Morgunblaðið - 29.01.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
María Rut Kristinsdóttir, formaður
Stúdentaráðs Háskóla Íslands, hafn-
ar þeim rökum Illuga Gunnarssonar,
menningar- og menntamálaráð-
herra, að eðlilegt sé að námsmenn
sýni fram á 75% námsárangur frá og
með næsta hausti til að eiga rétt á
námslánum, enda sé það í samræmi
við kröfur annars staðar á Norður-
löndum.
„Við tókum bara saman nákvæm-
lega hvernig þetta er annars staðar
á Norðurlöndum og setjum þetta
bara upp svart á hvítu. Fólk getur
síðan dæmt um það hvort þetta er
sambærilegt en okkur finnst það alls
ekki,“ segir María Rut.
Ekki náðist í Illuga þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir en málið varðar
Lánasjóð íslenskra námsmanna.
Telja samanburð
ráðherra rangan
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Stúdentar Auglýsingarnar eru m.a.
komnar á strætóskýlin.
SHÍ gagnrýnir
kröfur um námslán
Tillaga fulltrúa minnihlutans í bæj-
arstjórn Kópavogs um viðauka við
fjárhagsáætlun bæjarins, til að fjár-
magna byggingu félagslegra íbúða,
var ekki tekin fyrir á bæjarstjórnar-
fundi í gær. Guðríður Arnardóttir,
oddviti Samfylkingarinnar, gagn-
rýnir forseta bæjarstjórnar harð-
lega fyrir fundarstjórn hans.
Gunnar Birgisson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, sem studdi tillög-
una um byggingu íbúðanna, var ekki
á fundinum.
Ómar Stefánsson, forseti bæjar-
stjórnar, sagði tillöguna ekki á dag-
skrá bæjarstjórnar og því voru
greidd atkvæði um afbrigði við dag-
skrá svo hægt væri að taka hana fyr-
ir. Það var fellt með sex atkvæðum
gegn fimm.
Engin fordæmi
Þetta segir Guðríður vera „for-
dæmalausan gjörning“. Tillagan hafi
sannanlega verið á dagskrá bæjar-
stjórnar þar sem hún hafi verið lögð
fram í bæjarráði í síðustu viku.
„Þó að bæjarráð hafi frestað til-
lögum þá hefur það verið venja að
menn geti borið þær aftur upp í bæj-
arstjórn og það hefur ekki þurft af-
brigði til þess,“ segir Guðríður sem
segir þetta í fyrsta skipti á bæjar-
stjórnarferli hennar sem þessi hátt-
ur sé hafður á við fundarstjórn.
Hún segir það algerlega ljóst að
enginn pólitískur vilji sé hjá meiri-
hlutanum að klára málið. Hún ætlar
þó að fylgja málinu eftir eins og
kostur sé. Ljóst sé að það fái engan
framgang í bæjarráði þar sem ekki
sé meirihluti fyrir því og eina leiðin
til að þoka því áfram sé að bera til-
löguna upp í bæjarstjórn þegar
meirihluti sé fyrir henni þar. Hún
segist þó ekki vita hvenær það gæti
verið. „Ég mun bera þessa tillögu
upp á hverjum einasta bæjarstjórn-
arfundi þar til ég yfirgef bæjar-
stjórn Kópavogsbæjar,“ segir Guð-
ríður. kjartan@mbl.is
Ekki fjallað um
viðaukatillögu
Tekist á í bæjarstjórn Kópavogs-
bæjar um byggingu félagslegra íbúða
Morgunblaðið/Eggert
Kópavogur Bæjarstjórnarfundur.
„Við munum reyna að búa svo
um hnútana að við þurfum ekki
að leggja Bjarna Sæmundssyni
til langframa því sannarlega er
þörf á tveimur rannsóknaskip-
um,“ segir Jóhann. „Að draga úr
þessari starfsemi er bæði sér-
kennileg og varhugaverð ráð-
stöfun fyrir þjóð sem lifir á
hafsins gæðum.“
Þörf á tveim-
ur skipum
EKKI TIL LANGFRAMA
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Fyrirsjáanlegt er að rannsóknaskip-
inu Bjarna Sæmundssyni verður
lagt síðari hluta ársins vegna
rekstrarvanda Hafrannsóknastofn-
unar og ársverkum fækkað á skip-
unum. Dregið verður úr rannsókna-
verkefnum og að svo stöddu verður
ekki ráðið í stöður hjá stofnuninni
sem losna í ár og losnuðu á síðasta
ári.
Þetta var meðal þess sem fram
kom á fundi Jóhanns Sigurjónsson-
ar forstjóra með starfsfólki Haf-
rannsóknastofnunar á mánudag. Jó-
hann segir að í ár verði líklega ekki
farið í stofnmælingu á hausti, svo-
kallað haustrall, en það hefur verið
meðal árlegra verkefna í 18 ár.
Hugsanlega verður þessu mikil-
væga verkefni sinnt með skipum úr
fiskiskipaflotanum. Dregið verður
úr loðnurannsóknum og ekki verður
farið í árlegan leiðangur til að rann-
saka úthafsrækju.
Alþjóðleg verkefni
Meðal verkefna í ár eru árlegar
makrílrannsóknir, án þess að sér-
stakar fjárveitingar hafi fengist í
það verkefni, segir Jóhann. Á næsta
ári bætast við nokkur alþjóðleg
rannsóknaverkefni samkvæmt
samningum við aðrar þjóðir. Jóhann
nefnir rannsóknir á karfastofnum
og víðtækar hvalarannsóknir á
Norður-Atlantshafi.
