Morgunblaðið - 10.12.2013, Qupperneq 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2013
Ljósmynd/Haraldur Guðjónsson
Keppni Íslandsmeistaramótið í götuhjólreiðum fór fram í sumar og þar varð Elvar Örn í fjórtánda sæti.
og þar má sjá nákvæmlega hvaða
leiðir hann hjólar daglega, hversu
hratt, hversu langan tíma það tekur,
hve mikill bratti verður á vegi hans
og hversu mikla orku hann notar í
það. Hugmyndin að síðunni kviknaði
fyrir fáeinum mánuðum þegar hann
hafði deilt hjólreiðasögum sínum og
árangrinum gegnum facebooksíðu
sína og með öðrum hætti.
„Ég á mjög góðan vin sem er líka
gamall hjólafélagi og hann býr núna í
Danmörku. Við vorum að skrifast á
og ég sendi honum alltaf vikulega
pistla og hann sendi mér líka því hann
er í kajakróðri úti. Hann var mesta
hvatningin í þessu. Fyrst ég var alltaf
að skrifa honum fréttir af því hvað ég
var að gera fór ég að skrifa svona
keppnissögur á Facebook. Svo var
það bara núna í vetur sem ég ákvað
að skella upp þessari heimasíðu,“ seg-
ir Elvar og í gegnum síðuna fylgjast
margir með honum.
Undraverður árangur
Það er óhætt að segja að Elvar
hafi náð stórkostlegum árangri frá
því hann keypti hjólið, 146 kílóa
þungur, hinn 1. mars 2011. Hann hef-
ur tekið þátt í fjölda hjólreiðakeppna,
bæði hér á landi og erlendis. Hann
var til að byrja með þokkalegur hjól-
reiðamaður en er nú orðinn mjög
góður. Það góður að hann tók þátt í
Íslandsmeistaramótinu í sumar og
náði góðum árangri. Það eru sögur af
slíkum mótum sem hann hefur deilt
með fólki á netinu.
„Það er gaman fyrir fólk sem er
að byrja í þessu að geta skyggnst inn
í þennan heim og lesið um hvernig
þetta fer allt fram því það er mun
flóknara en fólk heldur að fara í hjól-
reiðakeppni,“ segir Elvar.
Hann varð fimmtándi í Bláalóns-
mótinu af 530 keppendum og kom þar
sjálfum sér á óvart. Á Íslandsmeist-
aramótinu varð hann fjórtándi og
hann heldur áfram að koma sér og
öðrum á óvart.
„Markmiðið er að halda áfram og
hafa gaman af þessu,“ segir mat-
reiðslu- og hjólreiðamaðurinn Elvar
Örn Reynisson sem ætlar að leggja
mikla áherslu á hjólreiðakeppnir á
næsta ári og hlakkar til þeirrar næstu.
Næsta sunnudag, 15. des. kl. 13, verð-
ur Kaldárhlaupið haldið í fjórða sinn í
tilefni hátíðar Hamarskotslækjar.
Hlaupið er tæplega 10 km langt frá
Kaldárseli fyrir ofan Hafnarfjörð og
niður í miðbæ Hafnarfjarðar. Hlaupa-
leiðin er hugsuð sem vatnaleið Ham-
arskotslækjar frá Kaldárbotnum til
sjávar. Hátíð Hamarskotslækjar var
haldin í fyrsta skipti 12. des. 2010, en
hún er haldin til heiðurs Jóhannesi
Reykdal. Þáttaskil urðu í sögu þjóð-
arinnar þegar Hamarskotslækur var
virkjaður og vatnsaflið nýtt til að
knýja trésmíðavélar og raflýsa 16 hús
í Hafnarfirði. Fyrir því stóð frum-
kvöðullinn Jóhannes Reykdal. Hátíð
Hamarskotslækjar minnir á mikil-
vægi lækjarins og ljóssins.
Rásmark er við Kaldársel, hlaupið
eftir Kaldárselsvegi með tveimur
lykkjum út frá honum. Beygt út af ak-
vegi fyrir neðan fremstu hesthús við
Kaldárselsveg, efri byggð. Hlaupið
eftir stígum að Lækjarbotnum og
áfram að læknum við leikskólann
Hlíðarenda efst í Setbergshverfi,
meðfram Hamarskotslæk eftir
göngustígum að Strandgötu, enda-
sprettur eftir Strandgötu. Lokamark
við Þórsplan, þar sem jólaþorpið er.
Skráning á hlaup.is og rútuferð verð-
ur frá bílastæði við Hafnarfjarðar-
kirkju kl. 12.15. Frítt er fyrir hlaupara
í sund í Suðurbæjarlaug að hlaupi
loknu. Líka hægt að skrá sig á staðn-
um. Verðlaun verða veitt fyrir fyrsta
sæti karla og kvenna og einnig verða
útdráttarverðlaun. Verðlaunaafhend-
ing er á sviði í jólaþorpsins kl. 14.
Vatnaleið Hamarskotslækjar frá Kaldárbotnum til sjávar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vetur Væntanlega verður svalt í Kaldárhlaupinu en það stoppar ekki hlaupara.
Kaldárhlaupið verður hressandi
Að fara á skauta er skemmtilegt,
bæði fyrir börn og fullorðna. Nú þeg-
ar Vetur konungur er genginn í garð
er um að gera að nýta sér frostið úti
og skella sér á skauta undir berum
himni, en ef hlánar þá er um að gera
að nýta sér innisvellin. Skautasvellið
í Egilshöll er opið virka daga frá kl. 13
til 14.45 og miðvikudaga og föstu-
daga frá kl. 17-19 og laugardaga og
sunnudaga frá kl. 13-16. Sannarlega
ættu foreldrar að eiga gæðastundir
með börnum sínum með því að renna
sér saman á skautum, því það er
bæði skemmtilegt og hressandi.
Frábært fjölskyldusport
Morgunblaðið/G.Rúnar
Skautafjör Gaman fyrir alla.
Gaman að skauta inni og úti
Skeifunni 10, Reykjavík
Hafnarstræti 91-93, Akureyri
Hafnarstræti 2, Ísafirði
Sími 540 2330
husgogn@penninn.is
www.penninn.isHúsgögn
DSW
Vefsíða Elvars átti að heita Leiðin til
betra lífs. Það er nú fulllangt heiti fyrir
lén og velti Elvar þessu dálítið fyrir sér í
sumar. Þegar hann fór til Danmerkur til
að hitta vin sinn var hann duglegur að
taka myndir og setja inn á Facebook.
„Svo tók ég mynd af sjálfum mér þar sem
ég var að hjóla með ís og tók myndir nán-
ast í hverjum einasta hjólatúr í Danmörku
af mér að borða ís,“ segir Elvar og úr varð
www.ismadurinn.is. Hann er enn duglegur
að taka myndir í hjólatúrunum en það fer
eitthvað minna fyrir ísátinu í fimbulkuld-
anum þó svo að hann hjóli í hvaða veðri
sem er.
Ísmaðurinn á myndum
SÆLKERINN Á HJÓLINU