Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2013, Page 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2013, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.12. 2013 agur hefur þegar lengst um fáein- ar mínútur. Maður sér þess að vísu engin merki en treystir Almanaki Þjóðvinafélagsins. Árið 2013 kynnir 2014 til sögunnar Nýtt ár er innan seilingar. Þessa dagana lesa menn sér til um, hvers konar ár 2013 hafi verið, annarsvegar horft frá íslenska bæjarhólnum og hinsvegar yfir ver- öldina sunnan og svo austan og vestan við þann mið- punkt heimsins. Af hverju þarf að leita frétta hjá öðrum um það, hvers konar ár þetta liðna hafi verið? Voru ekki allir sjónarvottar og vitni að því sjálfir? Vissulega. En það þarf að vinsa úr fyrir menn. Og það þarf að úrskurða hvað hafi verið mikilvægt fyrir heildina. Hvert og eitt okkar er svo auðvitað með sérskrá, sem ekki er endi- lega færð til bókar, um það sem merkilegast var á árinu 2013. Og þótt það vekti ekki mikla eftirtekt utan þrengsta hóps ættingja og vina er flestallt þó mun þýðingarmeira en þeir hápunktar ársins sem fjöl- miðlar gera skil um áramót. En það er bara annað mál. En sagan sýnir að stundum þarf lengri tíma en blá- endann á ári sem kveður, til þess að leggja mat sem stenst á það sem gerðist. Hagspekingar eru ekki búnir að jafna sig eftir fjármálakreppuna sem sýndi alvarleg sjúkdómseinkenni um mitt árið 2007 og lagðist loks með hitasóttarskjálftum yfir heimsbyggðina snemma hausts 2008. Hagspekingar voru að meðaltali seinastir allra stétta til að átta sig á hvaða ósköp lágu í lofti. En þeir hafa vissulega bætt það upp í þúsundatali með hundrað þúsund greinum, ritrýndum af kollegunum, þeim sömu og greinarhöfundarnir sjá um að ritrýna, þar sem útskýrt er, hvers vegna svona fór. Hinn góði fyrirvari Ágætur íslenskur fræðimaður svaraði eitt sinn um áramót spurningu um þjóðarhag með því að taka fram að það væri mjög erfitt að spá um efnahagsþróun á nýliðnum tíma. Þetta þótti virðingarverð varfærni, en sumir gátu sér þess til að þetta væri hugsanlega gætileg gamansemi. En einhverjir úr hópi hlustenda bentu á, að svarið væri ekki síst athyglisvert vegna þess að fræðimaðurinn hafði framfæri sitt af því, um þær mundir, að spá um efnahagslega framvindu á ókomnum tíma. Með því að benda á augljósa erf- iðleika við að spá um það sem þegar var orðið mátti öllum vera ljóst að grettistak var að spá um efnhags- lega þróun út í tóm hins ókomna. Þetta gildir auðvitað um fleira en efnahagsmál. Glöggur bókalesari benti nýlega á dæmi af handa- hófi úr nýlegri bók Össurar Skarphéðinssonar um hann sjálfan og stjórnmálaþróun ársins 2012, að svo miklu leyti sem hann væri þar miðdepillinn. Bókin er með dagbókarsniði og mun Össur hafa sagst hafa einkum fært hana í letur eftir miðnætti hvers dags. Eitt dæmið, sem hinn glöggi lesari tók, var um að Össur hefði náð að spá í dagbókarfærslu sinni rétt um úrslit frönsku kosninganna. Gott hjá honum. En lesandinn taldi að það gæti hafa hjálpað Össuri að hitta þann naglann á höfuðið að samkvæmt dagsetn- ingum færslnanna var spáin gerð nokkrum vikum eftir að úrslit kosninganna lágu fyrir. Nokkrar vikur sýna aðeins að um nýliðna atburði var að ræða og dregur því ekki endilega úr spádómsgáfunni. Ár stórasóps En þrátt fyrir fyrirvara af slíku tagi, þá liggur fyrir með óyggjandi hætti, að árið 2013 var ekki atburða- snautt. Ný ríkisstjórn tók við völdum. Það var þó ekki vegna þess að fráfarandi ríkisstjórn missti meirihluta sinn á Alþingi í kosningum þá um vorið. Sá var löngu farinn. Ríkisstjórnin hafði hangið, án fullnægjandi umboðs, í nærri tvö ár, verklítil og skaðleg. Vegna þessa ástands dróst að koma Íslandi á lappirnar aftur eftir bankaáfallið, sem varð fyrir fimm árum. Á meðan stjórnin hafði meirihluta nýtti hún hann ekki bara illa heldur undarlega. Allir vita hvernig gömul forstokkun í skattalegum efnum fékk nú að njóta sín. En að þeim slepptum einbeitti hún sér ekki síst að 4-6 aðalverkefnum, eftir því hvernig talið er. 1) Að koma Íslandi í Evrópusambandið án þess að slík ákvörðun hefði verið samþykkt af þjóðinni. 2) Að gera atlögu að íslensku stjórnarskránni, án boðlegrar rétt- lætingar og með ruglingslegum málatilbúnaði og til- burðum sem ekki var sæmandi að viðhafa um svo mikilvægt mál. 3) Að hengja á Ísland óbærilegar klyfjar vegna „Icesave-skuldbindinga,“ en Icesave má telja sem þrjú mál, þar sem þrjár atlögur voru gerðar. 4) Að gefa ótilgreindum erlendum kröfu- höfum tvo af þremur bönkum Íslands, án þess að heimildir stæðu til og með ógagnsæju og stórundar- legu ferli. Svo mikilvæg voru þessi verkefni í hennar augum að það sem ríkisstjórnin sagðist í upphafi standa fyrir fauk furðuskjótt ógert út í veður og vind. Hún sveikst um að rétta skuldugum heimilum hjálparhönd, eins og hún hafði lofað og innifalið var með öðrum lof- orðum í „skjaldborginni“, sem varð svo illa úti. Hún sveik, án þess að biðjast nokkurn tíma afsök- unar á því, margvísleg loforð sem gefin voru í tengslum við gerð kjarasamninga. Hún sveik loforð um gagnsæi og heiðarleika í stjórnmálum og kór- ónaði þau ósköp öll með því að sitja umboðslaus og stuðningslaus hjá þjóð og á þingi, en þó óhult fyrir Ölvuð völva við tölvu segir erfitt um slíkt að spá * Því miður eru horfur í heims-málum ekki mjög bjartar þegarhorft er til ársins 2014. Ekki er öruggt að botni evrukreppunnar sé enn náð og vofa atvinnuleysisins heltekur enn mörg ríki myntarinnar. Reykjavíkurbréf 27.12.13 D

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.