Morgunblaðið - 21.01.2014, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
3900
Stórlækkað
verð á útsölu-
vörum
OUTLET-SKÓR | FISKISLÓÐ 75 | 101 REYKJAVÍK
Opið: mán-fös 13-18 & lau 12-16 sími: 514 4407
Stráka skór
St. 27-35
Herra skór
St. 40-46
Dömu kuldaskór
St. 36–41
5900
Dömu æfingaskór
St. 36–41
6900
7900
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fjórar fjölskyldur búa nú í nýjum
hesthúsum í Almannadal ofan við
Reykjavík. Félag hesthúsaeigenda í
Almannadal hefur sótt um það hjá
skipulagsyfirvöldum í Reykjavík að
leyft verði að skrá lögheimili á efri
hæðum hesthúsanna. Stjórn Hesta-
mannafélagsins Fáks hefur lýst yfir
stuðningi við umsóknina en Al-
mannadalur er á starfssvæði Fáks.
Bjarni Jónsson húsasmíðameist-
ari er formaður Félags hesthúsaeig-
enda í Almannadal. Hann sagði að
hesthúsin séu byggð samkvæmt nú-
tíma kröfum og byggingarreglu-
gerð. Þau eru steinsteypt, ýmist
staðsteypt eða úr forsteyptum ein-
ingum.
„Það er miklu meira lagt í þessi
hús en nokkurn tíma í gripahús,“
sagði Bjarni. „Það voru gerðar kröf-
ur um brunavarnir eins og um at-
vinnuhúsnæði væri að ræða. Húsin
eru brunahólfuð á milli hæða. Kröf-
urnar eru langt umfram það sem al-
mennt er gert til íbúðarhúsa.“
Bjarni sagði að húsin séu á einni
til tveimur hæðum með lofti.
Mönnum fannst betra að steypa
plötuna á milli hæða vegna eld-
varna og þá opnaðist möguleiki
á að nýta efri hæðina. Hita-
veita er lögð í húsin og eru þau
með gólfhitun á báðum hæðum.
Einnig eru húsin tengd frá-
veitukerfi borgarinnar,
bæði skólp og drenvatn.
Bjarni á hlut í einu hús-
inu í fyrri áfanga. Efri
Mannréttindadómstóll Evrópu hef-
ur vísaði frá máli Baldurs Guð-
laugssonar gegn Íslandi. Þetta
staðfestir Karl Axelsson, lögmaður
Baldurs, við mbl.is. Baldur taldi að
í dómi Hæstaréttar yfir honum
hafi í veigamiklum atriðum verið
brotinn á honum réttur í skilningi
ákvæða Mannréttindasáttmála
Evrópu.
Hæstiréttur dæmdi Baldur í
tveggja ára fangelsi vegna inn-
herjasvika og brota í opinberu
starfi, en hann seldi hlutabréf í
Landsbankanum 17. og 18. sept-
ember 2008 þegar hann var ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu
og sat í samráðshópi íslenskra
stjórnvalda um fjármálastöðug-
leika.
Kæran til MDE var í fimm lið-
um. Í fyrsta lagi taldi Baldur að
brotið hafi verið gegn rétti hans til
að þurfa ekki að sæta endurtekinni
málsmeðferð vegna refsiverðrar
háttsemi en sá réttur sé sérstak-
lega varinn í viðauka við Mann-
réttindasáttmála Evrópu.
Í öðru lagi taldi Baldur að réttur
til réttlátrar málsmeðferðar hafi
ekki verið virtur þar sem hann var
sakfelldur fyrir annað en hann var
ákærður fyrir. Baldur var ákærður
fyrir að hafa verið annar innherji í
skilningi laga en sakfelldur fyrir
að hafa verið tímabundinn inn-
herji.
Í þriðja lagi taldi Baldur að rétt-
urinn til réttlátrar málsmeðferðar
hafi ekki verið virtur þar sem
Hæstiréttur tók ekki afstöðu til
ýmissa veigamikilla atriða í vörn
Baldurs, þar með talins þess að
hvorki Landsbankinn né Fjármála-
eftirlitið töldu þær upplýsingar
sem Baldur var dæmdur fyrir að
hafa búið yfir vera innherjaupplýs-
ingar.
Í fjórða lagi taldi Baldur að rétt-
urinn til réttlátrar málsmeðferðar
hafi ekki verið virtur þar sem
sönnunarbyrði í málinu hafi í
reynd verið snúið við og hann því
ekki notið þeirra grundvallarrétt-
inda að teljast saklaus uns sekt
væri sönnuð.
Í fimmta dagi taldi Baldur að
réttur sinn hafi ekki verið virtur
þar sem verulegur vafi léki á því
að mál hans hafi í raun notið óvil-
hallrar meðferðar fyrir dómi.
andri@mbl.is
Dómstóllinn vísaði
máli Baldurs frá
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Helsti kostur á flutningi raforku um
sæstreng er aukið orkuöryggi, hvort
heldur sem er vegna bilana eða
vatnsskorts. Hefði Landsvirkjun
verið komin með sæstreng milli Ís-
lands og Evrópu þá er líklegt að fyr-
irtækið hefði ekki þurft að grípa til
orkuskerðingar til stóriðju hér á
landi vegna lélegs vatnsbúskapar.
Hörður Arnarson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir þessa stöðu
vissulega geta komið upp en það
ráðist þó af þeim samningum sem
gerðir yrðu vegna mögulegs sæ-
strengs.
Hann bendir á að orkugetan
sveiflist jafnan í raforkukerfi sem
byggi á vatnsorku. Landsvirkjun
hafi haft umframorku nokkur und-
anfarin ár en síðan geti komið upp
óvenjulegt veðurfar, líkt og nú, þar
sem skerða þarf orkuna lítillega
vegna lakari stöðu miðlunarlóna
Landsvirkjunar.
