Brandur hinn örvi.
Í Landnámutíma á þriðjudaginn
skaut Ásdís þessari vísu að mér:
Þú leitar gulls, en gull ei fundið getur,
um gull er þig á hverri nóttu’ að
dreyma.
En lát þér hægar, líttu eftir betur;
það liggur undir fótum þínum heima.
Vísan er eftir Þorskabít, en í
„Nokkrum ljóðmælum“, sem
Borgfirðingafélagið í Winnipeg
gaf út árið 1914, standa þessi orð:
„Hinu ljóðelska íslenzka alþýðu-
fólki eru ljóð þessi virðingarfylst
tileinkuð af höfundinum, sem er
alþýðumaður.“
Þorbjörn Bjarnarson tók sér
skáldaheitið Þorskabítur. Hann
var fæddur á Írafelli í Kjós árið
1859, bóndi á Breiðabólsstað í
Reykholtsdal 1885-1891, en flutt-
ist vestur um haf tveim árum síð-
ar. Hann bjó fyrst í Winnipeg en
fluttist síðan til Pembina í Norð-
ur-Dakota og lést þar 1933.
Þorskabítur var gott skáld og
skemmtilegt, – „Heldur leirugt
gef mér gull“:
Virt skyldi meira vit í stirðu máli
en vansköpuð hugsun í
málfræðisprjáli.
Eg heldur kýs viskuna í húðstakknum
lúða
en heimskuna í forgylltum rósamáls-
-skrúða.
Faðir minn hafði gaman af
þessari stöku og kenndi mér hana
en Þorskabítur velur henni „tví-
rætt“ fyrir yfirskrift:
Kerling eitt sinn kát á rúmið sest,
við karl sinn tér hún: „Heyrðu, góði
minn!
Veistu, hvaða bein mér þykir best
að bíta? Það er hryggjarliðurinn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Frá Landnámu vestur
til Norður-Dakota
Í klípu
„HLJÓMAR EINS OG FÓTAÓEIRÐ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„TILBOÐIÐ GILDIR BARA UM EITT STYKKI
FYRIR HVERN VIÐSKIPTAVIN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
KASSI
EF ÞÚ SPYRÐ EINU
SINNI ENN HVAÐ
SÉ AÐ FRÉTTA ...
... MUN ÉG
MEIÐA ÞIG!
198 199 200
HRINGINGAR!
HELDURÐU
AÐ HÚN SÉ
KANNSKI EKKI
HEIMA?
... að vona að þér líki
við mig.
Gömlu stórveldin Arsenal og Liv-erpool hafa farið vel af stað í
ensku knattspyrnunni á þessu
hausti. Aldrei þessu vant. Eftir sjö
umferðir eru þau efst og jöfn með
16 stig í úrvalsdeildinni. Bæði með
sex mörk í plús en Arsenal telst
vera á toppnum á fleiri skoruðum
mörkum. Alveg eins og vorið 1989.
Eina skiptið sem efsta deild í Eng-
landi hefur unnist á fleiri skoruðum
mörkum en markamunur var þá,
eins og nú, sá sami. Enda þótt
aðdáendur þessara ágætu liða
gleðjist yfir þessari góðu byrjun
gera þeir sér án efa fulla grein fyrir
því að langur vegur er framundan í
vetur og mörg sterk lið um hituna.
En er á meðan er!
x x x
Fyrir áhugamenn um tölfræði eraugljós vendipunktur á gengi
Arsenal á þessu almanaksári. Eftir
tap gegn erkifjendunum í Totten-
ham Hotspur í byrjun mars hefur
liðið leikið 23 leiki í öllum keppnum.
Unnið 19, gert 3 jafntefli og tapað
aðeins 1 leik. Þessi hrina hófst með
2:0-sigri á Evrópumeisturnum Bay-
ern München á Allianz-vellinum.
Eftir téðan Tottenham-leik tók
Arsène Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, þá ákvörðun að setja fyrir-
liðann, Thomas Vermaelen, út úr
liðinu en hann hafði átt misjafna
leiki um veturinn í stöðu miðvarðar.
Í Tottenham-leiknum kastaði eig-
inlega tólfunum. Eflaust réð sá
gjörningur ekki einn og sér úrslit-
um en það blasir hins vegar við öll-
um að Laurent Koscielny og Per
Mertesacker finna sig mjög vel
saman. Erfitt gæti orðið fyrir Ver-
maelen að komast í Arsenal-liðið á
ný, alltént meðan tölfræðin heldur
áfram að vera honum í óhag.
x x x
Liverpool hefur líka átt við vörnsína en Brendan Rodgers hefur
verið að stilla upp þremur mið-
vörðum í síðustu leikjum. Kerfi sem
ekki hefur sést lengi í úrvalsdeild-
inni. Árangurinn hefur á hinn bóg-
inn verið ágætur og allt bendir til
þess að Rodgers haldi sig við það
áfram. Annars er fótboltinn eins og
lífið, hlutirnir eru fljótir að breyt-
ast. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Og ef þér reynist ekki trú-
ir í því sem annars er, hver gefur yður
þá það, sem yðar er? (Lúk. 16, 12.)
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís