Morgunblaðið - 21.01.2014, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 2014
Það kennir ýmissa grasa áfrönsku kvikmyndahátíð-inni sem nú stendur yfir íHáskólabíói. Ein þeirra
níu kvikmynda sem sýndar eru er
nýjasta afurð hins áttræða Romans
Polanskis, La Vénus à la fourrure.
Kvikmyndin er byggð á samnefndu
leikriti (þ.e. Venus in Fur) eftir
bandaríska leikskáldið David Ives
en Polanski leikstýrir eiginkonu
sinni Emmanuelle Seigner og hin-
um margverðlaunaða Mathieu
Amalric í útfærslu sinni á leikrit-
inu.
Kvikmyndin segir frá þreyttum
leikstjóra, Thomas (Amalric), sem
getur með engu móti fundið hæfa
leikkonu til að fara með aðal-
hlutverkið í verki sem hann skrifaði
upp úr skáldsögu Leopalds von
Sacher-Masoch, Venus in Furs.
Þegar öll von virðist úti skundar
leikkonan Vanda (Seigner) inn í
leikhúsið og heillar leikstjórann
upp úr skónum, buxunum og í raun
öllum klæðum hans.
Vinsælt er að færa leikhúsverk
yfir á hvíta tjaldið og heppnast það
misvel. Polanski virðist vera stað-
ráðinn í því í viðkomandi mynd að
halda leikhúsbragnum og kvik-
myndin er í raun sett upp nákvæm-
lega eins og leikrit. Myndin er
skotin á einum og sama staðnum, í
leikhúsi. Innri tími sögunnar er
níutíu og sex mínútur, í raun ein
löng samfelld sena. Leikararnir eru
einnig aðeins tveir en slíkt verður
að teljast fremur óhefðbundið. Að
sama skapi eru margar senur
skotnar úr áhorfendasalnum svo
áhorfandanum líður eins og hann sé
í raun að horfa á leikrit. Slíkar
kvikmyndir hafa oft heppnast vel
og má meðal annars nefna kvik-
mynd Lars Vons Triers, Dogville.
La Vénus à la fourrure nær þó ekki
að skapa eins forvitnilegt andrúms-
loft og finna má í þeirri mynd og
það er í raun lítið sem kvikmynda-
miðillinn bætir við leikritið sem
Ives skrifaði á sínum tíma.
Seigner og Amalric komast bæði
tvö mjög vel frá hlutverkum sínum
og þá sérstaklega Amalric sem
verður að teljast einn færasti leik-
ari Frakka. Þetta er ekki í fyrsta
skiptið sem parið mætist í kvik-
mynd en þau léku meðal annars á
móti hvort öðru í kvikmyndinni Le
Scaphandre et le papillon (Fiðrildið
og köfunarbjallan). Seigner og
Amalric ná mjög vel saman og er
samvinna þeirra til fyrirmyndar.
Polanski notfærir sér tónlist á
skemmtilegan hátt í kvikmyndinni.
Til að mynda gefa draumkenndir
tónar það til kynna hvenær parið
er í miðjum leikþætti, það er að
segja í því leikriti sem þau eru að
setja á svið, og hvenær þau fara úr
hlutverkum sínum. Notkun tónlist-
arinnar auðveldar því áhorfand-
anum að greina á milli þess hvenær
Thomas og Vanda eru í hlutverka-
leik og hvenær ekki. Að sama skapi
draga tónarnir upp myrka mynd
samhliða því sem sagan verður al-
varlegri.
Sagan sjálf er áhugaverð en hún
tekur meðal annars á bælingu og
útrás kynhvatarinnar sem og blæt-
isdýrkun og kvalalosta. Það er
einnig skemmtilegt hvernig hand-
ritið fléttar saman leikriti inn í
kvikmyndina og samræður persón-
anna eru áhugaverðar. Eins og áð-
ur segir er hins vegar fátt sem
kvikmyndamiðillinn bætir við þetta
annars ágæta leikrit.
Kvalalosti kvalins leikstjóra
Fær „Seigner og Amalric komast bæði tvö mjög vel frá hlutverkum sínum og þá sérstaklega Amalric sem verður að
teljast einn færasti leikari Frakka,“ segir meðal annars í dómi um nýjustu kvikmynd Romans Polanski.
Háskólabíó
La Vénus à la fourrure (Venus í feldi)
bbbmn
Leikstjóri: Roman Polanski. Handrit:
Roman Polanski. Aðalhlutverk: Emm-
anuelle Seigner og Mathieu Amalric. 96
mín. Frakkland, 2013.
DAVÍÐ MÁR
STEFÁNSSON
KVIKMYNDIR
Jón Ólafsson heimspekingur og rithöfundur
fjallar í kvöld, þriðjudag, í fyrirlestri í Snorra-
stofu í Reykholti um sögu Veru Hertzsch.
Viðburðir Snorrastofu hefjast á nýju ári
með „Fyrirlestrum í héraði“ og að þessu sinni
fjallar Jón um bók sína, Appelsínur frá Abk-
asíu, sem kom út fyrir rúmu ári. Saga aðal-
persónunnar, Veru Hertzsch, er rakin á
grundvelli æviminninga fanga sem voru með
henni í fangabúðum en unnið var úr rúss-
neskum og sovéskum heimildum um hana og
konurnar sem deildu sömu örlögum á tímum
hreinsana Stalínstímans.
Fyrirlesturinn í Snorrastofu hefst klukkan
20.30.
