Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014 Síðasta árið hafa orðið kaflaskil og í raun er ég önnur mann-eskja. Ég sat í nokkur ár á rúmstokk veikrar dóttur minnarog var að brenna út á líkama og sál, en svo tók ég mér tak. Fór í ræktina og æfi grimmt. Er búin að ná af mér 40 kg og stefni á keppni í fitness í haust,“ segir Ragna Erlendsdóttir, sem er 34 ára í dag. Ragna, sem er einstæð móðir þriggja dætra, er mörgum kunn sakir baráttu hennar fyrir lífi og heilsu dóttur sinnar, Ellu Dísar. Hún veiktist alvarlega fyrir nokkrum árum af ástæðum sem ekki voru ljósar. Ragna neitaði að gefast upp þótt á brattann væri að sækja. Ekki er langt síðan ljóst varð að orsök veikindanna var skort- ur á B-vítamíni. Nú er Ellu Dís fenginn réttur skammtur þess svo hún er öll að braggast. „Ella hefur verið bundin hjólastól og með öndunarvél. En batamerkin sjást hvarvetna. Nú er bara að sjá hvernig tekst að vinna úr þeim skaða sem orðið hefur,“ segir Ragna. „Svona í tilefni dagsins ætla ég út að borða með vinkonum mínum. Það er svo margt til að gleðjast yfir um þessa mundir,“ segir Ragna sem kveðst eiga fjölmörg áhugamál. Sér finnist til dæmis gaman að lesa, dansa og ekki síst að stunda útivist með dætrum sínum. Þá sé ljómandi gott að búa í Norðlingaholtinu í Reykjavík – þar sem nátt- úruperlur og fallegar gönguleiðir séu allt um kring. sbs@mbl.is Ragna Erlendsdóttir er 34 ára í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Móðurást Ragna Erlendsdóttir og dóttirin Ella Dís saman nýverið. Sú stutta er öll að braggast og móðirin kveðst sem ný manneskja. Það er svo margt til að gleðjast yfir Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Vinkonurnar Sóley Eva Magn- úsdóttir og Katla Snædís Sig- urðardóttir (báðar 9 ára) héldu tombólu við verslun 10-11 í Kaup- angi á Akureyri. Þær söfnuðu 2.313 krónum sem þær styrktu Rauða krossinn með. Hlutavelta Sauðárkrókur Margrét Katrín fædd- ist 18. apríl kl. 0.00. Hún vó 4.080 g og var 55 cm löng. Foreldrar hennar eru Linda Jónsdóttir og Pétur Grét- arsson. Nýir borgarar Reykjavík Kara Lilja fæddist 27. mars kl. 5.51. Hún vó 3.440 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Elsa A. Ser- renho og Daði Freyr Guðmundsson. S vavar Guðni fæddist við Bergþórugötuna í Reykjavík 21.1. 1934 og ólst þar upp. Hann var í Barnaskóla Austurbæjar, lauk sveinsprófi í múrverki frá Iðn- skólanum í Reykjavík 1967 en meist- ari hans var Páll Melsteð Ólafsson múrarameistari og stjúpfaðir hans. Svavar stundaði síðan nám við Meistaraskólann og lauk meist- araprófi í múrverki. Þá lauk hann prófi sem tækniteiknari frá Teikn- araskóla Iðnskólans. Hann stundaði nám við Listaskóla Finns Jónssonar og Jóhanns Briem og lauk prófum til kennsluréttinda frá HÍ. Þá var hann við nám í Virginíuháskóla í matsgerð og áætlunargerð vegna viðhalds og viðgerða húsa 1980-81 og lauk námi sem meðferðarfulltrúi fyrir áfengis- og eiturlyfjasjúklinga við Kaliforn- íuháskóla í Los Angeles 1985. Svavar var húsvörður í Fram- heimilinu á unglingsárunum en fór síðan að vinna við múrverk hjá Páli, stjúpföður sínum, en það varð hans meginstarf yfir starfsævina. Hann Svavar Guðni Svavarsson múrarameistari – 80 ára Með þremur barnabörnum Svavar Guðni með barnabörnunum Brynhildi Evu, Halldóri Hilmi og Axel Harry. Múrverk og myndlist Glæsilegur hópur Öll barnabörn Svavars Guðna fyrir u.þ.b. tveimur árum. 20-50% Vaxtalausar greiðslur í boði afsláttur af völdum v örum ÚTSALA! Glerárgata 7, Akureyri, sími 462 1415 www.tonabudin.is Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340 www.hljodfaerahusid.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.