Morgunblaðið - 10.12.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |www.eirvik.is
Miele ryksugur
Rómantíkin var allsráðandi hjá þessu unga pari
á Reykjavíkurtjörn í gær, þar sem þau stóðu á
hólmanum og létu vel hvort að öðru. Ekki voru
þau að koma af dansleik heldur á rölti yfir
Tjörnina, sem enn var ísilögð þrátt fyrir smá
þíðu um tíma í gær.
Rómantík á Reykjavíkurtjörn
Morgunblaðið/Ómar
Ástin sveif yfir vötnunum í miðbænum
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lagt er til að tekið verði upp komu-
gjald vegna innlagna á sjúkrahús í
stað þess að innheimta gjald fyrir
legudaga á sjúkrahúsum eins og
áformað er í fjárlagafrumvarpi 2014.
Þetta kemur fram í nefndaráliti
meirihluta efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis um frumvarp til
laga um ýmsar forsendur fjárlaga-
frumvarps fyrir næsta ár.
Tillagan gengur út á að gerð verði
breyting á lögum um sjúkratrygg-
ingar sem heimili upptöku komu-
gjalds við innlögn á sjúkrahús. Það
nái m.a. til kostnaðar við innritun og
aðstöðu. Ekki er þó gert ráð fyrir því
að innheimta gjald vegna innlagnar á
fæðingardeildir.
Í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta
ár er gert ráð fyrir að legugjaldið
verði 1.200 krónur fyrir nóttina en
lægra fyrir aldraða og öryrkja.
Lagt er til að aldraðir, öryrkjar og
börn fái afslátt af komugjaldinu.
Komugjaldið verði aðeins innheimt
einu sinni vegna hverrar innlagnar
og legu á sjúkrahúsi. Önnur gjald-
taka af inniliggjandi sjúklingi verði
ekki heimil.
Ráðherra mun fá heimild til að
kveða nánar á um gjaldið í reglu-
gerð, þar á meðal fjárhæð þess. Ráð-
herra mun geta kveðið á um hámark
komugjalds fyrir þá sem þurfa að
leggjast inn á sjúkrahús oft á ári.
Einnig kemur fram að með töku
komugjalds skapist „meira samræmi
og jafnræði í gjaldtöku, enda er tekið
komugjald vegna komu á slysadeild,
bráðamóttöku og göngudeild, auk
gjalds vegna rannsókna hjá þeim
sem ekki eru inniliggjandi. Þess má
geta að gjöld vegna innlagnar eru
innheimt á sjúkrahúsum í Svíþjóð,
Finnlandi og Þýskalandi“.
Pétur H. Blöndal, alþingismaður
og framsögumaður málsins, sagði að
komugjaldið ætti að verða hluti af
sjúkratryggingakerfinu. Því mun
það falla undir afsláttarkerfi sjúkra-
trygginga og reglur um afslátt til
aldraðra, öryrkja og barna. Pétur
kvaðst ekki hafa séð útreikninga um
hvað komugjaldið á að vera hátt en
það yrði ákveðið í reglugerð.
„Við vinnum að því að reyna að ná
hallalausum fjárlögum og að beina
fjármagni til heilbrigðiskerfisins,“
sagði Pétur.
Hann er formaður nefndar um eitt
greiðsluþátttökukerfi. Starf hennar
gengur út á að allur kostnaður sjúk-
linga vegna viðskipta við heilbrigð-
iskerfið verði metinn eins og að tekið
verði tillit til heildarkostnaðar hvers
notanda.
Komugjald í stað legugjalds
Sjúklingar greiði gjald við innlögn á sjúkrahús vegna innritunar og aðstöðu
Fallið frá áformum um legugjald Komugjald hluti af sjúkratryggingakerfinu
Morgunblaðið/Ómar
Spítali Sjúklingar munu greiða
gjald þegar þeir leggjast inn.
