Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2013, Blaðsíða 39
29.12. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 2013 var dásamlegt tískuár með stórum glitrandi hálsmenum, neon- litum, tvílitu hári, ökklaskóm, bundnum ELLU-kjólum, rauðum vara- lit, augnháralengingum og Marc Jacobs-töskum. Ég var pínulítið með Marc Jacobs á heilanum á árinu enda áttum við fund í Lundúnum í byrjun ársins. Ég iðaði af spenningi að hitta kauða og var mikið að væflast með í hverju ég ætti að vera. Eftir að hafa skoðað málið frá öllum sjónarhornum valdi ég öruggu leiðina og fór í svartan kjól með ermum og setti á mig neon-litað belti. Ég hefði líklega átt að pæla minna í þessu því hann mætti í röndóttum nátt- fötum … Þótt ég hafi verið með Marc Jacobs á heilanum fór það í taugarnar á mér á árinu (og gerir reyndar enn) hvað töskurnar eru seldar dýru verði hérlendis. Ég minntist á það í einum tískupistli að töskurnar fengjust í massavís í bandarískum „department“-verslunum og það væri hægt að fá þær fyrir slikk. Á árinu var engin kona með konum nema að eiga stórt glitrandi hálsmen. Það voru náttúrlega bara auðkonur eins og Dorrit og konur Útrásarvíkinganna sem höfðu efni á að kaupa sér svoleiðis úr ekta gimsteinum. Við hinar létum spænska móðurskipið Zöru sjá um þetta fyrir okkur eða aðrar ódýrari verslanir. Ég lenti þó í smá veseni þeg- ar ég var stimpluð sem „ódýr“ af gömlum séns. Sénsinn, sem hefur aðallega búið á meginlandi Evrópu og er með einstaklega fágaðan fatastíl, tók strax eftir því að hálsmenið væri ekki ekta og fannst ég pínulítið taka niður fyrir mig með því að bera það. Hann hafði sér- staklega orð á því að hálsmenið færi alls ekki vel við skyrtuna, bux- urnar og hælaskóna. Af því að maðurinn er með nánast löggildan smekk gaf ég hálsmenið á árinu sem er að líða … Kjóll ársins er án efa bundinn kjóll frá ELLU – hann er svona eins og Chanel-útgáfan af Hag- kaupssloppnum. Vinsældir kjólsins eru án efa ekki bara hvað hann er klæðilegur heldur hvað konan er snögg að skutla sér úr hon- um … Á vissum augnablikum getur það verið kostur. Nú svo var það rauði varaliturinn sem sló öll heimsmet í smekklegheitum. Á tímabili voru allar píur bæjarins (og ömmur þeirra) komnar með rauðar varir. Þessi tískustraumur er ekki á útleið og mæli ég með því að sem flestar fari inn í nýja árið með eldrauðar varir. Þær sem setja á sig rauð- an varalit þora. Og hvað er meira sjarmerandi en kjarkur og þor. Á nýja árinu ættir þú ekki að þurfa mikið meira ef þú hefur þetta tvennt … eða svona þangað til það kemur útsala! martamaria@mbl.is Ég og Marc Jacobs í Lundúnum í byrjun þessa árs. Svona var 2013 Jólatúlípanar CRONUT Frá Bandaríkjunum til Evrópu og nú hjá Reyni Bakara í Kópavoginum! CRONUT er snilldar blanda af Crossant og Donut. Nýbakaður og fylltur með vanillufyllingu. Opnunartími Dalvegi: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00 laugardaga frá 6:00 til 17:00 sunnudaga frá 7:00 til 17:00 Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 200 Kópavogur Sími: 564 4700 Bundinn kjóll frá ELLU er án efa kjóll ársins. Neonbleik taska frá Marc Jacobs. Rússneskar rauðar varir frá MAC. Rauður varalit- ur gerði allt vitlaust á árinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.