Morgunblaðið - 21.01.2014, Síða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
Íverkinu Óraunveruleikir erunnið með raunveruleikannog mörk ímyndunaraflsins.Myrkrað sviðið er autt en
búningar flytjendanna eru í for-
grunni. Dansararnir eru klæddir
svörtum spandexbúningum sem
hylja líkama þeirra frá toppi til táar.
Önnur föt, hárkollur, taska og skór
sem þeir klæðast yfir svarta bún-
inginn eru lýst upp með ákveðinni
tækni sem gerir áhorfendum erfitt
fyrir að sjá líkama dansaranna. Með
þessari aðferð leika flytjendur sér
að því að búa til sjónhverfingar sem
oft á tíðum eru mjög fyndnar og vel
heppnaðar. Sérstaklega ber að
hrósa Valdimar Jóhannssyni fyrir
lýsingu verksins. Skór gengu mann-
lausir um sviðið, höfuðið var tekið af
búknum, líkami sem sveif um sviðið
og þannig fram eftir götunum. Eins
og gefur að skilja voru brellurnar
þó misgóðar og það hefði verið hægt
að ganga mun lengra með töfrana.
Það kom þó ekki að sök, vegna þess
að einfaldleikinn myndaði barns-
legan húmor sem náði beint til
áhorfenda af hlátrasköllunum að
dæma. Upphaf verksins var ein-
staklega vel úr garði gert og sló
tóninn fyrir það sem á eftir kom, en
í því spilaði hljóðheimurinn stórt
hlutverk. Tónlist og hljóð voru
einkar vel notuð til þess að skapa
stemningu. Margir eftirminnilegir
og góðir kaflar sitja fast í minni, þar
ber að nefna dúett tveggja buxna og
súrrealískan sóló Þyríar þar sem
hún svífur úr skónum.
Í fyrri hluta verksins komst hug-
myndfræðin nokkuð vel til skila, en
það var eins og að hún hefði
gleymst í seinni hluta verksins.
Urður gekk inn á sviðið og söng
heilt lag. Dansararnir voru með
henni á sviðinu en áhorfendur sáu
einingis í hendur þeirra. Danssmíði
þess atriðis var nokkuð fyrirsjáan-
leg en mögnuð rödd Urðar bætti
það þó upp. Allt sem gerðist á svið-
inu eftir það var dálítið úr takt við
það sem á undan hafði gengið. Mað-
ur fékk á tilfinninguna að það hefði
ekki verið eins mikil vinna lögð
þann hluta og það vantaði rúsínuna
í pylsuendann – endirinn gekk ekki
upp.
Í heild hefur verkið Óraunveru-
leikir mikið skemmtanagildi og
sterkan húmor þar sem töfrar leik-
hússins eru dregnir fram á stefnu-
móti ólíkra listamanna.
Morgunblaðið/Ómar
Höfundarnir Þær Urður Hákonardóttir, Valgerður Rúnarsdóttir og Þyri Huld Árnadóttir eru höfundar verksins og
flytjendur. Rýnir segir Óraunveruleika hafa „mikið skemmtanagildi og sterkan húmor þar sem töfrar leikhússins
eru dregnir fram á stefnumóti ólíkra listamanna“.
Leikur með mörk raun-
veruleika og ímyndunar
Óraunveruleikir bbbmn
Höfundar og flytjendur: Valgerður Rún-
arsdóttir, Þyrí Huld Árnadóttir og Urður
Hákonardóttir. Ljós og hljóð: Valdimar
Jóhannsson.
Frumflutt í Kassanum, Þjóðleikhúsinu,
16. janúar 2014.
MARGRÉT
ÁSKELSDÓTTIR
DANS
Ísland keppir á fyrra undan-
úrslitakvöldi Eurovision þriðjudag-
inn 6. maí nk. Þetta skýrðist í gær
þegar dregið var í riðla í undan-
úrslitum Eurovision 2014 við sér-
staka athöfn í Kaupmannahöfn þar
sem keppnin verður haldin. Seinni
undanúrslitin fara fram fimmtu-
daginn 8. maí og sjálf lokakeppnin
laugardaginn 10. maí.
