Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2013, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.12. 2013
Matur og drykkir
Bestu aðalréttir 2013
Gestgjafi: Yesmine Olsson
FYRIR 6-8
Um 2 kg úrbeinað lambalæri
1½ msk. ólífuolía
nokkrir rósmarínkvistir
1 tsk. möluð kardimomma
1 tsk. malað kúmín
1⁄3 tsk. kanill
½ tsk. cayennepipar
2 dl vatn
FYLLING:
2½ dl mjúkar steinlausar döðlur
2 dl kókosmjöl
2 dl brauðrasp
1-2 rauðir chilibelgir með fræjum
6 skalottlaukar
25 g kóríander með stilkum
1 egg
2 msk. rjómi
salt og pipar eftir smekk
GRANATEPLA- OG ENGIFERGLJÁI
2½ dl granateplasafi
1 dl hunang
½ dl hrásykur
5 cm engiferrót
Úrbeinið læri eða kaupið það úrbeinað. Þerrið það
með eldhúspappír og látið standa við stofuhita í klst.
FYLLING:
Setjið allt nema brauðrasp og rjóma í matvinnsluvél,
maukið vel. Bætið brauðraspi og rjóma saman við,
maukið þar til áferðin er slétt og þá er fyllingin tilbúin.
Reynið að fletja lærið sem best út svo þykktin sé jöfn og
smyrjið fyllingunni jafnt á. Mögulega þarf að skera hér og
þar eða berja með buffhamri. Snúið kjöthliðinni upp og
fitunni niður, það verður safaríkara.
Blandið saman kardimommu, kúmíni, kanil og cayenne-
pipar í skál. Vefjið lærið eins þétt saman og hægt er. Not-
ið sláturgjarn og lokið
vefjunni sem best til
að tryggja jafna steik-
ingu. Penslið með olíu
og kryddið. Setjið kjöt
og vatn í steikarskúffu
og dreifið nokkrum
rósmarínkvistum yfir.
Hellið granateplasafa í
pott ásamt sykri og
rifnu engiferi. Látið
malla við miðlungshita í 20 mínútur svo áferðin verði sír-
ópskennd. Takið af hitanum og sigtið í skál. Bætið hun-
angi við, látið malla aftur við lágan hita í fimm mínútur.
Steikið lambið í 20 mínútur við 220° C, þar til steikin
hefur fengið fallegan lit og lækkið svo hitann í 180 gráð-
ur. Penslið steikina með engifer- og granateplasafanum
og safanum úr skúffunni á u.þ.b. 15 mínútna fresti þar til
kjötið er fullsteikt sem ætti að taka um um það bil
klukkutíma eða þar til kjarnhitinn er 57°. Látið kjötið
standa í 10 mínútur áður en það er skorið.
Fyllt lambalæri með granateplum
Yesmine hélt glæsilegt matarboð.
Morgunblaðið/Ómar
Gestgjafi: Gunnar Már
Sigfússon
Lax með kremuðu spínati
Fyrir fimm
750 g lax
1½ poki ferskt spínat
3 hvítlauksrif
2 msk. sýrður rjómi
2 msk. rjómi
smávegis tamarisósa
pipar- og hvítlauksblanda
salt og pipar
smjör eða kókosolía til
steikingar
Skerið laxinn í fimm jafnstórar
sneiðar. Smyrjið þær með tam-
arisósu, kryddið og bakið í ofni
við 180°C í 10 mínútur. Á með-
an skal smjörsteikja spínatið.
Þegar spínatið er orðið minna
um sig er hvítlauk, rjóma og
rjómaosti blandað saman við og
kryddað. Berið réttinn fram á
salatbeði, laxinn yfir og svo spín-
atið yfir allt.
Lax með kremuðu spínati
Gunnar Már Sigfússon og gestir
hans hádegi eitt í sumar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gestgjafi: Gréta Ingþórsdóttir
700 g úrbeinuð kjúklingalæri
2 msk. ólífuolía
saltflögur og svolítil piparblanda
1 sítróna
ferskt estragon
Ítalskt salat
100 g blandað salat
100 g klettasalat
½ jöklasalathaus
½ rauðlaukur
200 g svartar og grænar ólífur
með steinum
Salatsósa
½ dl ólífuolía
2 msk. rauðvínsedik
1 tsk. salatkrydd, t.d. salt, gróf-
malaður pipar, þurrkaðar krydd-
jurtir
1 tsk. fljótandi hunang
Aðferð Hitið ofninn í 175 gráður.
