Morgunblaðið - 21.01.2014, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ
A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is
Tæki til vetrarþjónustu
Stofnað 1957
sjóður og önnur lánafyrirtæki með
leyfi til að taka við innlánum.
Þannig nær skatturinn meðal ann-
ars til greiðslukortafyrirtækjanna
Valitors og Borgunar. Án frískulda-
marksins hefðu félögin, en skuldir
þeirra námu 35 milljörðum og 18,5
milljörðum í árslok 2012, þurft að
öðrum kosti að greiða 132 milljónir
og 70 milljónir við hækkun banka-
skattins. Hagnaður fyrirtækjanna á
árinu 2012 nam 808 milljónum króna
í tilfelli Valitor en 658 milljónir hjá
Borgun – og hefði greiðsla á banka-
skattinum því numið 11-16% af
hagnaði. Með 50 milljarða króna frí-
skuldamarkinu þurfa félögin aftur á
móti ekki að greiða neinn skatt.
Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing
sleppur sömuleiðis alfarið við banka-
skattinn en hefði annars þurft að
greiða um hundrað milljónir miðað
við 26,5 milljarða skuldir í árslok
2012. Lýsing er að langstærstum
hluta í eigu – beint og óbeint – er-
lendra kröfuhafa föllnu bankanna. Á
meðal eigenda er Burlington Loan
Management, írsk skúffufyrirtæki í
eigu bandaríska vogunarsjóðsins
Davidson Kempner. Sjóðir á vegum
Davidson Kempner eru auk þess
stærstu kröfuhafar í bú Glitnis, með-
al þeirra stærstu í Kaupþingi, eiga
umtalsverðar kröfur á Landsbank-
ann og eignarhluti í Bakkavör.
MP borgar hlutfallslega mest
Fyrir utan þrjá stóru viðskipta-
bankanna og fjármálafyrirtæki í
slitameðferð er MP banki eina fjár-
málastofnunin sem greiðir banka-
skattinn en hann var hækkaður fyrir
skemmstu úr 0,041% í 0,376% og
leggst á heildarskuldir fjármálafyr-
irtækja. Miðað við afkomu ársins
2012 greiðir MP hlutfallslega mest
vegna skattsins. Áætlað er að tekjur
ríkissjóðs af skattinum aukist um
37,3 milljarða frá 2013 til 2014. Fjár-
málafyrirtæki í slitameðferð munu
þar af greiða 28,3 milljarða. Skatt-
urinn á sem kunnugt er m.a. að fjár-
magna tillögur stjórnvalda um lækk-
un verðtryggðra húsnæðislána.
Lýsing og Valitor greiða ekkert
Greiða engan bankaskatt vegna 50 milljarða frískuldamarks Skulduðu 35 milljarða og 26,5 millj-
arða í árslok 2012 Án frískuldamarks hefði 96% af hagnaði MP banka farið til greiðslu skattsins
Allur hagnaður MP banka 2012 hefði farið í greiðslu bankaskatts
Áhrif bankaskatts á skuldir fjármálafyrirtækja án 50 milljarða frískuldamarks
Hagnaður 2012
(í milljónum kr.)
Bankaskattur án
frískuldamarks
(í milljónum kr.)
Hlutfall af
hagnaði 2012
(í prósentum.)
Heimild: Ársreikningar fjármálafyrirtækja 2012. Hagnaður Sparisjóðs Vestmannaeyja 2012 skýrist af því að erlend lánalína var leiðrétt um 330milljónir.
Á fyrstu sex mánuðum ársins 2013 var 107 milljón króna tap á rekstri sjóðsins.
900
800
700
600
500
400
300
200
100
0
100 %
90 %
80 %
70 %
60 %
50 %
40 %
30 %
20 %
10 %
Heildarskuldir 2012
(í milljörðum kr.)
MP banki
64
Valitor
35
Lýsing
26,5
Borgun
18,5
Straumur
13,7
AFL sparisj
13,6
Sparis Vestm
11,8
251 241 809 132 447 100 203 52 70 51 253 44658 70
96%
22%
11%
26%
73%
17%
16%
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Án 50 milljarða króna frískulda-
marks hefði hækkun sérstaks
bankaskatts á skuldir fjármálafyrir-
tækja komið hlufallslega langþyngst
niður á MP banka en sé miðað við
fjárhagsupplýsingar á árinu 2012 þá
hefði nánast allur hagnaður bankans
– um 96% – farið til greiðslu á skatt-
inum. Til samanburðar væri þetta
hlutfall almennt í kringum 10–25%
hjá öðrum minni fjármálafyrirtækj-
um sem hefðu að óbreyttu einnig
þurft að greiða bankaskattinn.
Um það hefur verið rætt í fjölmiðl-
um síðustu daga að ákvæði um 50
milljarða króna frískuldamark komi
MP banka sérstaklega vel enda
lækki bankaskatturinn sem hann
þarf að greiða – miðað við 64 millj-
arða skuldir í árslok 2012 – úr 251
milljónum í 53 milljónir. Sú upphæð
nemur um 20% af hagnaði ársins
2012. Skuldir bankans höfðu lækkað
í 57 milljarða á þriðja fjórðungi 2013.
MP banki er þó fjarri því eina fjár-
málafyrirtækið sem hafði ríka hags-
muni af því að sett yrði inn frískulda-
mark. Skylda til að greiða banka-
skattinn nær til fjármálafyrirtækja
sem hafa starfsleyfi hjá Fjármálaeft-
irlitinu sem viðskiptabanki, spari-