Morgunblaðið - 21.01.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
hring. Svo er þetta tekið upp næsta
dag og brauðið er algjört lostæti
með smjöri,“ segir Narfi.
Matargerð af þessum toga segir
Nafi lengi hafa verið stundaða á
Laugarvatni og sé hún nánast hluti
af menningarhefð staðarins. „Ann-
ars er þetta ekkert nýtt fyrir mér,“
segir Narfi sem er frá bænum Deild-
artungu í Reykholtsdal í Borg-
arfirði. Í túnfætinum þar er vatns-
mesti hver Evrópu og í þeim
suðupotti er yfirbyggt hús sem not-
að er við rúgbrauðsbakstur. „Í minni
sveit er jarðhiti víða og rúgbrauð
bakað í hverum á fjölda bæja.“
Að sögn Narfa rokkar fjöldi rúg-
brauðsgesta dag frá degi. Í gær voru
þeir um tuttugu en þegar best lætur
á góðum degi eru þeir allt að 100.
Byrjar dagskrá gestanna þá á því að
fylgjast með bakstri í hvernum, því
næst er bragað á brauðinu góða og
svo farið í böð og gufu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Veisla Útlendingarnir gera rúgbrauðinu góð skil sem er snarpheitt svo íslenska smjörið á því bráðnar fljótt.
Rúgbrauð aðdráttarafl
meðal ferðamanna
Hverabakað brauð vinsælt að Laugarvatni 100 gráður
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bakari Narfi Jónsson með eldhúspottinn á skóflublaði. Eftir sólarhring í
100 gráðu hverahita er brauðið tilbúið á borð og þykir herramannsmatur.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Útlendingunum finnst þetta mjög
óvenjulegt. Samkvæmt ferðalýsing-
unni vita þeir raunar hvað stendur
til. Jarðhiti er þeim þó svo framandi
að þeir geta ómögulega framkallað í
huganum mynd af því hvernig brauð
er bakað í heitum hver,“ segir Narfi
Jónsson að Laugarvatni. Hann er
vaktstjóri í Fontana-gufubaðinu sem
er vinsæll viðkomustaður ferðafólks.
Má þar nefna fólk erlendis frá sem
fer Gullna hringinn, það er á Þing-
velli, að Geysi og Gullfossi. Í reisum
sem Kynnisferðir gera út á þessari
leið stendur fólki sá kaupauki til
boða að koma við í gufunni. Þá er
forsmekkurinn rúgbrauð sem bakað
er í sjóðheitum hverum á bökkum
Laugarvatns, það er beint niður af
hinum sögufræga héraðsskóla.
Rúgur, hveiti, salt og sykur
„Þetta er sáraeinföld uppskrift.
Maður setur saman rúg, hveiti, syk-
ur, salt og lyftduft og mjólk, hrærir
þessu saman og setur í venjulegan
eldhúspott. Svo setur maður pottinn
í sandinn í flæðarmálinu, mokar
sandi yfir og svo lætur þetta svo
malla í hundrað gráðu hita í sólar-
Bæjarlind 4, Kópavogur S: 554 6800
Njarðarnesi 9, Akureyri S: 466 3600 www.vidd.is
Öðruvísi flísar
Skeljungur hefur ráðist í breytingar á
bensínstöð Orkunnar við Miklubraut
suður, Kringlumegin, í Reykjavík.
Opna á undir merkjum Shell, um leið
og 10-11 opnar litla verslun og veit-
ingasölu í fyrrverandi bensínstöðinni
sjálfri.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skelj-
ungs, segir forráðamenn 10-11 hafa
sýnt áhuga á staðsetningunni en ekki
standi til að gera samskonar breyt-
ingar norðan við Miklubrautina, þar
sem Orkan er til staðar.
„Við höfum verið í samstarfi við 10-
11 á Dalvegi, sem hefur gengið vel,
þannig að við vorum til í þetta. Um
leið langaði okkur að prófa að breyta
þessu í Shell, sem hefur verið í mikilli
sókn. Við höfum oft breytt úr Shell í
Orkuna en aldrei í hina áttina og lang-
ar að prófa þetta,“ segir Einar Örn en
svonefnd „útimannaþjónusta“ verður
á bensínstöðinni, sem er nútímalegri
útgáfa af þjónustu sem „bensíntittir“
veittu áður. bjb@mbl.is
Veitingasala 10-11 á bensín-
stöð Shell við Miklubraut
Stöð Orkunnar
breytt sunnan megin
Morgunblaðið/Þórður
Bensínstöð Til stendur að opna verslun 10-11 við bensínstöð Shell.
Rennsli Skaftár við Sveinstind hefur
verið stöðugt síðan um hádegi í gær
þegar hlaupið náði hámarki þar,
samkvæmt upplýsingum frá Veður-
stofunni. Talið er að hlaupið sem
hófst á sunnudaginn komi úr minni
jarðhitakatlinum í Vatnajökli, hinum
vestari, en ekki er hægt að útiloka
að sá stærri, eystri ketillinn, fylgi á
eftir með tilheyrandi stórflóði.
Nokkuð er um liðið síðan hann hljóp
síðast.
„Eins og staðan er núna er þetta
lítið hlaup og rennslið eins og oft er
á sumrin og hlaupið ætti ekki að
valda neinu tjóni í byggð,“ segir í til-
kynningu frá Veðurstofunni. Náið er
þó áfram fylgst með framvindu
hlaupsins.
Til stóð að fljúga í þyrlu yfir
Skaftárkatla í gær og kanna aðstæð-
ur, en vegna skýjafars reyndist það
ekki hægt. Verður það væntanlega
gert í dag.
Stærsti hlutinn í Eldvatn
Stærsti hluti hlaupsins fer í Eld-
vatn og þaðan í Kúðafljót en minni
hlutinn fer í Skaftá við Kirkjubæjar-
klaustur. Megn brennisteinslykt er
af ánni en magn brennisteinsvetnis
getur verið hættulegt fólki nærri
upptökum hlaupsins. Getur það
skaðað slímhúð í augum og öndunar-
vegi. Eru menn beðnir að sýna varð-
úð á svæðinu.
Kortið að ofan sýnir uppruna
hlaupsins, þær ár sem verða fyrir
áhrifum vegna þess og staðsetningu
rennslistöðva.
Hlaupið í Skaftá
hefur reynst lítið
Óvissa um eystri ketilinn í jöklinum
Vatnasvið Skaftár
Mýrdalsjökull
VATNAJÖKULL
Vík
Háabunga
Síðujökull
Eystri
Skaftárketill
Vestari
Skaftárketill
La
ng
isj
ór
Þó
ris
va
tn
Torfajökull
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Kúðafljót
Sk
af
tá
Kirkjubæjarklaustur
Skaf
tá
Skaftá
Eldvatn
Skaftá
Hverfisfljót