Morgunblaðið - 21.01.2014, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
Trjáklippingar.
NÚ ER TÍMINN TIL AÐ KLIPPA TRÉ OG RUNNA.
Síðla vetrar og á vorin er góður tími til að klippa allflestar
tegundir trjágróðurs því þá er greinabygging gróðursins best
sýnileg. Einnig er þetta góður tími til þess að móta trjágróður.
TRAUST ÞJÓNUSTA Í YFIR 20 ÁR
Frá því Garðlist ehf. var stofnað fyrir 23 árum síðan, höfum við haft það
að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu fyrir garðinn á einum stað.
Við þökkum þeim þúsundum einstaklinga, húsfélaga og fyrirtækja sem
við höfum átt í viðkiptum við unandarin ár, á saman tíma og við bjóðum
nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna. Tunguhálsi 7 110 Reykjavík 554 1989 www.gardlist.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að láta vinnuna ganga fyrir
öllu öðru svo þér takist að ljúka við þau verk-
efni sem fyrir liggja. Hafðu þetta í huga þegar
þú velur þér verkefni.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki gefast upp á því að leggja góðum
málstað lið þótt baráttan sé hörð og þér finn-
ist lítið miða áfram. En þú ert hátt yfir það
hafin/n.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú gætir tekið upp á því að setja
einhvern á stall í dag og ganga óraunsæinu á
hönd. Notaðu daginn til þess að reyna fyrir
þér sem byrjandi á einhverju sviði.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Í dag skaltu halda hlutunum fyrir þig
og ekki láta neitt uppi. Gefðu þér nú tíma til
þess að fara í gegnum hlutina og afgreiða þá
einn af öðrum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ættir að endurskoða skilgreiningu
þína á raunveruleikanum. Innileg tengsl ein-
kennast af mýkt og blíðu. Líttu á þau sem slík
í stað þess að láta samskiptareglurnar slá þig
út af laginu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Breytingar breytinganna vegna hafa
sjaldnast nokkuð upp á sig. Gerðu það upp
við þig hvað þú vilt og stattu svo fast á þínu.
Stundum þarf hörku.
23. sept. - 22. okt.
Vog Fjölskyldumál krefst athygli þinnar og þú
mátt ekki bregðast. Reyndu að minnsta kosti
að vinna í þægilegu umhverfi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ósiður að þurfa alltaf að
fá fyrirfram. Leyfðu öðrum að njóta hlutanna
með þér; það er miklu skemmtilegra og svo
gleður það vini þína.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hvað sem þú ert að gera, ekki
hætta. Athyglin sem þú veitir samskipta-
reglum fer ekki framhjá fólki með raunveru-
legan stíl.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Forvitni þín leiðir þig á ókunnar
slóðir þar sem óvænt verkefni bíða þín.
Kynntu þér reglur laganna og hvort allt er
eins og það á að vera.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nú verður þú að láta heilsu þína
ganga fyrir öllu öðru. Einbeittu þér að því að
grynnka á, í stað þess að bæta við og ástand-
ið batnar til muna.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Erfiðir einstaklingar hafa sínar sterku
hliðar, annars væru þeir ekki hluti af þínu lífi.
Láttu gott af þér leiða, þannig öðlast líf þitt
fyllingu.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson fagn-aði sjötugsafmæli sínu 15. jan-
úar. Hann velti fyrir sér hvernig
best væri að haga sér í ellinni og
leitaði ráða hjá Bjarka Karlssyni.
Hann lá ekki á hollráðunum, frekar
en fyrri daginn:
Fornari en frumlífsöld,
fúllyndari en heimsstyrjöld
og héraðsplága hundraðföld
hyggst ég verða um ævikvöld …
– og mér til gamans grænu að snýta í
gluggatjöld.
En Bjarki var ekki hættur og
bætti við:
Öldnum er það einna skást
í iðjuleysi og fölva;
rymja, korra, kveina, þjást
kvarta, nöldra, bölva.
Ragnar vildi líka vita hvað mönn-
um fyndist um kennarastéttina sem
hann tilheyrði svo áratugum skipti.
Bjarki sagði því auðsvarað:
Kennarans ævistarf? Svo að svara,
sumir kynnu:
– Af hverju fer þetta fólk ekki bara og
fær sér vinnu?
Jón Ingvar Jónsson var fjarri
góðu gamni en taldi víst að hann
hefði ort svona:
Ýmsir fá víst ekkasog,
enda kárnar gaman
þegar bæði aldur og
útlit fara saman.
Dagbjartur Dagbjartsson stóðst
ekki mátið og orti í léttum dúr:
Ýmsir misstu allan frið
alveg má því flíka
ef að kæmist innrætið
inn í dæmið líka.