Fyrirlestur í Snorrastofu
Fyrirlesari Jón Ólafsson
fjallar um sovéskar fangabúðir
og sögu Veru Hertzsch.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Mið 22/1 kl. 19:30 62.sýn Fös 31/1 kl. 19:30 69.sýn Fös 14/2 kl. 19:30 73.sýn
Fim 23/1 kl. 19:30 63.sýn Fim 6/2 kl. 19:30 70.sýn. Sun 23/2 kl. 19:30 74.sýn
Lau 25/1 kl. 19:30 aukas. Fös 7/2 kl. 19:30 71.sýn.
Fim 30/1 kl. 19:30 65.sýn Fim 13/2 kl. 19:30 72.sýn.
Veilsa aldarinnar - leikrit ársins 2013.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 26/1 kl. 13:00 27.sýn Sun 9/2 kl. 13:00 29.sýn
Sun 2/2 kl. 13:00 28.sýn Sun 16/2 kl. 13:00 30.sýn
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Fös 24/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 1/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 8/2 kl. 19:30 12.sýn
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Pollock? (Kassinn)
Fös 31/1 kl. 19:30 Lau 1/2 kl. 19:30
Skemmtilegt leikrit með framúrskarandi leikurum. Síðustu sýningar.
Karíus og Baktus (Kúlan)
Sun 26/1 kl. 16:00 Sun 9/2 kl. 16:00
Sun 2/2 kl. 16:00 Sun 16/2 kl. 16:00
Karíus og Baktus bregða á leik.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 23/1 kl. 20:00 6.sýn Lau 25/1 kl. 22:30 Aukas. Fim 6/2 kl. 20:00 12.sýn
Fös 24/1 kl. 20:00 7.sýn Fim 30/1 kl. 20:00 9.sýn Fös 7/2 kl. 20:00 13.sýn
Fös 24/1 kl. 22:30 Aukas. Fös 31/1 kl. 20:00 10.sýn Fös 7/2 kl. 22:30 14.sýn
Lau 25/1 kl. 20:00 8.sýn Fös 31/1 kl. 22:30 11.sýn Lau 8/2 kl. 20:00 15.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Óraunveruleikir (Kassinn)
Lau 25/1 kl. 20:00 Sun 26/1 kl. 20:00
To the bone - Inn að beini (Kassinn)
Fös 24/1 kl. 19:30
Aukasýning
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Hamlet – „Mögnuð sýning“ – SA, tmm.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Mið 22/1 kl. 19:00 aukas Fim 30/1 kl. 19:00 Fim 6/2 kl. 19:00 aukas
Fös 24/1 kl. 19:00 Lau 1/2 kl. 13:00 aukas Fös 7/2 kl. 19:00 aukas
Lau 25/1 kl. 13:00 Sun 2/2 kl. 13:00 aukas Lau 8/2 kl. 13:00 aukas
Sun 26/1 kl. 13:00 Mið 5/2 kl. 19:00 aukas Sun 9/2 kl. 13:00 lokas
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Síðustu sýningar!
Jeppi á Fjalli (Gamla bíó í janúar, Hof í febrúar)
Lau 25/1 kl. 20:00 Lau 1/2 kl. 20:00 í Hofi
Sun 26/1 kl. 20:00 Sun 2/2 kl. 20:00 í Hofi
Sýnt í Gamla bíói í Janúar. Tvær sýningar í Hofi á Akureyri í Febrúar.
Hamlet (Stóra sviðið)
Fim 23/1 kl. 20:00 6.k. Sun 2/2 kl. 20:00 Fös 21/2 kl. 20:00
Lau 25/1 kl. 20:00 aukas Sun 9/2 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00
Sun 26/1 kl. 20:00 7.k. Fös 14/2 kl. 20:00 Fös 28/2 kl. 20:00
Fös 31/1 kl. 20:00 8.k. Lau 15/2 kl. 20:00
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet.
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Fös 31/1 kl. 20:00 frums Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Fim 27/2 kl. 20:00 aukas
Lau 1/2 kl. 20:00 2.k Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Fös 28/2 kl. 20:00 16.k
Sun 2/2 kl. 20:00 3.k Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Lau 1/3 kl. 20:00
Þri 4/2 kl. 20:00 4.k Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k
Lau 8/2 kl. 20:00 aukas Fim 20/2 kl. 20:00 aukas Þri 4/3 kl. 20:00 18.k
Sun 9/2 kl. 20:00 5.k Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Mið 5/3 kl. 20:00 19.k
Þri 11/2 kl. 20:00 6.k Lau 22/2 kl. 20:00 13.k Lau 8/3 kl. 20:00 20.k
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Sun 23/2 kl. 20:00 14.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k
Fim 13/2 kl. 20:00 7.k Þri 25/2 kl. 20:00 15.k
Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Mið 26/2 kl. 20:00 aukas
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
Bláskjár (Litla sviðið)
Lau 8/2 kl. 20:00 frums Sun 16/2 kl. 20:00 4.k Fös 28/2 kl. 20:00
Mið 12/2 kl. 20:00 2.k Fim 20/2 kl. 20:00 5.k
Fim 13/2 kl. 20:00 3.k Sun 23/2 kl. 20:00 6.k
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Mið 12/2 kl. 10:00 Fim 13/2 kl. 13:00 Þri 18/2 kl. 11:30
Mið 12/2 kl. 11:30 Mán 17/2 kl. 10:00 Sun 23/2 kl. 20:00
Mið 12/2 kl. 13:00 Mán 17/2 kl. 11:30 Sun 30/3 kl. 20:00
Fim 13/2 kl. 10:00 Mán 17/2 kl. 13:00
Fim 13/2 kl. 11:30 Þri 18/2 kl. 10:00
Fræðandi uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í