Morgunblaðið - 10.12.2013, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2013
F
A
S
TU
S
_E
_0
4.
01
.1
3
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Verslun opin mán-fös 8.30 -17.00
Hágæða stálpottar og pönnur fyrir þá sem eru metnaðarfullir í eldhúsinu.
Má nota á allar gerðir af hellum, þ.m.t. spanhellur.
Mikið úrval af öllum stærðum og gerðum.
Potturinn og pannan
í góðu eldhúsi
Veit á vandaða lausn
STUTTAR FRÉTTIR
● Fjársýsla ríkisins hefur tekið í notkun
nýjan vef. Við hönnun hans var haft að
leiðarljósi að bæta þjónustu stofnunar-
innar og gera vef hennar aðgengilegri
fyrir viðskiptavini.
Nýi vefurinn uppfyllir reglur um op-
invera vefi og aðlagar sig að ólíkum
skjástærðum notenda. Allt efni hefur
meira og minna verið endurbætt og
töluvert af nýju efni er komið á vefinn.
Meðal nýjunga má nefna að hægt er
að sækja um námskeið á vegum Fjár-
sýslunnar í gegnum vefinn, sem jafn-
framt skráist inn í fræðslukerfi Orra, að
því er fram kemur í frétt á vef Fjársýsl-
unnar.
Nýr vefur Fjársýslunnar
● Skuldatillögurnar sem miða að því að
minnka skuldir heimilanna í gegnum
lækkun höfuðstóls húsnæðislána og
með skattaívilnun vegna séreignarlíf-
eyrissparnaðar virðast vera í samræmi
við yfirlýsingar stjórnvalda um aðhalds-
semi í ríkisfjármálum, samkvæmt því
sem fram kemur í fréttatilkynningu frá
matsfyrirtækinu Fitch Ratings.
„Með því að minnka skuldir heim-
ilanna kunna áform stjórnvalda að hafa
jákvæð áhrif á efnahagslífið á Íslandi,“
segir m.a. í fréttatilkynningunni.
Tillögurnar hafa ekki
áhrif á ríkisfjármálin
Tekjuafkoma hins opinbera hefur
batnað það sem af er þessu ári.
Hún var neikvæð um 2,4 milljarða
króna á 3. ársfjórðungi 2013 sem er
hagstæðari niðurstaða en á sama
tíma 2012 er hún var neikvæð um
6,7 milljarða króna. Þetta kemur
fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.
Tekjuhallinn nam 0,5% af lands-
framleiðslu ársfjórðungsins og 1,2%
af tekjum hins opinbera. Fyrstu níu
mánuði ársins reyndist tekjuafkoma
hins opinbera neikvæð um 18,1
milljarð króna eða 1,4% af lands-
framleiðslu þess tímabils, en til
samanburðar var tekjuafkoman nei-
kvæð um 29,2 milljarða króna á
sama tíma 2012 eða 2,3% af lands-
framleiðslu.
Heildarskuldir ríkissjóðs námu
1.933 milljörðum króna í lok 3. árs-
fjórðungs 2013 sem samsvarar
108,5% af áætlaðri landsframleiðslu
ársins. Hrein peningaleg eign rík-
issjóðs, þ.e. peningalegar eignir
umfram skuldir, var neikvæð um
878 milljarða króna í lok ársfjórð-
ungsins, en það samsvarar 49,3% af
áætlaðri landsframleiðslu ársins.
Hrein peningaleg eign ríkissjóðs
dróst saman um 55 milljarða króna
milli 3. ársfjórðungs 2012 og 2013.
Morgunblaðið/Kristinn
Afkoma hins opinbera Fyrstu níu mánuði ársins reyndist tekjuafkoma hins
opinbera neikvæð um 18,1 milljarð króna, 1,4% af landsframleiðslu tímabilsins.
Skuldir ríkissjóðs
1.933 milljarðar
Tekjuhallinn 0,5% af landsframleiðslu
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Fasteignafélagið Reginn, sem skráð
er í Kauphöll, á í viðræðum við
Reykjavíkurborg um að stækka af-
þreyingar- og íþróttamiðstöðina Eg-
ilshöll í Grafarvogi. Hugmyndin er
að reisa viðbyggingu fyrir fimleika-
aðstöðu og almennan íþróttasal fyrir
Fjölni sem ÍTR myndi leigja. Sam-
tals myndi ársleiga fyrir nýja
íþróttaaðstöðu handa Fjölni nema
110 milljónum króna á ári.
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri
Regins, segir í samtali við Morgun-
blaðið að stækkun Egilshallar gæti
numið um 10%. Samkvæmt kynning-
arefni er hún um 34 þúsund fermetr-
ar að stærð. Hann segir að hug-
myndirnar hafi verið kynntar fyrir
borgarráði í nóvember, þeim hafi
verið vísað til embættismanna og nú
standi yfir viðræður um næstu skref.
