Morgunblaðið - 10.12.2013, Page 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2013
54 54 300 • SMIÐJUVEGUR 7 • KÓPAVOGUR
Eina glerverksmiðjan á landinu með vottaða framleiðslu
RENNIHURÐIR Á KYNNINGARVERÐI
Sparar pláss
Öruggt og traust
Einfalt í uppsetningu
Tilbúnar til afgreiðslu
vegghengdar agila 50
rennihurðabrautir með
hertu 8mm sýruþveignu
gleri og fingurgróp á
frábæru verði, 99.500 kr
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu það ekki draga þig niður, þótt
þér finnist aðrir ekki skilja þjáningar þínar.
Skoðaðu hlutina því vandlega áður en þú
ákveður framhaldið.
20. apríl - 20. maí
Naut Óvenjulegar persónur gætu komið róti
á hug þinn í dag og vinir þínir munu sýna á
sér nýja hlið. Skemmtileg neyð gæti komið
upp í líki óvæntra og svangra gesta.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu ekki að streða ein/n í þínu
horni því nú er það hópstarfið sem gildir.
Láttu smátíma líða og þá verða allir tilbúnir
til að heyra hvað þú hefur fram að færa.
Farðu varlega í umferðinni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt þér sé ekki mikið gefið um
mannamót, kemstu ekki hjá því að sækja
sum þeirra. Léttúð er lykillinn að árangri.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Lífið er ævintýri, kúnstin er bara að
kunna að lifa því með réttu hugarfari. Fólk
segir þér hluti sem þú vissir ekki. Ekki draga
úr heimsóknum í ræktina þó það sé desem-
ber.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hæfni þín til að meta fegurð, ævintýri,
rómantík og gáskafullan leik með börnum er
mikil í dag. Og það sem meira er, þetta er
ekkert mál fyrir þig!
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu sanngjarnari við sjálfa/n þig, en þú
ert. Taktu þátt í glensi og gamni þegar tæki-
færi gefast til þess. Einhver trúir þér fyrir
leyndarmáli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Samræður við vini eru mjög mik-
ilvægar í dag. Haltu áfram að lesa og ræða
það sem þú lærir, þannig síast þekkingin inn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er alveg hægt að rökræða við
fólk án þess að allt fari í hund og kött. Misstu
ekki móðinn, brátt styttir upp og þá ert þú í
góðum málum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er töluvert álag á þér núna
bæði í einkalífi og starfi. Drífðu þig út og lyftu
glasi ef þú hefur tök á.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Yfirmenn þínir munu hugsanlega
gera auknar kröfur til þín í dag. Ef þú stefnir á
langtímamarkmið, er gott að skammta
orkuna, og einbeita sér að því sem lætur
verkið rúlla og þróast.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hafðu augun hjá þér þegar nýir mögu-
leikar opnast á starfssviði þínu. Ef þú veist að
einhver býst við einhverju af þér notarðu það
oft til þess að gera að gamni þínu.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir íhinu kalda tíðarfari:
Læðist um með léttan mal,
langar nætur sefur.
Grimmt er frost á Glerárdal,
gamli holtarefur.
Georg Tryggvason segir veðurfar í
nóvember um margt óvenjulegt og þá
sérstaklega hinir tíðu og sterku vest-
anvindar, samfara því að daginn stytt-
ir enn. Það blæs honum anda í brjóst:
Bálhvassir vindar skörðin skríða
skefur af fjöllum rjúkandi mjöll.
Birtast í skammdegisskímunni víða
skrautlegir álfar og dansandi tröll.
Vættir og draugar í þjóðsögum þrífast
þraukar svo landinn og bætir í eldinn.
Snarkillir Glámur og Grettir þar rífast
gripið enn traust og heldur í feldinn.
Þessi slitra eftir Elías Mar er aldrei
of oft kveðin:
Anta- jafnan etur -bus,
einnig Pega- ríður -sus,
spíri- því ei teygar -tus
Thorla- kappinn snjall -cius.
Andsvar Jóseps var svohljóðandi:
Danskt brennivín
drekkur sem svín.
Dyggðin er gengin, svo far!
Elías Mar
á kvennafar
ætlar – ef Guð lofar.
Björgvin Leifsson rifjar upp
slitru eftir Stefán Jónsson á tréfæt-
inum, en tilefnið er Íslands-
heimsókn Filippusar hennar Betu
fyrir löngu. Björgvin segir Stefán
hafa ætlað að yrkja níðvísu en sam-
starfsfólk hans á RÚV hafi beðið
hann um að sleppa því; það væri
gustuk að hlífa karlræflinum:
Tuk það ekki tel ég gus,
tölu þó að langi vert,
Filip um að yrkja pus,
ó því læt ég þetta gert.
