Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 1. J A N Ú A R 2 0 1 4 Stofnað 1913  17. tölublað  102. árgangur  VERÐBÓLGAN ER DÝRKEYPT ÞÁ GETUR FÓLK ANDAÐ AÐ SÉR HÁLENDINU TOYOTA KYNNIR NÝJAN OFURSPORTBÍL GAF SÉR ÚTGÁFU NÝRRAR PLÖTU Í AFMÆLISGJÖF BÍLAR SIGURÐUR FLOSASON 41GUÐNI OLGEIRSSON 10 Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við ræddum mjög opinskátt hver staðan er. Ég minnti að sjálfsögðu á að makríllinn er í miklu magni í ís- lenskri lögsögu og hefur verið það í nokkur ár,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra um fund sinn með Elisabeth Aspaker, sjávarútvegsráðherra Noregs, en ráðherrarnir hittust á ráðstefnu um norðurslóðir í Tromsø í gær. „Ég sagði að umgangast þyrfti makrílstofninn af ábyrgð. Ég sagði líka að það væri sérstök staða að Norðmenn virtust vera að einangr- ast í málinu og að það væri ekki gott fyrir málið í heild og síst fyrir Norð- menn,“ sagði Gunnar Bragi. Ólíklegt að samningar náist Samninganefndir Íslands, Fær- eyja, Noregs og ESB hefja þriggja daga fundalotu í London á morgun, þar sem reynt verður til þrautar að ná samningi í deilunni. Gunnar Bragi á ekki von á að samningar takist. „Ég er ekki mjög bjartsýnn, enda kom fram að Norðmenn eru mjög harðir í afstöðu sinni.“ Samkvæmt heimildum blaðsins var fundi samninganefnda Íslands, Færeyja, Noregs og ESB í London sl. föstudag frestað þannig að norsku samningamennirnir gætu leitað eftir nýju baklandi, eins og það var orðað. Norðmenn að einangrast  Utanríkisráðherra er svartsýnn um lausn makríldeilunnar í London í vikunni  Fundaði með sjávarútvegsráðherra Noregs  ESB telur Noreg hindra lausn MKröfur Norðmanna »14 Einleikur Norðmanna » Norðmenn þykja hafa leikið einleik í makríldeilunni að undanförnu. » Heimildarmenn Morgun- blaðsins hjá ESB herma að ná mætti samningum, ef ekki væri fyrir kröfur Norðmanna.  „Við gerum allt það sem við get- um til þess að búa okkur undir erf- iðan leik við Dani fyrir framan 14 þúsund stuðningsmenn þeirra. Auð- vitað förum við í hann til þess að vinna, annað kemur ekki til greina. Við munum leggja allt í sölurnar,“ sagði Aron Kristjánsson, landsliðs- þjálfari í handknattleik karla. Strax að loknum sigurleiknum við Makedóníu hóf hann undirbún- ing fyrir viðureignina við Dani sem hafa ekki tapað leik til þessa á Evr- ópumeistaramótinu. » Íþróttir „Munum leggja allt í sölurnar“ Morgunblaðið/Eva Björk Unnu Guðjón Valur Sigurðsson, Björgvin Páll Gústavsson og Rúnar Kárason fagna sigrinum á Makedóníu í gær. Margt forvitnilegt er að sjá í Kolaportinu þar sem ýmis varningur skiptir um hendur, nýr eða notaður. Í augum margra er þar falinn fjársjóður. Sjónarhornið sem þar er að finna er oft ótrúlegt þar sem vart þarf að hreyfa sig úr stað til að sjá inn í hin ýmsu skúmaskot með hjálp spegla. Skemmtilegur speglaleikur í Kolaportinu Morgunblaðið/Golli  Þjónusta við börn sem stríða við svo alvarlegar geð- og þroskarask- anir að þau geta ekki búið í for- eldrahúsum verður felld undir þjónustu við fatlaða, verði farið að tillögum nefndar á vegum velferð- arráðuneytisins. Í skýrslu nefndarinnar kemur fram að í Noregi búi börn, sem eiga í þessum vanda, í búsetukjarna sem rekinn er innan kerfis fyrir fatlað fólk. Þar er lögð áhersla á samfellu í aðstoð frá barnsaldri og fram á fullorðinsár. Í skýrslunni kemur m.a. fram að þjónusta á vegum barnaverndar- nefnda geti komið í veg fyrir að börnin fái faglega og sérhæfða þjónustu sem þau eiga rétt á. »16 Fái aðstoð innan kerfis fyrir fatlaða Fjórar fjölskyldur búa nú í nýjum hesthúsum í Almanna- dal ofan við Reykjavík. Félag hesthúsaeigenda í Al- mannadal hefur sótt um það hjá skipulagsyfirvöldum í Reykjavík að leyft verði að skrá lögheimili á efri hæðum hesthúsanna. Stjórn hestamannafélagsins Fáks hefur lýst yfir stuðningi við umsóknina en Almannadalur er á starfssvæði Fáks. Bjarni Jónsson húsasmíðameistari er formaður Fé- lags hesthúsaeigenda í Almannadal. Hann sagði að hest- húsin væru byggð samkvæmt nútímakröfum og bygg- ingarreglugerð. Þau eru steinsteypt, ýmist staðsteypt eða úr forsteyptum einingum og mjög vönduð. »6 Fluttu heimilin í hesthús  Hesthúsaeigendur vilja skrá lögheimili í Almannadal Morgunblaðið/Kristinn Almannadalur Fjórar fjölskyldur hafa flutt í hesthúsin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.