Morgunblaðið - 21.01.2014, Page 11
Landmannalaugar
LandmannahellirÁfangagil
Leirubakki
Rjúpnavellir
Loftmyndir ehf.
Hellismannaleið (81 km)
Torfajökull
Þjórsá
Hekla
Búrfell
Þórisvatn
16,5 km
22,5 km
25 km 18,5 km
(Laugavegur)
krók til að komast að fallegum
stað. Það eru nokkrir staðir á leið-
inni sem okkur finnst nauðsynlegt
að fólk skoði og njóti. Eftir að við
lukum við að stika þessa leið og
eftir að hafa gengið þetta svona
oft, þá finnst mér heildin svo
áhugaverð, það er skemmtilegt að
ganga í gegnum jarðsöguna, Ís-
landssöguna, útilegumannasögur,
þjóðsögurnar og sögur úr smala-
mennskum. Ég legg mig fram um
að varpa ljósi á það allt saman í
þessum ferðum mínum. Það er
gaman að fá að kynnast gömlu
fólki sem bjó þarna, eldgömlum
eldgosum og ísöldinni,“ segir
Guðni og bætir við að til standi að
gefa út göngubækling um þetta
svæði, fyrir Ferðamannafélag ís-
lands..
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
Bættu LGG + við daglegan morgunverð
fjölskyldunnar og styrktu ónæmiskerfið.
Nú fylgja frítt með
Þú getur lesið meira um LGG+ á
ms.is/lgg
+ stuðlar að vellíðan
+ styrkir varnir líkamans
+ bætir meltinguna og
kemur jafnvægi á hana
+ eykur mótstöðuafl
+ hentar fólki á öllum aldri
+ er bragðgóð næring
Eiginleikar LGG+
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
-
12
-0
01
4
A
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
--
12
-0
01
4
Fyrir fulla virkni
Ein á dag
2
Þegar spurt er í hverju heilbrigði fel-
ist er ekki hlaupið að því að svara. Á
vefsíðunni www.hamingjulindin.is
eða á Facebooksíðu hennar er að
finna ýmiss konar fróðleik og vanga-
veltur um það í hverju heilbrigði fel-
ist. Fjallað er um streitu, sykursýki
og fleira sem getur haft áhrif á heil-
brigði fólks og ráð til að bæta heils-
una ef kvillar eru til staðar.
Vefsíðan www.facebook.com/liljapetra
Morgunblaðið/RAX
Vatn Það er skoðun margra að vatnið hreinsi auk þess að hafa heilunarmátt.
Heilsu- og hamingjulind
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Vefsíðan hlaup.is stendur fyrir vali á
langhlaupara ársins, bæði í karla- og
kvennaflokki. Þá er einkum verið að
horfa til afreka í götu- og utanvega-
hlaupum eða annarri keppni í lang-
hlaupum. Á síðunni kemur fram að
afrek geti verið afstætt, það getur
verið góður tími miðað við aldur,
óvenjulegt verkefni, þrautseigja og
kjarkur eða hvaðeina sem hægt er að
meta til viðurkenningar. Að þessu
sinni eru 7 konur og 7 karlar sem
mynda lista hlaupara sem kjósa á
um: Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Ebba
Særún Brynjarsdóttir, Elísabet Mar-
geirsdóttir, Helen Ólafsdóttir, María
Kristín Gröndal, Martha Ernstsdóttir,
Signý Einarsdóttir, Arnar Pétursson,
Ármann Eydal Albertsson, Friðleifur
K. Friðleifsson, Kári Steinn Karlsson,
Stefán Gíslason, Stefán Guðmunds-
son og Þorbergur Ingi Jónsson.
Hægt verður að kjósa til kl. 24 mið-
vikudaginn 22. janúar og verðlauna-
afhending verður næsta laugardag.
Endilega...
...kjósið lang-
hlaupara ársins
Morgunblaðið/Ómar
Tilnefnd Arndís Ýr Hafþórsdóttir.
Skessan hljóp út í Þjórsá og þá varð til fossinn Tröllkonuhlaup
Óárennileg Brian Pilkington hefur
teiknað íslensk tröll manna best.
Tröllskessan vildi éta
Gissur bónda
Guðni segir að ein þekktasta
þjóðsagan af þessu svæði sé af
Gissuri á Lækjarbotnum, bónda í
Landsveitinni. „Ég segi alltaf
þessa sögu þegar við göngum á
milli Búrfells og Bjólfells á
Hellismannaleiðinni. Þar bjuggu
tröllskessur og sú sem bjó í Búr-
felli vildi éta Gissur bónda, og
kallaði hún í systur sína í Bjól-
felli: „Systir góð, viltu lána mér
pott?“ En hún vildi það ekki af
því hún vildi hafa Gissur á lífi og
hafa af honum önnur afnot.
