Morgunblaðið - 10.12.2013, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2013
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki hafa verið teknar neinar
ákvarðanir um endurnýjun á að-
veituhæð hitaveitunnar á Akranesi
sem bilað hefur í þrígang í kulda-
kastinu undanfarna daga. Hins veg-
ar hefur Orkuveita Reykjavíkur, eig-
andi hitaveitunnar, ákveðið að flýta
byggingu nýs miðlunartanks á Akra-
nesi til að draga úr áhrifum bilana.
Aðveituæðin frá Deildartungu-
hver og út á Akranes er 64 kílómetra
löng og með tengingum í Borgarnes
og á aðra staði á leiðinni er veitan 74
km. Pípurnar eru úr asbestefni og
hafa verið að gefa sig, sérstaklega í
mýrlendi. Þá er ekki hægt að auka
þrýsting á lögninni til að hún geti
flutt meira vatn sem eftirspurn er
eftir.
Mest bilað í Leirársveit
Orkuveitan hefur unnið að endur-
bótum á lögninni frá árinu 2004.
Teknir hafa verið fyrir þeir staðir
þar sem lögnin er talin veikust, mest
í Andakíl. Lítið hefur þokast síðustu
ár vegna fjárhagserfiðleika OR. Búið
er að leggja stálpípur á 20 kílómetr-
um af þeim 74 sem þarf að endur-
nýja. Þrátt fyrir endurbætur hefur
bilanatíðni ekki minnkað síðustu ár.
Bilanirnar þrjár síðustu daga voru
allar í Leirársveit. Leiðslur fóru að
leka og þrýstingur fór þar með af
lögninni.
Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Orkuveitunnar, segir að eng-
ar ákvarðanir hafi verið teknar um
það hvenær ráðist verði í að ljúka
endurnýjun aðveituæðarinnar. Hann
segir að það sé talsvert verk, kosti
2-3 milljarða króna. Þá bendir hann
á að vinna þurfi verkið í áföngum svo
ekki þurfi að taka vatnið af stórum
svæðum vegna viðgerða.
Eftir bilanirnar síðustu daga
ákváðu stjórnendur Orkuveitunnar
að breyta áætlunum um endurnýjun
hitaveitunnar. Flýtt verður bygg-
ingu nýs miðlunargeymis fyrir heitt
vatn á Akranesi. Geyminn á að gera
næsta sumar. Hann verður mikið
mannvirki, rúmar 5-6 þúsund tonn
sem er meira en heitavatnsgeymarn-
ir á Öskjuhlíð ráða við, hver fyrir sig.
Kostnaðarmat bendir til að fram-
kvæmdin kosti um 300 milljónir.
Eiríkur segir að þegar geymirinn
verður kominn í gagnið muni bilanir
hafa minni áhrif á notendur.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hverinn Þótt nægur hiti sé í Deildartunguhver getur verið kalt í húsum á
Akranesi. Lögnin þoldi ekki frosthörkuna í síðustu viku.
Ekki sér fyrir
endann á endurnýj-
un aðveituæðar
Þrjár bilanir á hitaveitu fyrir Akranes
Hitaveita í rúm 30 ár
» Hitaveita Akraness og Borg-
arfjarðar var stofnuð 1979.
Deildartunguhver var virkjaður
til húshitunar í héraðinu og út
á Akranes.
» Sveitarfélögin lögðu eign-
arhluti sína inn í OR á árinu
2002 og rekstur sameinaður.
» Orkuveitan boðar til opins
íbúafundar á Akranesi nk.
fimmtudagskvöld til að fara yf-
ir hitaveitumálin í bænum.
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Heilsurækt fyrir konur
Inga Hildur Yngvadóttir
- 48 ára snyrti- og fótaaðgerðafræðingur.
Ég er búin að vera í Curves í 7 ár og líkar mjög vel ég mæti
alltaf 3 í viku. Mér finnst gott að ráða hvenær ég kem og
hversu oft . Mér finnst mikill kostur að þurfa ekki að stilla
tækin og að ég sé að taka á öllum helstu vöðvahópum. Mér
líður mjög vel á eftir og ekki er verra að halda kílóunum
í skefjum og vera styrkari og liprari. Frábær stöð sem er
bara fyrir konur og þarna er skemmtilegt starfsfólk og mjög
góður andi.
Oddný Sigríður Nicolaidóttir – 82 ára
Ég byrjaði að æfa í Curves vorið 2009. Æfingarnar henta mér
afar vel. Ég mæti 4x í viku og held þannig líkamanum í góðu
formi þrátt fyrir gigt og fleira sem fylgir mínum aldri. Eftir
skurðaðgerð nýlega fór ég í 6 vikna geislameðferð og meðan
á meðferðinni stóð stundaði ég líkamsræktina 4x í viku.
Félagsskapurinn, stuðningurinn og ekki síst það frábæra
starfsfólk sem Curves hefur upp á að bjóða er ómetanlegt.