Búið er að leggja fram beiðni til ríkissaksóknara og sér-
staks saksóknara um rannsókn á málefnum hjúkrunar-
heimilisins Eirar. Þetta kom fram á stofnfundi Hags-
munafélags íbúðaréttarhafa á Eir í gærkvöldi. Þar kom
einnig fram að tilboð hefði verið lagt fram í allar eignir
Eirar en að stjórn Eirar hefði hafnað því. Um 90 manns
sóttu fundinn, sem samþykkti að afþakka frekari þjón-
ustu lögmanns sem stjórn Eirar réð til að gæta hags-
muna íbúðaréttarhafa og ráða Ragnar Aðalsteinsson
hæstaréttarlögmann til að vinna fyrir hið nýstofnaða fé-
lag. Margir fundarmenn lýstu áhyggjum af stöðu mála og
sögðust þurfa að taka ákvörðun fyrir jól um hvort þeir
ættu að skrifa undir nauðasamninga eða ekki. Ef tilboð
um nauðasamninga verður ekki samþykkt blasir við
gjaldþrot.
Ragnar sagði á fundinum að stjórn Hagsmunafélags-
ins myndi fara yfir málið á næstu dögum og gefa íbúum í
kjölfarið ráð um það hvað væri best að gera í sambandi
við nauðasamninga. Hann sagði mikilvægt að íbúarétt-
arhafar lýstu kröfum á hendur Eir, stofnaðilum Eirar,
Reykjavíkurborg, ríkinu og stjórnarmönnum í Eir og
fylgdu þeim eftir með rökstuðningi. egol@mbl.is
Hafa óskað eftir lögreglu-
rannsókn á málefnum Eirar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stofnfundur Fundarmenn lýstu yfir áhyggjum af stöðu
mála, sérstaklega varðandi nauðasamningana.
Stofnfundur Hagsmuna-
félags íbúðaréttarhafa Eirar
Hafísinn hefur
fjarlægst landið
og var ísröndin
um 50 sjómílur
(93 km) vestur af
Vestfjörðum í
gær. Ísinn var
aðeins 20 sjómíl-
ur (37 km) frá
landi á föstudag.
Ingibjörg
Jónsdóttir, dós-
ent við Jarðvísindastofnun HÍ,
sagði að austanátt hefði verið á
þessum slóðum undanfarið og rekið
ísinn í áttina til Grænlands.
Þótt hafísröndin sé komin þetta
langt frá Íslandi þá getur vel verið
hafíshrafl og stakir jakar nær
landi. gudni@mbl.is
Hafísinn hefur
fjarlægst landið
Ingibjörg
Jónsdóttir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði 830 ökumenn í sérstöku
umferðareftirliti um helgina.
Fimm ökumenn reyndust ölvaðir
eða undir áhrifum fíkniefna við
stýrið og eiga þeir ökuleyfissvipt-
ingu yfir höfði sér. Tveimur til við-
bótar var gert að hætta akstri sök-
um þess að þeir höfðu neytt áfengis
en voru þó undir refsimörkum.
Við umferðareftirlitið um
helgina naut lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu aðstoðar félaga
sinna frá embætti ríkislög-
reglustjóra.
830 ökumenn
stöðvaðir í eftirliti
Meirihluti efnahags- og við-
skiptanefndar leggur til breyt-
ingar sem stuðla að starfs-
öryggi fiskvinnslufólks sem
nýtur kauptryggingar á grund-
velli kjarasamninga þegar vinna
liggur niðri vegna hráefn-
isskorts. Um leið er stuðlað að
lækkun útgjalda Atvinnuleys-
istryggingasjóðs.
Meirihlutinn leggur til breyt-
ingar sem byggjast á tillögum
velferðarráðuneytis, SGS og SF
og ganga út á að fækka vinnu-
dögum sem fiskvinnslufyrirtæki
eiga rétt á greiðslum úr At-
vinnuleysistryggingasjóði. Sam-
tals verði ekki greitt fyrir tíu
vinnudaga á almanaksárinu í
stað sex eins og nú er.
Tíu styrk-
lausir dagar
MINNI ÚTGJÖLD ATVINNU-
LEYSISTRYGGINGASJÓÐS