„Sala á raforku um sæstreng fer
fram með öðrum
hætti þar sem
orkan er flutt í
báðar áttir. Við-
skiptavinurinn er
sveigjanlegri,“
segir Hörður og
tekur dæmi af
Norðmönnum
sem hafi árin
2010 og 2011 lent
í þeirri stöðu að
nota sæstrengstengingar við önnur
lönd til að flytja inn raforku til að
koma í veg fyrir skerta afhendingu
til stórnotenda. Hörður segir Norð-
menn telja þetta stærsta kostinn við
sæstrengina, og þar sem þeir byggi
sitt kerfi fyrst og fremst á vatnsork-
unni þá geti hið sama átt við hér á
landi.
„Með sæstreng kæmi sá valkostur
að nýta orkukerfið betur, auka af-
hendingaröryggi og minnka sóun
með því að fá meiri sveigjanleika í
afhendinguna. Núverandi viðskipta-
vinir þurfa helst alla orkuna alltaf,“
segir Hörður ennfremur.
Aukið öryggi með sæstreng
Sæstrengur gæti komið í veg fyrir orkuskerðingu Landsvirkjunar til stóriðju
Orkan flutt í báðar áttir og viðskiptin sveigjanlegri Góð reynsla Norðmanna
Hörður
Arnarson
Úthlutað var 15 húsum með 48 eignarhlutum í fyrsta áfanga Almanna-
dals árið 2006. Gert var ráð fyrir að í húsunum rúmuðust samtals 532
hestar. Eignarhlutarnir voru frá sex hesta húsi til 42 hesta húss. Öll húsin
voru á tveimur hæðum samkvæmt skipulagi. Bygging níu húsa af þess-
um 15 hófst á árunum 2007 til 2008.
Vorið 2008 var úthlutað í öðrum áfanga í Almannadal 28 húsum
fyrir 782 hesta. Áætlað er að þau skiptist í um 60 eignarhluta, en eftir
er að hanna húsin. Byrjað var á grunnum tveggja húsa úr öðrum
áfanga árið 2011, en framkvæmdir hafa legið niðri síðan.
Nú er byrjað að nýta tíu eignarhluta sem eru í sjö hest-
húsum úr fyrsta áfanga byggðarinnar í Almannadal, sam-
kvæmt bréfi Félags hesthúsaeigenda í Almannadal til
skipulagsyfirvalda.
108 eignarhlutum úthlutað
NÝ HESTHÚSABYGGÐ ER AÐ RÍSA Í ALMANNADAL Í REYKJAVÍK
Bjarni
Jónsson
hæðin þar er um 120 fermetrar og
hún er með sérinngang. Hann á eftir
að innrétta hana og sagði að þar
gæti vel verið íbúð.
Bjarni sagði að Reykjavíkurborg
sé búin að leggja tugi milljóna í
gatnagerð og lagnir á svæðinu. Hún
fái ekki nema brot af væntum
tekjum, miðað við ef hverfið væri
fullbyggt, vegna þess hvað bygging-
arnar eru skammt á veg komnar.
„Fólk er farið að nota sum húsin
meðan önnur eru ekki orðin fok-
held,“ sagði Bjarni. Hann sagði að í
hesthúsunum búi nú fjórar fjöl-
skyldur. Þær hafi lent í kreppunni
eins og aðrir og tekið þennan kost.
„Þeim líkar vel að búa þarna, þó það
hafi ekki verið ætlunin í byrjun.
Þetta er eina fasteignin sem fólkið á
í Reykjavík. Það ákvað að flytja
þangað af ýmsum ástæðum. Hús-
næðið hjá þessu fólki uppfyllir allt
sem þarf til að búa í því og stenst all-
ar kröfur gagnvart eldvörnum og
allt það.“
Bjarni sagði að fólkið óski eftir því
að fá að flytja lögheimili sitt í hest-
húsin, án þess að kalla eftir meiri
þjónustu frá Reykjavíkurborg en
þegar er veitt. Nú annast einkaað-
ilar t.d. sorphirðu á svæðinu.
Íbúðarrétturinn verði eingöngu
bundinn við efri hæðir húsanna. Fá-
ist hann samþykktur telur Bjarni að
fleiri geti hugsað sér að fara í bygg-
ingarframkvæmdir í hverfinu, enda
aukist þá lánshæfi húsanna. Við það
muni tekjur borgarinnar af hverfinu
aukast.
Morgunblaðið/Kristinn
Almannadalur Hesthúsin eru byggð eftir ströngustu kröfum. Efri hæðin gefur kost á fjölskyldurými sem sumir
hafa innréttað sem íbúð. Eigendur vilja geta skráð lögheimili sín í hesthúsunum og hafa sótt um það til borgarinnar.
Fjórar fjölskyldur
búa í hesthúsum
Ný hesthús í Almannadal með íbúðarrými á efri hæð
Áform um sæstreng milli Ís-
lands og Evrópu eru enn í for-
athugun hjá Landsvirkjun. Al-
þingi er með til umfjöllunar
skýrslu ráðgjafahóps um efnið
og Hörður Arnarson segir að
forathugunin geti tekið nokkur
ár til viðbótar. Vanda þurfi til
verka og m.a. þurfi að skoða já-
kvæðu áhrifin í slökum vatns-
árum, líkt og nú eru.
Hörður telur allt að þrjú ár
geta liðið þar til fyrstu ákvarð-
anir verði teknar um verkefnið.
Til umfjöll-
unar á þingi
LAGNING SÆSTRENGS