Þarna hef ég eignast góðar vinkonur og sleppi helst aldrei úr
tíma. Stærsti kosturinn er að ég get mætt þegar mér hentar.
Settu h
eilsuna
í fyrsta
sæti!
Við erum í frábæru
jólaskapi
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins 30 mínútur
Því langar okkur
að bjóða konum
árskort í
Curves með
20%
afslætti!
5 tímar í trimform
fylgja frítt með.
Algjört
jóladúndur!
Gildir til 16. desember 2013
HEITT & KALT
Sími: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is | www.heittogkalt.is
Hátíðarstemning
að þínu vali:
Þægileg jólaveisla
Heimilisleg jólaveisla
Klassísk jólaveisla
Jólasmáréttir
Jólaveisla sælkerans
Verð á mann frá: 4.890 kr.
Allar upplýsingar og matseðlar
á www.heittogkalt.is
Jólaveisla
Fyrirtækja- og veisluþjónusta
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
þurfti að leysa upp samkvæmi ung-
menna í Sogamýri í Reykjavík um
helgina. Tveir piltar voru færðir á
Stuðla, þar á meðal húsráðandi sem
er 13 ára. Einn 16 ára piltur var
færður í fangaklefa en hann hafði
m.a. hrækt í andlit lögreglumanns.
Áður en hann var vistaður í fanga-
klefa var fullreynt að koma honum í
hendur foreldra og/eða barnavernd-
ar. Mikil ölvun var í samkvæminu
og sóttu ungmennin að lögreglu-
mönnum og hræktu meðal annars á
þá. Þurfti að kalla eftir liðsauka.
Að sögn lögreglu er ekki óalgengt
að henni sé sýnd óvirðing þegar hún
stendur frammi fyrir því að leysa
upp partí. Viðbrögð þessara ein-
staklinga eru ekki einsdæmi. Hins
vegar gat lögreglan ekki tjáð sig um
hvort vaxandi óvirðingu gagnvart
henni gætti. Eins og fyrr segir voru
tveir einstaklingar vistaðir á Stuðl-
um. Ákveðnar forsendur þurfa að
vera fyrir hendi svo gripið sé til
slíkra aðgerða. Lögreglan getur í
samráði við barnaverndarnefnd
vistað ungling á lokaðri deild á
Stuðlum. Fimm neyðarpláss eru
þar.
„Það er algjört neyðarúrræði að
vista börn á Stuðlum. Annaðhvort
hefur ekki náðst í foreldra og/eða
hegðun verið með þeim hætti að for-
eldrar/forsjáraðilar hafa ekki treyst
sér til að taka við barninu vegna
ástands þess,“ segir Steinunn Berg-
mann, félagsráðgjafi hjá Barna-
verndarstofu. Steinunn segir að allt-
af sé miðað við að barn geti verið
annars staðar áður en það er vistað
á Stuðlum. „Unglingapartí eru orðin
fátíðari. Mikill árangur hefur náðst í
forvarnarstarfi og foreldrar eru
orðnir mun meðvitaðari um að leyfa
ekki eftirlitslaus unglingapartí,“
segir Steinunn. thorunn@mbl.is
Neyðarúrræði að
vista á Stuðlum
Ekki óalgengt að sýna óvirðingu
Fern náttúruverndarsamtök;
Hraunavinir, Náttúruverndar-
samtök Íslands, Landvernd og
Náttúruverndarsamtök Suðvest-
urlands, hafa sent Eftirlitsstofnun
EFTA (ESA) kvörtun vegna innleið-
ingar á skuldbindingum Íslands
samkvæmt EES-samningnum. Um
er að ræða tilskipanir ESB sem
snúa að mati á umhverfisáhrifum
og réttlátri málsmeðferð í umhverf-
ismálum. Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu frá lögmannsstofunni
Málþingi.
Skuldbindingar þessar hafa m.a.
tilvísun til svonefnds Árósasamn-
ings sem Ísland fullgilti á árinu
2011. Umræddar tilskipanir, önnur
svonefnd Árósatilskipun og hin sem
er heildarendurskoðun á eldri til-
skipun um mat á umhverfisáhrif-
um, voru teknar upp í EES-
samninginn á árinu 2012 og mæla
skýrt fyrir um rétt umhverfis-
verndarsamtaka til réttlátrar máls-
meðferðar.
Í fréttatilkynningunni er bent á
að nú sé til meðferðar fyrir dóm-
stólum dómsmál sem samtökin
höfðuðu vegna framkvæmdaleyfis
og umhverfismats vegna lagningar
Álftanesvegar um Gálgahraun. Þá
er lögbannsmáli ekki lokið. Krafist
hefur verið frávísunar í báðum mál-
um á þeim grundvelli að umhverf-
isverndarsamtökin hafi ekki lög-
varða hagsmuni.
Hafa sent kvörtun til ESA
Morgunblaðið/Júlíus
Náttúra Mótmælt í Gálgahrauni.