Morgunblaðið - 21.01.2014, Page 20
20 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
4ja rétta seðill
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 56
2 0207 • perlan@perlan.is
Verð aðeins
7.390 kr.
Næg bílastæði
Gjafabréf
Perlunnar
Góð gjöf við öll
tækifæri
Misskipting
gæða í heiminum
er nú orðin slík
að 85 ríkustu
manneskjur í
heiminum eiga
jafnmikinn auð
og 3,5 milljarðar
fátækustu íbúa
jarðar. Þetta
kemur fram í
skýrslu bresku
hjálparsamtakanna Oxfam sem birt
var í gær.
Auðæfi þessara nokkurra tuga
manneskja eru metin á um eina
billjón [milljón milljónir] punda.
Þegar litið er til ríkasta 1% af
mannfjöldanum í heiminum, situr
það á 60,88 billjónum punda. Það er
um 65 sinnum meira en fátækari
helmingur mannkyns á. Oxfam var-
ar við að þessi samþjöppun auðs
geti ógnað pólitískum stöðugleika í
heiminum og magnað upp þjóð-
félagslega spennu.
„Það er ótrúlegt að á 21. öldinni
eigi helmingur mannkyns, alls 3,5
milljarður manna, ekki meira en fá-
menn elíta sem gæti auðveldlega
komist fyrir í tveggja hæða stræt-
isvagni,“ segir Winnie Byanyima,
framkvæmdastjóri Oxfam, en hún
verður viðstödd ársfund Al-
þjóðaefnahagsþingsins (World
Economic Forum) í Davos þar sem
þjóðarleiðtogar og viðskiptafólk
mun koma saman í þessari viku.
BRETLAND
85 manna elíta á
jafnmikið og helm-
ingur mannkynsins
Fátækt er enn út-
breidd í heiminum.
Greiðslukortaupplýsingum nærri
helmings allra Suður-Kóreubúa var
nýlega stolið og þær seldar til
markaðssetningarfyrirtækja. Það
var starfsmaður tölvufyrirtækis
sem vann sem verktaki fyrir þrjú
stærstu greiðslukortafyrirtæki
landsins sem stal nöfnum, kennitöl-
um og greiðslukortaupplýsingum
tuttugu milljóna Suður-Kóreubúa
með því að afrita gögnin á USB-
lykil. Fjármálaeftirlit landsins segir
að auðvelt hafi verið að stela gögn-
unum þar sem þau hafi ekki verið
dulkóðuð. Fyrirtækin vissu ekki að
þeim hefði verið stolið fyrr en
starfsmenn eftirlitsins tilkynntu
þeim það. kjartan@mbl.is
SUÐUR-KÓREA
Stal kortaupplýs-
ingum milljóna
Auðmýkt Forstjórar kortafyrirtækj-
anna biðjast sameiginlega afsökunar.
Anna Lilja Þórisdóttir
Kjartan Kjartansson
Norsk lögregluyfirvöld sem rann-
sökuðu eldsvoðann sem eyðilagði
tugi húsa í bænum Lærdal í Sogn-
firði á laugardagskvöld og aðfara-
nótt sunnudags, gátu ekki sagt til
um orsök hans í gær.
Fyrsta tilkynningin um eld barst
frá íbúum húss í Kirkjugötu í Lær-
dal klukkan 22:54 á laugardags-
kvöld. Lögreglan hefur yfirheyrt
íbúana en hefur ekki viljað gefa upp
hvort þeir hafi getað varpað frekara
ljósi á upptök eldsins.
„Við erum engu nær um að segja
hver orsökin var á þessari stundu og
við kærum okkur heldur ekki um að
velta vöngum yfir því,“ sagði Åge
Løseth, sýslumaður á staðnum, á
blaðamannafundi í gær.
Norska rannsóknarlögreglan,
Kripos, hjálpar lögreglumönnum
bæjarins að rannsaka brunann og
komu fulltrúar hennar til bæjarins í
gær.
Sagði Løseth að ef nokkur kostur
væri á að finna upptökina þá reikn-
aði hann með að það tækist. Rann-
sóknin gæti þó reynst tímafrek.
Milljarða tjón
Rafmagn var enn ekki komið á
alls staðar í Lærdal í gær eftir að
því hafði slegið út í brunanum. Íbú-
ar voru beðnir um að fara sparlega
með rafmagnið fyrst um sinn. Íbú-
um var sagt í gærkvöldi að hluti
þeirra gæti snúið aftur til heimila
sinna á svæðinu.
Ljóst er að gríðarlegt tjón varð í
brunanum um helgina. Alls brunnu
23 byggingar, þar af sextán íbúðar-
hús. Þurftu 310 manns að flýja
heimili sín af þeim sökum.
Norsk tryggingafélög voru þegar
í gær farin að áætla tjónið og sagði
talsmaður If að það gæti numið
meira en hundrað milljónum
norskra króna, jafnvirði um 1,9
milljarða íslenskra króna. Hann
taldi ólíklegt að nokkur þeirra sem
lenti í brunanum væri ótryggður en
brunatryggingar eru lögbundnar í
Noregi. Óvíst er þó að hve miklu
leyti innbú húsanna voru tryggð.