Setjið kjúklinginn á bökunarplötu,
hellið olíu yfir og veltið honum upp úr
henni og salt- og piparblöndu. Skerið
sítrónuna í báta og setjið á plötuna.
Setjið í ofninn í 20 mínútur. Bætið
fersku estragoni út á.
Blandið allt salatið í skál. Skerið
rauðlaukinn í þunnar sneiðar og setjið of-
an á salatið ásamt ólífunum.
Blandið öllu hráefni í salatsósuna og
hellið henni yfir salatið. Berið salatið
fram með kjúklingnum.
Aðferð
Setjið smjörið á pönnu og steikið í því
smáttskorinn hvítlaukinn og sveppina í 15
mínútur. Bætið því næst 2 msk. af trufflu-
olíu saman við og rjómanum og látið
sjóða í nokkrar mínútur.
Humarinn er steiktur á annarri pönnu
með hvítlauk, smáhvítvíni og salti og pip-
ar. Á meðan er tagliatelle soðið sam-
kvæmt leiðbeiningum og síðan velt upp
úr truffluolíunni. Pastað er sett á disk og
klettasalati, sveppablöndu, humri, fersk-
um parmesan og steinselju stráð yfir. At-
hugið að ef vill má líka mýkja klettasalatið
svolítið í sveppablöndunni.
Sítrónukjúklingur með ítölsku salati
Gréta Ingþórsdóttir og gestir hennar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gestgjafi: Steingrímur Sigurgeirsson
FYRIR 4
2-3 andabringur
600 g kartöflur
maldonsalt
svartur pipar
Þíðið bringurnar í ísskáp. Takið þær úr ís-
skápnum 2-3 klukkustundum áður en þið eld-
ið þær, þannig að þær nái stofuhita. Hitið ofn-
inn í 200 gráður. Skerið síðan í bringurnar
skinnmegin bæði í gegnum húðina og fitulagið
alveg niður að vöðvanum. Saltið vel með mal-
donsalti og nuddið því ofan í rásirnar sem þið
eruð búin að skera. Leggið bringurnar á kalda
pönnu með skinnhliðina niður, kveikið undir
og steikið á háum hita þar til puran er orðin
stökk og fín. Snúið þá bringunum við og steik-
ið í 2-3 mínútur á hinni hliðinni. Það er auðvit-
að hægt að setja bringurnar á heita pönnu en
puran verður stökkari með þessum hætti. Tak-
ið bringurnar af pönnunni, setjið í ofnfast form
og inn í ofninn í 8-10 mínútur. Takið út og leyf-
ið bringunum að jafna sig undir álpappír í
nokkrar mínútur. Skerið bringurnar í sneiðar.
Þær eiga helst að vera bleikar. Saltið varlega
með maldonsalti.
Þegar búið er að steikja bringurnar og setja
þær inn í ofn eru kartöflur sem hafa verið for-
soðnar og skornar í bita steiktar í andarfitunni
sem er eftir á pönnunni. Saltið þær og piprið.
RAUÐVÍNSSÓSA
3 skalottlaukar, saxaðir
½ dl balsamedik
5 dl rauðvín
2½ dl andarsoð eða 2 msk. andarkraftur
2 timíanstönglar
smjör
Hitið smávegis smjör á pönnu og mýkið ska-
lottlaukinn ásamt timíani í nokkrar mínútur.
Hellið bal-
samediki út
á og sjóðið
alveg niður
í kjarna.
Setjið
rauðvínið
út í og
sjóðið nið-
ur um 2/3.
Setjið soðið (eða kraftinn) út í og sjóðið aftur
niður um helming ef þið hafið notað soð. Síið
sósuna og sjóðið áfram í potti. Sósan á að vera
orðin þykk og nokkuð sæt og góð. Ef ekki er
bara að sjóða lengur. Bragðið til með salti og
pipar. Pískið matskeið af köldu smjöri út í sós-
una í lokin. Þegar andabringurnar eru búnar að
hvíla sig í nokkrar mínútur eftir að þær komu
úr ofninum eru þær skornar í þunnar sneiðar,
það má salta þær örlítið og síðan bera þær
fram með rauðkáli, kartöflum og rauðvínssós-
unni.
Andabringur með rauðvínssósu
Steingrímur og fjölskylda.
Morgunblaðið/Rósa Braga