Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2013, Síða 52
Englar alheimsins í Þjóðleikhúsinu bbbbb
Eftir Einar Má Guðmundsson. Leikgerð: Símon Birgisson
og Þorleifur Örn Arnarsson, sem jafnframt leikstýrði. Burð-
arhlutverk: Atli Rafn Sigurðarson.
„Atli leikur snilldarlega og sýnir gríðarlegan kraft og
sjarma … Þessi leikgerð Engla alheimsins stendur ein og sér
en kallast jafnframt á við skáldsöguna og kvikmyndina. Hún ber vott um skýra sýn, dugnað,
alúð, kunnáttu og vit. Sama á við um leikstjórnina. Afraksturinn er frábært nýtt leikverk.“
Mýs og menn í Borgarleikhúsinu bbbbb
Eftir John Steinbeck í leikstjórn Jóns Páls Eyjólfssonar.
Burðarhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson og Hilmar Guðjónsson.
„Ólafur Darri leikur hinn barnslega Lennie og tekur hlut-
verkið snilldartökum … Þessi uppfærsla Músa og manna er í
stuttu máli frábærlega vel heppnuð. Góð vinna fagfólksins
sem að henni kemur rennur saman í afar sterka heild og ber
vott um öfluga leikstjórn leikstjóra sem hefur góðan skilning
og snjalla sýn.“
Mary Poppins í Borgarleikhúsinu bbbbm
Söngleikur byggður á sögum P.L. Travers og kvikmynd frá
Walt Disney í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar. Meðal leik-
ara: Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Guðjón Davíð Karlsson.
„Mary Poppins er söngleikur fyrir alla fjölskylduna og ég
mæli eindregið með að öll fjölskyldan fari saman á sýningu.
Það er algert dauðyfli sem ekki kann að meta hugmyndauðgina, fyndnina, sönginn, leikinn og
dansinn. Þá tel ég að sýning af þessu tagi sé mjög mikilvæg fyrir íslensk leikhús. Börn sem
upplifa aðra eins veislu í leikhúsi hljóta að vilja leita þangað aftur.“
Stóru börnin í Tjarnarbíói bbbbn
Eftir Lilju Sigurðardóttur í leikstjórn Rúnars Guð-
brandssonar. Leikarar: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Árni
Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein og Stefán Hallur Stef-
ánsson.
„Handrit Stóru barnanna er, að mínu mati, vel heppn-
að. Það er til dæmis sláandi hvað allar persónur þess eru
vel mótaðar en þar kemur að sjálfsögðu einnig til fram-
lag leikara og leikstjóra. Árni Pétur fær mörg tækifæri
til að brillera sem hið miðaldra barn og nýtir þau full-
komlega … Það er sérlega gaman að fá þetta frumlega, fyndna og innihaldsríka verk frá Lab
Loka. Hér er farið með áhorfandann utan alfaravega og hann jafnvel knúinn til að hugsa!“
Harmsaga í Þjóðleikhúsinu bbbmn
Eftir Mikael Torfason í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Leik-
arar: Elma Stefanía Ágústsdóttir og Snorri Engilbertsson.
„Harmsaga er eðlilega engin gleðipilla enda er verið að
fjalla um alvarlegt og jafnvel hættulegt efni … Snorri er að
mínu mati einn af efnilegustu leikurum í sínum aldurshópi og
eflist með hverju verki.“
Leiksýningar ársins
BESTU LEIKSÝNINGAR ÁRSINS SPANNA ALLT FRÁ SYNGJANDI BARN-
FÓSTRU TIL MORÐS MEÐ VIÐKOMU Í HEIMI GEÐVEIKINNAR. SIGURÐUR
G. VALGEIRSSON VALDI ÚR ÞEIM SÝNINGUM SEM HANN SÁ Í BORGAR-
LEIKHÚSINU, ÞJÓÐLEIKHÚSINU OG TJARNARBÍÓI. BLAÐIÐ VAR FARIÐ Í
PRENTUN ÁÐUR EN KOM AÐ FRUMSÝNINGU ÞINGKVENNANNA.
„Aðstandendur [Engla alheimsins] snúa eins og þeim sýnist upp á arfinn sem fylgir verkinu.“
Ljósmynd/Eddi
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.12. 2013
Menning
The Visitors – Ragnar Kjartansson.
