Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014 Fáðu þetta heyrnartæki lánað í 7 daga - án skuldbindinga Bókaðutímaí fríaheyrnarmælingu ogfáðuAltatilprufu ívikutíma Sími5686880 PrófaðuALTAfráOticon Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880 | www.heyrnartækni.is | Góðheyrnerokkuröllummikilvæg.ALTAeruný hágæðaheyrnartæki fráOticonsemgeraþér kleift aðheyra skýrt ogáreynslulaust í öllumaðstæðum. ALTAheyrnartækinerualvegsjálfvirkoghægter að fáþau ímörgumútfærslum. Haraldur Sverr- isson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, hefur ákveðið að gefa kost á sér í próf- kjöri sjálfstæð- ismanna í Mos- fellsbæ þann 8. febrúar. Hann býður sig fram í 1. sæti listans. Haraldur hefur verið bæjarstjóri síðan haustið 2007 og leiddi lista sjálfstæðismanna í síðustu bæj- arstjórnarkosningum. Haraldur er viðskiptafræðingur að mennt. Áður en hann varð bæjarstjóri í Mos- fellsbæ var hann skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu. Í tilkynningu segir Haraldur m.a. að hann hafi fullan áhuga á að halda áfram starfi bæjarstjóra. Framboð í 1. sæti Reynir Sigur- björnsson rafvirki býður sig fram í 1.-4. sæti í forvali Samfylkingar- innar í Reykjavík 7. og 8. febrúar. „Þétting byggð- ar og notkun á innlendum orkugjöf- um í almannasamgöngum eru liðir í að bæta lífsgæði borganna, um- hverfisvernd og loftgæði eru það einnig. Því er það brýnt að OR minnki losun á gróðurhúsaloftteg- undum og fari ekki í ágengar fram- kvæmdir sem eingöngu eru fyrir stóriðju,“ segir m.a. í tilkynningu frá Reyni. Einnig vill hann að sett verði upp þeytivinda til að þurrka sundföt í Sundhöll Reykjavíkur. Framboð í 1.-4. sæti Elín Oddný Sig- urðardóttir gefur kost á sér í 2.-3. sæti á valfundi Vinstri grænna í Reykjavík sem fer fram 15. febrúar n.k. Elín er 34 ára gömul og er búsett í Háaleitishverfi ásamt eiginmanni sínum, Haraldi Vigni Sveinbjörns- syni tónlistarmanni, og tveimur börnum þeirra. Elín starfar sem verkefnastjóri atvinnu- og mennta- mála hjá Klúbbnum Geysi. Hún hef- ur lengi verið virk í starfi VG, bæði í Reykjavík og á landsvísu. Hún leggur áherslu á velferð, kvenfrelsi, félagslegt réttlæti, mannréttindi, friðarmál og nátt- úruvernd. Framboð í 2.-3. sæti Dóra Lind Pálm- arsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4.sæti í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Mosfellsbæ. Dóra Lind er 29 ára gömul og hefur búið í Mos- fellsbæ frá 16 ára aldri. Sambýlis- maður hennar er Maríus Þór Har- aldsson. Í lok árs 2010 útskrifaðist hún sem byggingatæknifræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og starfar hjá Eflu verkfræðistofu. Dóra Lind óskar eftir stuðningi Mosfellinga í 4. sætið til þess að leggja sitt af mörkum til að gera Mosfellsbæ að enn öflugra sam- félagi en það nú þegar er. Sækist eftir 4. sæti Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Vegagerðin skoðar nú breytingar á útfærslu gatnamóta austarlega á nýjum Álftanesvegi sem nú er verið að leggja. Vænst er að botn komist í málið á næstu dögum en sú biðstaða sem málið er í nú hefur valdið töf- um á framkvæmdinni. „Okkur mið- ar vel áfram því alveg frá