Jóhann segir að á síðustu árum
hafi framlög til stofnunarinnar á
fjárlögum minnkað sambærilegt við
það sem verið hafi hjá öðrum stofn-
unum. Hafrannsóknastofnun hafi
hins vegar haft aðgang að Verk-
efnasjóði sjávarútvegsins, en fjár-
munir í honum hafa stórminnkað og
fyrirsjáanlegt sé að fjárveitingar
muni dragast enn frekar saman á
þessu ári. Magn og verðmæti rann-
sóknaafla hafi einnig dregist saman
svo nokkrir þættir séu nefndir.
4-500 milljónir í viðbót
Jóhann segir að Hafrannsókna-
stofnun fái um 1,4 milljarða á fjár-
lögum, en rekstrarumfangið sé rúm-
lega 2,4 milljarðar. „Til að geta
rekið Hafrannsóknastofnun af svip-
uðum krafti og í fyrra hefðum við
þurft 4-500 milljónir til viðbótar.
Stofnunin mun að sjálfsögðu sníða
sér stakk eftir vexti, en það er mjög
mikilvægt að stjórnvöld tryggi
rekstrarumhverfi Hafrannsókna-
stofnunar á næstu árum. Meðal
annars þegar stefna verður mótuð
um framtíð veiðigjalda, sem tryggja
ættu undirstöðu sjálfbærra veiða,“
segir Jóhann.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hafrannsóknir Bjarni Sæmundsson, skip Hafrannsóknastofnunar, við bryggju í Reykjavíkurhöfn í gær.
Leggja öðru skipinu
síðari hluta ársins
Rekstrarvandi Hafrannsóknastofnunar Færri ársverk
Arion banki vinnur að því að meta
fordæmisgildi dóms sem féll í máli
Haga gegn bankanum í desember og
fleiri málum fyrir um 200 fyrirtækja-
lán sem voru uppgreidd fyrir endur-
reikning. Landsbankinn hefur þegar
gefið það út að hann muni endur-
reikna slík fyrirtækjalán, m.a. í kjöl-
far Hagadómsins.
Í skriflegu svari Arion banka við
fyrirspurn Morgunblaðsins kemur
fram að bankinn hafi ákveðið að bíða
niðurstöðu í Hagamálinu varðandi
fyrirtækjalánin 200. Dómurinn féll
bankanum í hag en forsendur hans
byggðust að miklu leyti á að ekki
hefði verið um aðstöðumun að ræða í
því máli. Fleiri dómar hafi fallið á
undanförnum mánuðum sem varða
endurreikning á uppgreiddum lánum
sem skýra enn frekar stöðu slíkra
lána. Gerir bankinn ráð fyrir að ljúka
yfirferð sinni yfir dómana á næstu
vikum að því er segir í svarinu.
Í tilkynningu Landsbankans frá
því í byrjun janúar kom fram að hann
myndi endurreikna lán einstaklinga
og smærri fyrirtækja sem voru
greidd upp fyrir fyrri endurreikning.
Það hefði áhrif á um 15.000 bíla-, hús-
næðis- og fyrirtækjalán.
kjartan@mbl.is
Arion banki metur
fordæmisgildið
Varðar um 200 fyrirtækjalán
Hafró Jóhann Sigurjónsson.
Skipulagsstofnun
hefur óskað eftir
skýringum og
leiðréttingum
Reykjavíkurborg-
ar á tilteknum at-
riðum í aðalskipu-
lagi borgarinnar,
sem samþykkt
var í vetur, áður
en stofnunin get-
ur afgreitt það.
Það eru fyrst og fremst áform um
uppbyggingu í Vatnsmýri og sam-
ræmi aðalskipulags við svæðisskipu-
lag höfuðborgarsvæðisins hvað varð-
ar íbúðauppbyggingu og stofn-
brautakerfi sem stofnunin vill frekari
upplýsingar um.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, for-
stjóri Skipulagsstofnunar, segir
stofnunina telja að í aðalskipulaginu
þurfi að vera áfram í gildi fyrirvari í
núgildandi aðalskipulagi um að áform
borgaryfirvalda í Vatnsmýri séu háð
því að fyrir liggi ákvörðun samgöngu-
yfirvalda um flutning flugvallarins.
Að sögn Hjálmars Sveinssonar,
varaformanns umhverfis- og skipu-
lagsráðs Reykjavíkurborgar, koma
athugasemdir Skipulagsstofnunar
ekki á óvart. Embættismenn borgar-
innar séu nú að lesa þær gaumgæfi-
lega yfir. Þær verði ennfremur tekn-
ar fyrir bæði í umhverfis- og
skipulagsráði og borgarráði í næstu
viku. „Við teljum ekki að þetta kalli á
meiriháttar breytingar [á aðalskipu-
laginu],“ segir Hjálmar.
kjartan@mbl.is
Athugasemdir
við aðalskipulagið
Vantaði fyrirvara um flugvöllinn
Hjálmar
Sveinsson
Ökumaður fólks-
bifreiðar, sem
lenti í árekstri
við flutninga-
bifreið hjá
Fornahvammi í
Norðurárdal í
Borgarfirði 12.
janúar sl., lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans í gær. Hann hét
Skarphéðinn Andri Kristjánsson
og var á 19. aldursári, fæddur 1.
mars 1995. Skarphéðinn var með
lögheimili í Reykjavík en bjó á
Sauðárkróki þar sem hann stund-
aði nám við fjölbrautaskólann þar.
Unnusta hans, Anna Jóna Sigur-
björnsdóttir, 16 ára, frá Sauð́ár-
króki, lést í sama bílslysi.
Ökumaður-
inn látinn