Ingólfur Ómar Ármannsson kast-
aði fram:
Ragnar Ingi er hress og hýr
halur býsna fróður,
orðaslyngur skrambi skýr
skáldmæringur góður.
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir:
Ef þú vilt þér stytta stund
stöku skaltu banga.
Best er að hafa létta lund
og lífsgleðina fanga.
Hallmundur Kristinsson bregður
á leik í limru:
Þá var hann Ragnar á Rauðá
ráðsnjall er jeppanum sauð á.
Hann leitaði lags
er lánaðist strax
og húddinu bakaði brauð á.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af frumlífsöld, gluggatjöld-
um og afmæli skáldmærings
Í klípu
LÍKLEGA VAR ÉG SLYS. EINU BARNA-
MYNDIRNAR AF MÉR VORU TEKNAR AF
MATSMANNI FRÁ TRYGGINGAFÉLAGI.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„KALLAÐU MIG BARA SINNULAUSA! VITTU
HVORT ÉG KÆRI MIG EKKI KOLLÓTTA!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að líta á björtu
hliðarnar.
HÉR MEÐ LÝKUR ÞÁ
HEIMSÓKNINNI FRÁ
VINALEGA SKATT-
HEIMTUMANNINUM ...
... OG VIÐ ÞÖKKUM
YKKUR FYRIR
FRAMLAG YKKAR.
ÞIÐ FÁIÐ SVO EYÐUBLAÐ Í PÓSTI
ÞAR SEM ÞIÐ GETIÐ GEFIÐ
UMSÖGN UM HEIMSÓKNINA.
LÍKLEGA ER
KOMINN TÍMI
TIL AÐ ÞRÍFA
ÍSSKÁPINN.
ALLTAF ÞEGAR
ÉG OPNA
HANN ...
... HÆTTIR
TÓNLISTIN.
LITLA
DISKÓKÚLAN
ER FLOTT.
Víkverji er endurnærður eftir aðhafa hlýtt á fyrirlestur Eddu
Björgvins leikkonu um húmorinn og
hamingjuna. Edda er sannur gleði-
gjafi og hefur skemmt þjóðinni um
árabil á leiksviði, í sjónvarpi, útvarpi
og víðar. Nú hefur hún sökkt sér í
fræðin á bak við húmorinn og miðlar
þeirri þekkingu til landsmanna. Eft-
ir því sem Víkverji kemst næst hefur
hún varla undan í fyrirlestrahaldinu
og er t.d. vinsæl hjá fyrirtækjum og
stofnunum með fróðleik sinn.
x x x
Edda sýndi fram á í sínum fyrir-lestri hvernig húmor, jákvæðni
og almenn lífsgleði geta verið heilsu-
samleg, jafnt á líkama og sál. Hlátur
kallar fram hormón í líkamanum á
borð við endorfín, seratónín og dópa-
mín, enda sagði Edda að húmorinn
væri besta náttúrulega vímuefnið
sem hægt væri að bjóða upp á. Þetta
má gera með því að horfa á gaman-
myndir, fjölskyldumyndbönd og al-
búm, lesa brandarabækur, rifja upp
skemmtileg og pínleg atvik í lífi sínu
og ekki síst að gera góðlátlegt grín
að sjálfum sér.
x x x
Víkverji var meðal þeirra semfengu hláturskast undir fyrir-
lestri Eddu og eftir þessa gleðistund
urðu öll helgarverkin skemmtilegri
og léttari, svo ekki sé nú talað um
mannleg samskipti, sem geta tekið
stakkaskiptum ef fólk temur sér já-
kvæðni og almenna lífsgleði. Edda
sýndi vel fram á hvernig neikvæðni
og tuð yfir öllu og engu getur dregið
úr líkamlegum þrótti, hugmynda-
auðgi og hæfni til mannlegra sam-
skipta. Neikvæðni getur nefnilega
smitað út frá sér, alveg á sama hátt
og jákvæðni og hlátur geta verið
smitandi.
x x x
Edda tók lítið dæmi um atvik semkallar fram hlátur í upprifjun.
Það var þegar hún kom inn á veit-
ingastað og tók fljótlega eftir því hve
gestir og starfsfólk voru vingjarnleg
í hennar garð, um leið og þau brostu
dálítið vandræðalega. Við nánari at-
hugun kom í ljós að Edda hafði
gleymt að taka rúllurnar úr hárinu
er hún fór að heiman!
víkverji@mbl.is
Víkverji
Verið miskunnsöm eins og faðir yðar
er miskunnsamur.
(Lúkasarguðspjall 6:36)