Það er forvitnilegt að detta inn á
bragfræðivef Halls Reynissonar á
slóðinni http://www.ismennt.is/
not/hbr/. Þar má til dæmis finna
nokkur afbrigði af afhendingum
eða afhendum:
Fyrirmyndar fagrar bollur fylltar rjóma,
ljúfar fita lýð með sóma.
Magar fyllast, mikið éta, magnast raunir
saltað kjöt og soðnar baunir.
Búningum í búðir rölta, börnin syngja
sætindin oft sekki þyngja.
Vikur sjö svo við hér taka, vesæll tími
svangt þá fólk við föstu glími.
Eftir það svo aftur borða, átið magna
upprisunni ákaft fagna.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af tíðarfari, Glerárdal,
slitrum og afhendum
Í klípu
„NÚ ÞARFT ÞÚ AÐ SLAKA AÐEINS
Á Í NÁTTÚRULYFJUNUM - ÞÚ ERT
BYRJUÐ AÐ GERJAST!“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„LÆKNIRINN SAGÐI AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ
SOFA Á MAGANUM Í NÓTT, OG KOMA SVO
Í FYRRAMÁLIÐ OG HITTA HANN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... góðar minningar og
góðar stundir.
UM HVAÐ ERTU AÐ
HUGSA, GRETTIR?
AF HVERJU ER EKKI
TIL ÍS MEÐ TÚNFISKS-
BRAGÐI?
EKKERT
RÓMANTÍSKT?
MYNDIR ÞÚ
EKKI ELSKA
ÞANNIG
ÍS?
ÞÁ ER ÉG FARINN
AÐ RÆNA VÍGGIRTA
OG VEL VARÐA KASTALA
KONUNGSINS!
VIÐ VERÐUM TÍU
SINNUM FÆRRI
EN ÓVINURINN! ÉG MUN
MÆTA SVERÐUM,
ÖRVUM OG
SJÓÐANDI OLÍU!
EIGÐU
GÓÐAN
DAG.
Víkverji átti þess kost nýverið aðheimsækja dvalar- og hjúkrunar-
heimilið Grund og eiga þar góða stund
með heimilisfólki og starfsmönnum.
Jólaandinn er farinn að svífa um sali og
viðmótið afskaplega hlýlegt og þægi-
legt sem mætir gestum Grundar.
Starfsfólkið vinnur sín verk af mikilli
alúð en líklega er á engan hallað þegar
sagt er að með þeim allra skemmtileg-
ustu sé æskulýðsfulltrúi Grundar, séra
Pétur Þorsteinsson í Óháða söfn-
uðinum. Pétur vinnur að félagsmál-
unum og mætir m.a. reglulega í morg-
unstund á Grund, þar sem lesið er upp
úr blöðunum, sungið og leikið á hljóð-
færi og hlustað á upplestur.
x x x
Í heimsókn sinni fékk Víkverji í hend-ur Heimilispóstinn, sem er frétta-
bréf Grundar, Áss og Markar. Þar er
ritstjóri annar góður og skemmtilegur
starfsmaður, hún Guðbjörg R. Guð-
mundsdóttir, betur þekkt sem Bogga.
Auk þess að ritstýra vinnur hún einnig
í félagsmálunum líkt og Pétur, og ber
þann formlega titil samskiptafulltrúi. Í
nýjasta Heimilispóstinum er skemmti-
legt viðtal hjá Boggu við Hafliða Jóns-
son, 95 ára, píanóleikara og fv. banka-
gjaldkera, sem flutti nýlega í Mörk
eftir að hafa búið í fjölskylduhúsi sínu
frá átta ára aldri, eða í 87 ár. Geri aðrir
betur.
x x x
Hafliði hefur alla tíð verið bindind-ismaður en gerir þó eina und-
antekningu þar á: „Konan mín kom
mér á bragðið með það í einni utan-
landsferð okkar. Þá fékk ég matar-
eitrun og var að fara í skoðunarferð.
Hún gat einhvern veginn fengið mig til
að taka inn tvær matskeiðar af koníaki
og við það lagaðist ég í maganum. Ég á
því alltaf til koníak og fæ mér eitt
staup ef ég fæ ónot í maga,“ segir Haf-
liði.
Við þessi orð mundi Víkverji eftir
svari hins fjárglögga Marka-Leifa úr
Skagafirði, sem þótti sopinn góður.
Marka-Leifi komst yfir nírætt og var
spurður hvað hann hefði gert til að
vernda heilsuna: „Ekkert, auðvitað,
nema hvað ég hef drukkið mikið
brennivín um dagana og brúkað tóbak.
Sumir telja slíkt óhollt, en mér hefur
ekki orðið hótið meint af.“
víkverji@mbl.is
Víkverji
Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið
hvert annað. Eins og ég hef elskað yður
skuluð þér einnig elska hvert annað.
(Jóhannesarguðspjall 13:34)