World Class flytur um áramótin
Í Egilshöll er knattspyrnusalur,
skautahöll, skotæfingasvæði, kvik-
myndahús og keiluhöll, ásamt ýmsu
fleiru. World Class í Spönginni mun
að sögn Helga flytja starfsemi sína
yfir í Egilshöll um áramótin. Á
fyrstu níu mánuðum ársins námu
tekjur Regins af Egilshöll um fimm
hundruð milljónum króna og jukust
um 8% milli ára. Egilhöll var reist
fyrir um áratug.
Fjölnir hefur áhuga á frekari upp-
byggingu á aðstöðu fimleikadeildar
félagsins. Fram kemur í kynningu til
borgarráðs að færri komast að en
vilja hjá deildinni. Handbolta- og
körfuboltadeild Fjölnis býr jafn-
framt við aðstöðuleysi sem háir fé-
laginu mikið.
Hugmyndir eru uppi um að leysa
þessa húsnæðiseklu með einni, tví-
skiptri byggingu og með samnýtingu
við Egilshöllina. Bygging íþrótta-
mannvirkja fyrir íþróttafélög í borg-
inni er alla jafnan unnin í samráði við
borgaryfirvöld og kemur ÍTR að
málum fyrir þeirra hönd.
Samtals 110 milljónir
Áætluð leiga fyrir nýtt fimleika-
hús er 70 milljónir króna á ári og
áætluð leiga fyrir íþróttahús er 40
milljónir króna á ári, samtals 110
milljónir króna. Með því að fella úr
gildi leigusamning um gamla fim-
leikasalinn mætti spara allt að 25
milljónir króna á ári, segir í kynn-
ingu til borgarráðs.
Fram kemur í þarfagreiningu að
um 320 iðkendur séu í Fimleikadeild
Fjölnis. Komi ekki til frekari stækk-
unar á aðstöðu hennar á næstu
tveimur til þremur árum séu tveir
valkostir: Hægja á inntöku nýrra
barna í deildina næsta haust eða
senda þau börn sem hvað lengst séu
komin annað þar sem aðstaðan sé
betri.
Í lok árs 2009 fékk deildin 470 fer-
metra sal í Egilshöllinni til umráða
til viðbótar við þann eldri. Deildin
hefur vaxið jafnt og þétt án þess að
ná að anna eftirspurn. Fram kemur í
greiningunni að jafnan séu um 80-
100 börn á biðlista eftir að komast að
í fimleikum hjá Fjölni. Markmiðið sé
að halda áfram uppbyggingu deild-
arinnar næstu árin þannig að innan
tíu ára verði iðkendur orðnir á bilinu
800-1.000 sem stjórn deildarinnar
telur að sé ákjósanleg stærð fyrir
deildina miðað við starfssvæði henn-
ar og eftirspurn.
Umfang Regins vex
Umfang Regins hefur vaxið þó-
nokkuð á milli ára en félagið birti
uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung í lok
nóvember. Leigutekjur félagsins
hækkuðu um 33% milli ára og námu
1.066 milljónum króna í lok fjórð-
ungsins.
Fram hefur komið í Morgun-
blaðinu að vænta megi áhrifa á
reikninga félagsins á næsta fjórð-
ungi af nýkeyptum eignum. Reginn
keypti nýlega fasteignafélagið Vist,
sem á húsnæði t.d. í Ármúla, á Egils-
stöðum og Ísafirði, og fasteign í mið-
bænum sem oft er kennd við Reykja-
víkurapótek. Í byrjun næsta árs
verður fasteignafélagið Klasi, sem
meðal annars leigir Árvakri og
Vodafone, væntanlega hluti af Reg-
in.
Rætt við Reykjavíkurborg
um stækkun Egilshallar
Íþróttafélagið Fjölnir er áhugasamt um að bæta aðstöðu fyrir fimleika
Fjölbreytt Í Egilshöll er kvikmyndahús, knattspyrnusalur og skautahöll.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Hækkað um 33%
» Markaðsvirði Regins er 19
milljarðar króna en gengið hef-
ur hækkað um 33% það sem af
er ári.
» Umfang Regins hefur vaxið
nokkuð hratt. Félagið birti upp-
gjör fyrir þriðja ársfjórðung
fyrir skömmu og höfðu tekj-
urnar aukist um 33% á milli
ára. Þær námu um einum millj-
arði króna á einum fjórðungi.
» Í Egilshöll er knatt-
spyrnusalur, skautahöll, skot-
æfingasvæði, kvikmyndahús
og keiluhöll, ásamt ýmsu
fleiru. World Class í Spönginni
mun flytja starfsemi sína yfir í
Egilshöll um áramótin.
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.
+/0
++1-23
4+-355
+/-+52
+.-13.
+0+-/4
+-+50+
+.+-45
+3+-5/
++.-1.
+/0-5,
++1-..
4+-,1,
+/-41+
+.-+4+
+04-4/
+-+535
+.+-,.
+3+-/5
4+5-35,/
++.-03
+/0-/5
+++-4
4+-,,
+/-42,
+.-+,5
+04-33
+-+5/,
+.4-04
+34-0/
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á