áramót- um hefur viðrað vel fyrir alla jarðvinnu. Hugmyndir um breyting- ar á þessum gatnamótum setja hins vegar strik í reikninginn og hafa haft óhagræði í för með sér,“ segir Sigurður Ragnarsson framkvæmda- stjóri mannvirkjasviðs ÍAV. Með bíla og búkollur Nýi Álftanesvegurinn, það er frá Engidal í Garðabæ út að gatnamót- unum að Bessastöðum, verður alls um fjórir kílómetrar. Þar af eru 1,5 km. í Garðahrauni, sem aðrir kalla raunar Gálgahraun. Starfsmenn ÍAV eru nú að vinna sig í gegnum hraunið með sprengingum, en síðan er efninu ýtt til og jarðvegur flutt til innan svæðis og á brott með vörubílum og búkollum. Þá er verið að slá upp mótum vegna undir- ganga, en þrenn slík verða á leið- inni. Um tuttugu manns vinna við gerð hins nýja Álftanesvegar. Í hverju rúmi er valinn maður og margir þaulvanir í verkum sem þessum. Framkvæmdum á að ljúka í sept- ember á næsta ári og fyrir verkið tekur ÍAV um 750 millj. kr. sam- kvæmt tilboði sem gengið var að. Tafir á verkinu vegna breytinga á torgi  Grafið í Garðahrauni  Ágætlega hefur miðað við gerð nýja Álftanesvegarins frá áramótum  Um 20 manns frá ÍAV sinna framkvæmdum  Slá upp fyrir fyrstu undirgöngunum af þrennum á leiðinni Morgunblaðið/Kristinn Framkvæmdir Vinnuvélar við gerð nýs Álftanesvegar í gær. Nú eru ÍAV-menn að sprengja sig í gegnum hraunið. Gunnsteinn Ólafsson, formaður Hraunavina, hefur verið kall- aður fyrir héraðsdóm á þriðju- dag í næstu viku. Hann var tví- vegis handtekinn í aðgerðum í Gálgahrauni 21. október. Er nú ákærður vegna þess en sjálfur segir hann kæruefnin að hluta til staðlausa stafi. „Lögreglan og ákæruvaldið ætla greinilega að ganga hér fram af fyllstu hörku. Það er engu líkara en ætlunin sé að fæla fólk frá því að láta sig nátt- úruvernd skipta. Þetta hins veg- ar eflir okkur í baráttunni,“ seg- ir Gunnsteinn. Bætir við að Hraunvinir ætli að koma saman í kvöld til skrafs og ráðagerða vegna dómskvaðningarinnar. Fyllsta harka HRAUNAVINIR FYRIR DÓM Theódór Krist- jánsson, aðstoð- aryfirlög- regluþjónn og varabæjarfulltrúi, sækist eftir 5. sæti í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Mosfellsbæ. „Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að starfa að bæj- armálum í Mosfellsbæ undanfarin tvö kjörtímabil. Það er óhætt að segja að þetta hafi verið bæði skemmtilegur og ekki síður lær- dómsríkur tími. Mig langar til að taka áfram þátt í uppbyggingu í ört vaxandi sveitarfélagi og óska eftir stuðningi Mosfellinga til þess,“ seg- ir Theódór m.a. í tilkynningu. Sækist eftir 5. sæti Hafsteinn Pálsson, bæjarfulltrúi, gef- ur kost á sér í 2. til 3. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ. Hafsteinn er bæjarfulltrúi og er jafnframt í bæjarráði og fræðslu- nefnd. Á kjörtímabilinu hefur hann meðal annars verið forseti bæj- arstjórnar, formaður bæjarráðs og formaður fræðslunefndar. Þá er hann í stjórn Íþrótta- og ólympíu- sambands Íslands. Hafsteinn er byggingarverk- fræðingur að mennt og starfar í umhverfis- og auðlindaráðuneyt- inu. Hann er kvæntur Láru Torfa- dóttur, kennara,og eiga þau þrjú börn. Framboð í 2.-3. sæti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.