Æskuheimilið brunnið
til grunna
Það var ekki fögur sjón sem blasti
við John Magne Hiller þegar hann
kom til Lærdal frá Osló í gær til að
kanna ástand æskuheimilis síns eftir
brunann. Húsið var frá 1919 og
höfðu Hiller og kona hans lagt mikla
vinnu í að gera það upp. Það hafði
hins vegar brunnið til kaldra kola.
„Mér þykir þetta ægilega dapur-
legt. Þetta var æskuheimili mitt og
hugmyndin var að þetta yrði bústað-
urinn minn þegar ég kæmist á eft-
irlaun. Nú er það allt horfið. Það er
bara skorsteinninn sem stendur eft-
ir,“ sagði Hiller við norska ríkisút-
varpið NRK.
Standa saman eftir áföll
Erna Solberg, forsætisráðherra
Noregs, kom til Lærdal í gær ásamt
fleiri ráðherrum úr ríkisstjórninni
til að kynna sér aðstæður. Sagðist
hún hrærð yfir því að hitta fólk sem
hafði misst allt sitt.
„Það er skelfilegt að hugsa um
allt það sem brann hérna. En þegar
öllum lífum er borgið, þá er mik-
ilvægt að hafa í huga að þetta voru
bara hlutir,“ sagði Solberg. Enginn
fórst í eldsvoðanum en rúmlega
fjögur hundruð manns þurftu að
leita á sjúkrahús í kjölfarið, þar af
um hundrað vegna reykeitrunar.
Ríkisstjórnin hefur þegar heitið
því að hún muni styðja við bakið á
bæjaryfirvöldum við uppbyggingu
bæjarins eftir áfallið þó að engar
upphæðir hafi enn verið nefndar í
því samhengi.
„Það er mikilvægt að við komum
innviðunum fljótt upp og að við end-
urbyggjum þá hluta Lærdal sem
urðu illa úti,“ sagði Anders Anund-
sen, dómsmálaráðherra, sem heim-
sótti Lærdal í gær með Solberg, og
benti á að hefð væri fyrir því í Nor-
egi að fólk hjálpaðist að þegar áföll
dyndu yfir.
Bæjarbúar hjálpa sér þó einnig
sjálfir. Jan Geir Solheim, bæjar-
stjóri Solheim, segir að fjöldi
manna, bæði úr bænum og frá ná-
grenninu, hafi boðið þeim sem
þurftu að flýja heimili sín húsaskjól
og geymslustað fyrir muni og komið
með föt fyrir þá sem misstu allt í
brunanum.
Tímafrek rannsókn í Lærdal
Rannsóknarlögreglan rannsakar upptök eldsvoðans Tjónið hleypur á milljörð-
um íslenskra króna Komi innviðunum aftur upp Yfir 400 manns á sjúkrahús
EPA
Heimsókn Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs (f.m.), kynnti sér aðstæður eftir stórbrunann í Lærdal í gær
ásamt Jan Geir Solheim, bæjarstjóra bæjarins (3. t.v.) og Anders Anundsen, dómsmálaráðherra (3. f.h.).
Flestir skólar, leikskólar og aðrar þjónustustofnanir
voru lokaðar í Lærdal í gær að sögn Jóhanns Halldórs
Traustasonar sem búsettur er í Øvre Årdal skammt frá
Lærdal.
„Mér skilst að fólk fái að vitja eigna sinna undir eft-
irliti lögreglu og slökkviliðs síðar [í gær],“ sagði Jó-
hann Halldór í gær.
Hann hefur búið í Noregi frá árinu 2008 og starfar í
álveri Norsk Hydro. Hann segir eldsvoðann reiðarslag
fyrir íbúa á svæðinu en þeir standi þétt saman.
„Þetta hefur ekki bara áhrif á fólk í Lærdal, heldur
okkur öll,“ segir Jóhann Halldór.
Reiðarslag fyrir alla íbúana
ÍSLENDINGUR Í ØVRE ÅRDAL, NÆRRI LÆRDAL
Jóhann Halldór
Traustason
„Við erum búin að vera á sveitabæ fyrir utan bæinn hjá
vinnufélaga mínum sem bauð okkur heimili sitt. Þau
eru búin að vera yndisleg,“ segir Þuríður Valdimars-
dóttir, sjúkraliði sem býr og starfar í Lærdal, í gær.
Hún þurfti að yfirgefa heimili sitt ásamt fjölskyldu
sinni aðfaranótt sunnudags.
„Okkur var bara hent út um nóttina. Við stóðum
þarna í eldglæringunum sem fuku yfir okkur í rokinu.
Við horfðum á hús fjölskyldufólks sem maður þekkir
brenna. Þetta var rosalegt,“ segir hún um upplifunina.
Þuríður starfar á dvalarheimili fyrir aldraða í bæn-
um og segir hún íbúa heimilisins sem og aðra bæjarbúa slegna yfir at-
burðunum. Hús hennar slapp við skemmdir en nálæg hús eru hins veg-
ar gjörónýt.
Stóðu úti í eldglæringunum
ÍSLENSKUR SJÚKRALIÐI SEM BÝR OG STARFAR Í LÆRDAL
Þuríður
Valdimarsdóttir