Við sömu athöfn var jafnframt
dregið um það hvort löndin myndu
stíga á svið fyrri eða seinni helming
kvöldsins sem þau drógust á og
verður Ísland í fyrri hlutanum á
sínu kvöldi.
Samkvæmt upplýsingum á vef
keppninnar (eurovision.tv) fer
keppnin fram í B&W Hallerna á
Amager í Kaupmannahöfn.
Ísland keppir fyrra undanúrslitakvöldið
Ljósmynd/Sander Hesterman
Sjarmatröll Eyþór Ingi var fulltrúi Ís-
lands í Eurovision í fyrra í Svíþjóð.
Skáldið Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi við Eyjafjörð fæddist
21. janúar 1895. Í dag eru því liðin
119 ár frá fæðingu hans og í tilefni
dagsins verður Davíðshús á Ak-
ureyri opið milli kl. 20 og 22 í kvöld
og aðgangur ókeypis.
Heimili skáldsins, Davíðshús við
Bjarkarstíg 6, hefur verið varðveitt
sem safn eftir að Davíð féll frá, en
þar er einnig fræðimannsíbúð.
Húsakynnin bera smekkvísi hans
glöggt merki, full af bókum, lista-
verkum og persónulegum munum,
eins og hann skildi við árið 1964,
segir Haraldur Þór Egilsson, safn-
stjóri Minjasafnsins á Akureyri;
næstum eins og Davíðs sé að vænta
innan skamms.
Fyrsta ljóðabók hans, Svartar
fjaðrir, kom út árið 1919. Leikfélag
Akureyrar frumsýndi nýja upp-
færslu Gullna hliðsins eftir Davíð
síðastliðinn föstudag.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Tignarlegt Hús skáldsins Davíðs Stefánssonar við Bjarkarstíg á Akureyri.
Opið hús hjá Davíð
119 ár í dag frá fæðingu skáldsins
Skáldið Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi fæddist 21. janúar
Tillaga Helgu Þórsdóttur menning-
arfræðings var valin sú besta í sam-
keppni um haustsýningu Hafn-
arborgar árið 2014.
Í haust sem leið var í fjórða sinn
kallað eftir áhugaverðum tillögum
sýningarstjóra um sýningu að vinna
inn í rými safnsins. Að þessu sinni
bárust sextán tillögur sem uppfylltu
sett skilyrði og valdi listráð Hafn-
arborgar, ásamt gesti og forstöðu-
manni menningarstofnunarinnar,
fjórar tillögur til frekari skoðunar.
Það voru tillögur Birtu Fróðadóttur
arkitekts, Katrínar Ingu Jónsdóttur
Hjördísardóttur myndlistarmanns,
tillaga Vinnslunnar – listahóps þvert
á listform, og tillaga Helgu Þórs-
dóttur, menningarfræðings og
myndlistarmanns. Bakgrunnur höf-
unda tillagnanna liggur í ólíkum
náms- og starfsgreinum en þau eiga
öll sameiginlegt að eiga að baki fá
sýningarstjórnarleg verkefni á sviði
myndlistar og uppfylla þannig eitt af
grunnmarkmiðum samkeppninnar,
að veita tækifæri sýningarstjórum
með skamman feril að baki.
Tillögurnar þóttu allar mjög
sterkar en tillaga Helgu varð fyrir
valinu. Hún ber vinnuheitið Sam-
hliða og þótti vel útfærð. Hyggst
Helga tefla saman verkum áhuga-
verðra listamanna sem þekktir eru
fyrir að gera huglægri reynslu efn-
isleg skil á áhrifaríkan hátt. Það eru
þau Daníel Magnússon, Guðrún
Hrönn Ragnarsdóttir, Ívar Brynj-
ólfsson, Ívar Valgarðsson, Sólveig
Aðalsteinsdóttir og Þóra Sigurðar-
dóttir.
Helga Þórsdóttir hefur haldið og
tekið þátt í fjölda sýninga en sýn-
ingin í Hafnarborg verður hennar
fyrsta sjálfstæða sýningarstjórnar-
verkefni.
Verkum áhuga-
verðra teflt saman
Sýningarstjórinn Helga Þórsdóttir
var valin til að stýra haustsýningu.
Helga Þórsdóttir
stýrir haustsýningu
Hafnarborgar