Kling og Bang gallerí.
Þessi áhrifamikla myndbandsinnsetning Ragnars Kjart-
anssonar í Kling & Bang galleríi var frumsýnd í Zürich.
Síðan hefur hún m.a. verið sýnd í New York og í Mílanó.
„Ragnar Kjartansson stelur senunni með hrífandi og
margræðum óði til listarinnar þar sem saman fara sögu-
legar skírskotanir og samtímalegur bræðingur.“
Lúðrahljómur í skókassa – Magnús Pálsson, gjörningar.
18.-25. maí. Listahátíð í Reykjavík.
Einn helsti dagskrárliður Listahátíðar, Lúðurhljómur í skó-
kassa, var helgaður gjörningum Magnúsar Pálssonar (f.
1929). Annars vegar yfirliti lifandi verka hans og hins vegar
flutningi sex gjörninga sem allir voru fluttir fyrir fullu húsi
áhorfenda. Rýnir hreifst af flutningnum: „Stundum töluðu all-
ir í kór og „textinn“ breyttist í klið og hljómfall. Staðsetning
og hreyfing leikaranna/raddanna á sviðinu skapaði rýmistilfinningu – eða tilfinningarými –
og áhorfendur hrifust með.“
Alexander Rodchenko – Bylting í ljósmyndun.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir.
Yfirlitssýning á verkum rússneska listamannsins Alexand-
ers Rodchenko sem var einn áhrifamesti listamaður Rúss-
lands á fyrri hluta 20. aldar; ljósmyndari, myndlistarmaður
og hönnuður. „Yfirgripsmikið úrval af tilraunakenndum og
innblásnum verkum þessa brautryðjanda skilar sér í kraftmikilli og ögrandi sýningu sem
vekur til umhugsunar um tengsl listsköpunar, hugsjóna og samfélags á ólgutímum“.
Samleikur – Anna Hallin.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn. bbbbm
Verk eftir Önnu Hallin sýnd meðal verka Ásmundar
Sveinssonar. „Sýningin „Samleikur“ lætur lítið yfir sér en er
engu að síður heillandi í margræðni sinni og formrænni
íhygli. Verk beggja listamanna njóta sín í samleik sem bygg-
ist á hlýju, nærgætni og kímni, saman horfa þessi verk
gegnum holt og hæðir og draga fram óvænt vensl … Listin
er eilífur samleikur.“
Sigfús Eymundsson myndasmiður – Frumkvöðull ís-
lenskrar ljósmyndunar.
Þjóðminjasafn Íslands. bbbbn
Viðamikil yfirlitssýning á verkum þessa merka brautryðj-
anda. „Sigfús skapaði að því er virðist fyrirhafnarlaust
áhrifaríkar ímyndir sem gerðu hann að sannkölluðum frum-
herja í myndgervingu Íslands … vönduð og áferðarfalleg …
áhorfandinn spyr sig óhjákvæmilega hvernig íslensk menn-
ingar- og listasaga væri án framlags þessa listfenga ljós-
myndara.“
Myndlistarsýningar ársins
The Visitors, verk Ragnars Kjartanssonar, er hrífandi og margræður óður til listarinnar.
AFP
Í SÖFNUM OG SÝNINGARSÖLUM LANDSINS VORU SETTAR UPP ÁHRIFA-
RÍKAR SÝNINGAR MEÐ NÝJUM VERKUM SEM GÖMLUM, EFTIR INNLENDA
SEM ERLENDA LISTAMENN. ANNA JÓA, MYNDLISTARRÝNIR MORGUN-
BLAÐSINS, SKRIFAÐI UM ÚRVAL SÝNINGA OG HEFUR VALIÐ ÞAÐ BESTA.
ARFURINN TEKINN Á HÆLINN
AFBURÐA TÖK Á SÍGILDU EFNI
ALGER ÞRUSA!
SLAPPAÐ AF MEÐ SNUÐ OG BLEIU
ÁTÖK SEM ENDA MEÐ MORÐI
HRÍFANDI OG MARGRÆÐUR ÓÐUR
ÓHÁÐ RÖKLEGRI FRAMVINDU
KRAFTMIKIL OG ÖGRANDI SÝNING
ÁHRIFARÍKAR ÍMYNDIR
DRAGA FRAM ÓVÆNT VENSL