Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2013, Qupperneq 28
*Matur og drykkir Fjöldi uppskrifta hefur birst á matarsíðum 2013 og enginn hægðarleikur að velja bestu réttina »30
Á
ramótin skipta mig alveg rosalega miklu máli en ég vil taka á móti nýju
ári tæru og óáreittu,“ segir Marentza létt í bragði í samtali við Sunnu-
dagsblað Morgunblaðsins. „Ég skipti öllu sem heitir jólaskraut út hjá
mér heima og set upp hvítt,“ bætir hún við.
Smurbrauðsdaman segist oft hafa verið spurð að því hvernig hún nenni að
standa í að skipta öllu skrautinu út svona á milli hátíða, ekki síst eftir að hafa
staðið vaktina á Café Flóru í Grasagarðinum flestum stundum fyrir jól. „Þetta er
bara svo gaman og ég hef líka nefnilega bara svo góða „nennu“,“ segir hún kank-
vís.
Marentza segist hefja undirbúning áramótanna í kringum 29. desember ár
hvert. Þá skiptir hún út rauða litnum fyrir hvítan, setur til dæmis hvítar liljur í
vasa, hvítt á jólatréð, dekkar upp hvítt áramótaborð („jafnvel með smávegis
grænu og silfruðu“), setur upp hvít kerti og þess háttar. „Ef veðrið er gott á
sjálft gamlárskvöld set ég líka hvíta dúka og kerti á borðin úti, til að skapa hlý-
lega stemningu,“ bætir hún við.
„Ég hef gert þetta svona til margra ára og þetta er svo hátíðlegt og fallegt,“
segir hún glöð í bragði, greinilega ekki síður hrifin af þessum síðustu dögum árs-
ins en sjálfri jólahátíðinni. Þess má geta að fjölskylda og vinir eru fyrir löngu bú-
in að átta sig á þema húsfreyjunnar í þessu árlega boði að hennar sögn og mæta
allir klæddir einhverju hvítu. „Síðan borðum við humar og drekkum kampavín
með – þetta er svo yndislegt,“ segir hún að lokum.
Marentza gefur hér uppskrift að áramótamatseðli með einmitt humar í aðal-
hlutverki á marga vísu.
SKIPTIR JÓLASKRAUTINU ÚT FYRIR ÁRAMÓTIN
Hvít áramót Marentzu
MARGIR LANDSMENN TENGJA MARENTZU POULSEN JÓLAHÁTÍÐINNI EN HÚN VAR EINNA FYRST TIL AÐ KYNNA LANDANUM JÓLAHLAÐBORÐ Á
SKANDINAVÍSKA VÍSU OG SMURBRAUÐ. FÆRRI VITA HINS VEGAR AÐ MARENTZA LEGGUR EKKI SÍÐUR UPP ÚR ÁRAMÓTUNUM ÁR HVERT. SKÖMMU
FYRIR GAMLÁRSDAG SKIPTIR HÚN JÓLASKRAUTINU ÚT OG FÆRIR HEIMILIÐ Í ÖLLU BJARTARI BÚNING, ÁÐUR EN NÝTT ÁR GENGUR Í GARÐ.
Texti: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Myndir: Ómar Óskarsson omar@mbl.is
Marentza Poulsen hefur ekki síður gaman af áramótunum en jólunum. Vill hún taka á móti nýju ári tæru og fínu.
Morgunblaðið/Ómar
Hvíti liturinn er ríkjandi hjá Marentzu
um áramót. Snaraði hún fram dæmi um
fallega áramótadekkun fyrir viðtalið.