Morgunblaðið - 10.12.2013, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 0. D E S E M B E R 2 0 1 3
287. tölublað 101. árgangur
GUÐBJÖRG
SAMDI VIÐ
POTSDAM
VALDI SÝNIR
KOPPASAFNIÐ
VIÐ GEITHÁLS
Á LJÚFU KVÖLDI
NÝ SKÍFA MEÐ
ÞÓR BREIÐFJÖRÐ
BÍLAR KONFEKTKASSI 32ÍÞRÓTTIR
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Morgunblaðið/Rósa Braga
Margháttuð starfsemi Egilshöll í Graf-
arvogi er afþreyingar- og íþróttamiðstöð.
Fasteignafélagið Reginn á í við-
ræðum við Reykjavíkurborg um að
stækka Egilshöll í Grafarvogi til að
bæta aðstöðu íþróttafélagsins
Fjölnis. Hugmyndin er að reisa við-
byggingu fyrir fimleikaaðstöðu og
almennan íþróttasal fyrir félagið
sem ÍTR myndi leigja fyrir 110
milljónir króna á ári.
Fram kemur í greinargerð að
mikill uppgangur hafi verið í
íþróttastarfinu síðustu ár og nokkr-
ar deildir sprengt utan af sér að-
stöðuna. Helgi S. Gunnarsson, for-
stjóri Regins, segir að stækkun
Egilshallar gæti numið um 10%.
Samkvæmt kynningarefni er hún
um 34 þúsund fermetrar. »18
Vilja viðræður um
stækkun Egilshallar
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Samtök atvinnulífsins eru reiðubúin að leita ann-
arra leiða en krónutöluhækkana til að koma sér-
staklega til móts við tekjulægstu hópana í yfir-
standandi kjaraviðræðum.
Í síðustu viku slitnaði upp úr viðræðum ASÍ og
SA þegar SA hafnaði kröfu um hækkun lægstu
launa um ákveðna krónutölu samhliða samningum
um prósentuhækkanir. „Við höfum sagt að við erum
tilbúin til þess að skoða ýmsar leiðir til að koma til
móts við lægst launuðu hópana, án þess að það valdi
miklu launaskriði,“ segir Þorsteinn Víglundsson,
framkvæmdastjóri SA.
„Við teljum að þessi krónutöluleið hafi um margt
reynst mjög vel til þess að lyfta undir kaupmátt
lægstu launanna á undanförnum árum, en að núna
séu komnar fram ótvíræðar vísbendingar um að við
séum komin að ákveðnum endamörkum þar. Við
þurfum því að horfa til þess með hvaða öðrum hætti
við getum tekið sérstaklega undir með tekjulægstu
hópunum,“ segir Þorsteinn ennfremur.
Starfsgreinasambandið og Flóafélögin hafa vís-
að kjaradeilunum til ríkissáttasemjara. Allt eins er
búist við að verslunarmenn geri slíkt hið sama í
dag. »4
Lyfta tekjulægstu hópunum
SA reiðubúin að leita leiða til að koma sérstaklega til móts við þá lægstlaunuðu
Það var mikið um dýrðir á jólatónleikum Hvíta-
sunnukirkjunnar Fíladelfíu í gærkvöldi en þar
kom fram Gospelkór Fíladelfíu ásamt Páli Rós-
inkranz og Regínu Ósk.
Í fyrstu stóð til að halda þrenna tónleika en
vegna mikillar eftirspurnar var þeim fjórðu bætt
við, að sögn Helga Guðnasonar, aðstoð-
arforstöðumanns Fíladelfíu. Tvennir tónleikar
fóru fram í gærkvöldi en hinir fara fram í kvöld.
Ágóði af sölu miðanna rennur til bágstaddra en
upptaka af fyrstu tónleikunum verður sýnd á
RÚV um jólin.
Syngja og spila til hjálpar þeim sem minna mega sín
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólatónleikar Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu teknir upp í gærkvöldi
Í heild hefur
sala á skyri auk-
ist um 56% á
Norðurlöndun-
um á þessu ári
miðað við síðasta
ár og er markað-
urinn þar orðinn
tvisvar sinnum
stærri en á Ís-
landi í magnsölu. Ýmist er skyrið
flutt út tilbúið eða framleitt ytra
með sérleyfi. Útflutningur er að
hefjast til Sviss og verður skyr
komið í átta lúxusverslanir þar eftir
um þrjá mánuði. Þá er hafinn út-
flutningur á skyri til Færeyja. »6
Skyrmarkaður er-
lendis tvöfalt stærri
dagar til jóla
14
Sendu jólakveðjur
á www.jolamjolk.is
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis
gerir breytingartillögur við frum-
varp til fjáraukalaga fyrir árið 2013
sem nema lækkun gjalda samtals
upp á rúmlega 1,9 milljarða og
hækkun tekna upp á rúmlega 3,9
milljarða á rekstrargrunni.
Áætlað er nú að innheimta tekna
skili meiri tekjum en gert var ráð
fyrir í frumvarpinu sjálfu og nemur
hækkunin 5,3 milljörðum króna.
Þetta skýrist aðallega af heldur betri
innheimtu á síðari hluta ársins en
gert var ráð fyrir. „Þannig hækkar
tekjuáætlun vegna fjármagnstekju-
skatts, virðisaukaskatts og tekju-
skatts lögaðila samtals um 5,9 millj-
arða kr.,“ segir í nefndarálitinu. Þar
á móti kemur minni innheimta vöru-
gjalda og lækkun vaxtatekna ríkis-
sjóðs. „Á heildina litið gera breyting-
artillögur nefndarinnar ráð fyrir um
5,8 milljörðum kr. hagstæðari heild-
arjöfnuði en gert er ráð fyrir í frum-
varpinu sjálfu,“ segir í álitinu.
Meirihluti fjárlaganefndar vekur
sérstaka athygli á tillögu í frumvarp-
inu um hækkun fjárheimilda tveggja
rannsóknarnefnda Alþingis upp á
rúmlega 321 milljón kr. Með því
verði heildarkostnaður nefndar um
Íbúðalánasjóð og nefndar um spari-
sjóðina áætlaður um 802 milljónir kr.
Meirihlutinn telur brýnt að af-
marka betur markmið og umfang
rannsóknarnefnda af þessu tagi,
verði framhald á því að Alþingi skipi
slíkar nefndir. Auk þess þurfi að
skýra betur fjárhagslega ábyrgð og
kostnaðareftirlit en nú er gert.
5,3 milljörðum meiri tekjur
Meirihluti fjárlaganefndar með breytingar á frumvarpi til fjáraukalaga 2013
Lækkun gjalda og hækkun tekna 5,8 milljörðum hagstæðari heildarjöfnuður
Tillaga meirihlutans
» Nefndin leggur til að ekki
verði fallist á tillögu í frum-
varpinu um 46,7 m.kr. framlag
til sendiráðsins í Vín vegna
fjárdráttar heldur er miðað við
að ráðuneytið beri sjálft þann
kostnað þar sem ljóst þykir að
fjárhagseftirlit ráðuneytisins
hafi verið óviðunandi.
MKomugjald í stað legugjalds »2