Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014 ● Hlutabréf í tölvuleikjarisanum Nin- tendo tóku dýfu á mörkuðum í Tókýó í gærmorgun og lækkuðu um 19% á tímabili. Þau tóku hins vegar aðeins við sér er leið á daginn og nam lækkunin við lok viðskipta 6,14%. Skýringin á lé- legri afkomu er m.a. lítil sala á leikja- tölvunni Wii U. Nánar á mbl.is Nintendo féll um 6,14%                                         !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +01-,+ +1,-2+ 3+-144 +.-2/+ +2-../ +32-32 +-+++3 +22-4. +,5-0. ++5-+3 +01-02 +15-13 3+-10, +.-205 +2-0-5 +32-54 +-++// +22-0+ +,2-/3 310-53/3 ++5-/ +0+-/4 +15-44 3+-+,2 +.-.,+ +2-0.. +32-00 +-++25 +2.-// +,2-.5 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Heldur hefur hægt á hagvexti í Kína og hefur hann ekki verið jafn lítill í fjórtán ár. Hagvöxtur þessa næststærsta hagkerfis heims mæld- ist 7,7% á fjórða ársfjórðungi í fyrra en var 7,8% á sama tímabili árið á undan. Þrátt fyrir minni hagvöxt þá er hann meiri en spá stjórnvalda hljóðaði upp á, en hún gerði ráð fyr- ir 7,5% hagvexti á síðasta fjórðungi ársins 2013. Kínversk stjórnvöld hafa gefið út þá yfirlýsingu, að þau vilji breyta hagvaxtarstefnu sinni á þann veg að hagvöxtur verði ekki lengur ein- vörðungu knúinn áfram af fjárfest- ingum, heldur af aukinni neyslu inn- anlands. David Wilder, sem stýrir skrif- stofu Market News International upplýsingaveitunnar í Peking, segir í samtali við Breska ríkisútvarpið, BBC, að þetta sé í takt við vænt- ingar stjórnvalda í Kína. Kínverska hagkerfið geti ekki vaxið endalaust og megi ekki vaxa jafn hratt og það hefur gert. Minni hagvöxtur í Kína sé af hinu góða. Li Huiyong, hagfræðingur hjá Shenyin & Wanguo Securities í Shanghaí, sagði í samtali við BBC: „Við höldum hagvaxtarspá okkar fyrir árið 2014 óbreyttri og spáum 7,5% hagvexti í ár.“ Ýmsir sérfræðingar efast um að þær tölur sem gerðar voru opinber- ar í Kína í gær, séu réttar. Þannig sagði Euan Sterling, fjárfestingar- stjóri hjá UK equities hjá Standard Life Investment við BBC: „Það er útbreidd skoðun meðal sérfræðinga að þessar opinberu tölur fái ekki staðist og að hagvöxtur í Kína á síð- asta ársfjórðungi 2013 hafi líklega verið 4 til 5%.“ Innlendir bankar hafa lánað háar fjárhæðir til þess að koma í veg fyr- ir niðursveiflu í Kína á sama tíma og samdráttur hefur ríkt í Evrópu og víðar. Gagnrýnendur telja að kín- verskir bankar, einkum þeir fjórir stærstu, hafi ekki beitt nægjanlegri varfærni við útlánin og að ekki fáist lánin öll endurgreidd. Minnsti hagvöxtur í Kína í fjórtán ár  Óvissa um endurheimtur lána kínverskra banka AFP Kína Kínverskir hafnarverkamenn að störfum við kínverskt gámaskip í höfninni í Qingdao, í Liaoning héraði í Norðaustur-Kína í gær. Hagvöxtur í Kína » Lengi vel mældist hagvöxtur í Kína í tveggja stafa tölu, en nú er öldin önnur, þar sem hagvöxtur á síðasta ársfjórð- ungi í fyrra er sagður hafa ver- ið 7,7%. » Ýmsir efast um að hinar op- inberu tölur stjórnvalda í Pek- íng séu réttar og telja að hag- vöxtur í fyrra hafi ekki verið meiri en 4 til 5%. Hluthafafundur Eikar fasteigna- félags hf. samþykkti sl. föstudag kaup félagsins á ákveðnum eignum SMI ehf. og öllu hlutafé í Landfest- um hf. Í tilkynningu til Kauphallarinnar frá Eik í gær kemur fram að fund- urinn samþykkti tillögu um kaupin og breytingar á samþykktum þar að lútandi. Annars vegar er veitt heimild til að auka hlutafé félagsins um allt að 580.000.000 hluti með útgáfu nýrra hluta, þar sem forgangsréttur ein- skorðast við núverandi hluthafa. Hins vegar er stjórn veitt heimild til að auka hlutafé félagins um allt að 1.300.000.000 hluti gegn kaupum á öllu hlutafé í Landfestum hf. Stjórn er einungis heimilt að nýta aukn- inguna í skiptum fyrir alla hluti í Landfestum og njóta hluthafar fé- lagsins því ekki forgangsréttar að aukningunni. Á fundinum lá fyrir skýrsla stjórn- ar um hlutafélög. Þar lýsti stjórn því yfir að engar verulegar breytingar hefðu orðið á efnahag félagsins frá birtum árshlutareikningi 30. júní 2013, utan að félagið hefur selt kaup- rétt að hlutafé eins leigutaka og fengið endurgreiðslu frá bankastofn- un vegna endurútreiknings á ólög- legu erlendu láni. Áhrif þessara tveggja þátta á rekstur félagsins eru jákvæð sem nemur 117 milljónum króna fyrir skatta. Jafnframt hefur félagið fjárfest í fasteignum fyrir 207 milljónir króna. Eykur hlutafé um 1,9 ma Morgunblaðið/Golli Í eignasafni Borgartún 21 er meðal fasteigna í eignasafni Eikar.  Eik kaupir Land- festar og hluta SMI Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Tökum að okkur trjáklippingar, trjáfellingar og stubbatætingu. Vandvirk og snögg þjónusta. Sími 571 2000 www.hreinirgardar.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.