Bóndinn heyrði þegar skessan
kom hlaupandi pottlaus í átt til
hans, hún hljóp yfir Þjórsá og
þar varð til Tröllkonuhlaup, foss
í ánni. Hún kastaði grjóti út í ána
til að geta stiklað yfir. Hún elti
síðan Gissur niður í Landsveit, al-
veg niður í Klofa, en hann reið
hesti, því hann var að koma úr
Veiðivötnum með fullar klyfjar af
fiski. Hann reið í fleng til að
komast undan flagðinu og karl-
arnir í Klofa sáu til hans og
hlupu út í kirkju og hringdu
kirkjuklukkunum til varnar. Í
þann mund sem Gissur ríður inn
fyrir kirkjugarðinn þá kastaði
skessan öxi á eftir honum en hún
kom í lærið á hestinum sem datt
niður dauður. Gissur náði að
bjarga sér inn í kirkju og slapp
við skrekkinn. Skessan hljóp til
baka, upp í Tröllkonugil, sem
einnig er gengið á Hellismanna-
leiðinni, en þar sprakk hún. Og
þar er hún steingerð enn í dag.“
Systir hennar í Bjólfelli sem eftir
lifði var full af harmi við fráfall
systur sinnar, hún flutti úr Bjól-
felli og settist að í helli í Tröll-
konugili. Þetta var góð skessa
sem gaf ferðamönnum sem áttu
leið um ævinlega hafragraut.“
Torfi í Klofa flúði til fjalla
Sagan af höfðingjanum Torfa í
Klofa, er sönn saga, en hann var
uppi á fimmtándu öld og flúði til
fjalla með allt sitt fólk þegar
Svarti dauði geisaði. Sögur
herma að hann hafi flutt í grös-
uga dali inn af Landmannalaug-
um, rétt hjá Torfajökli, sem fékk
nafn sitt einmitt frá þessum
bónda.
Bændur þekktu þessa sögu og
þegar plágan var liðin hjá fluttu
flestir aftur til byggða, en sumir
urði eftir innfrá. Fyrir vikið
trúðu menn því í margar aldir að
á þessu svæði væru útilegumenn.
Bændur voru svo hræddir við
þessa útilegumenn að þeir smöl-
uðu ekki þetta svæði í margar
aldir, ekki fyrr en um 1850. Þá
fundust kindabein um allt, enda
varð féð úti sem ekki var smalað
heim.“
Guðni verður með leiðsögn og farar-
stjórn í gönguferð um Hellismanna-
leiðina í sumar, snemma í ágúst. Allt
að 20 manns geta komist í ferðina,
sem er kjörin fyrir íslenskan göngu-
hóp eða nokkra smærri hópa.
Gengið verður frá Leirubakka í
Landmannalaugar á fjórum dögum og
fimmta daginn er aukadagur hugs-
aður í göngu að Fjallabaki nálægt
Landmannahelli. Gist verður í góðum skálum á Rjúpnavöllum, Áfangagili
og þrjár nætur í Landmannahelli.
Laugardagur 2. ágúst: Keyrt að Heklusetrinu á Leirubakka í Landsveit,
110 km frá Reykjavík. Hægt að byrja á kaffi á Leirubakka með skoðun á
Heklusetri. Gengið að Rjúpnavöllum og gist þar í góðum skála með raf-
magni. 25. km. Sunnudagur 3. ágúst: Gengið í Áfangagil. Gist þar í upp-
byggðum gangnamannakofa. 18,5 km. Mánudagur 4. ágúst: Gengið í
Landmannahelli, gist í Höfða. 22 km. Þriðjudagur 5. ágúst: Gengið í Land-
mannalaugar. Bað í lauginni eftir göngu. Skutl til baka í Höfða við Land-
mannahelli. 16,5. km. Miðvikudagur 6. ágúst: Hvíldardagur/göngudagur
að fjallabaki. Skipt liði. Hægt að veiða silung í vötnum, ganga á Löðmund
eða ganga á vit ævintýra í nágrenninu. Gist í Höfða. Fimmtudagur 7.
ágúst: Heimferð. Áhugasamir geta sent Guðna skilaboð á netfanginu:
gudni.olgeirsson@gmail.com.
HELLISMANNALEIÐ
Gengið í sumar með Guðna