Morgunblaðið - 29.01.2014, Side 6

Morgunblaðið - 29.01.2014, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Við getum selt myrkrið, ég hef tal- að fyrir því í mörg ár og myrkrið vekur athygli útlendinga sem hafa jafnvel aldrei séð það áður. Við get- um líka selt það sem sést í myrkrinu eins og norðurljósin og stjörnurnar og það er það sem koma skal,“ segir Friðrik Pálsson, eigandi Hótels Rangár. Friðrik stefnir á það að taka í notkun um næstu helgi tvo full- komna stjörnusjónauka sem hefur verið komið fyrir í sérstöku stjörnu- skoðunarhúsi sem stendur um hundrað metra frá hótelinu. „Við þurftum að byggja sérstakt 25 fermetra hús undir sjónaukana, það má hvorki vera vottur af ljós- mengun né hitamengun nálægt þeim. Þakið er svo dregið af húsinu til að horfa á stjörnurnar. Við verð- um með tvo mjög góða stjörnusjón- auka, hvorn um 30 cm í þvermál, og er annar sérútbúinn til að taka myndir. Svo verður líka hægt að horfa á tunglið og sólina í gegnum sólarfilter,“ segir Friðrik en hann fékk Sævar Helga Bragason, for- mann Stjörnuskoðunarfélagsins, í lið með sér við að koma búnaðinum upp. Friðrik segir að mikið af hans við- skiptavinum komi gagngert til landsins út af norðurljósunum, sem stundum sýni sig og stundum ekki, og því sé tilvalið að hafa upp á meira að bjóða. „Það kunna margir vel að meta þessar fallegu stjörnubjörtu nætur okkar. Ferðamenn hafa verið að nefna að þeim þætti gaman að geta skoðað stjörnurnar betur og í framhaldinu gerði ég smákönnun á meðal okkar viðskiptavina og fékk mjög góð viðbrögð svo við ákváðum að skella upp stjörnusjónaukum.“ Áhugi á himingeimnum er að aukast og segir Friðrik að hann hafi orðið var við mikinn áhuga erlendra ferðamanna á því sem í honum býr, það séu til dæmis til alþjóðleg sam- tök, Dark-Sky Association, sem taki að sér að votta svæði víða um heim með litla ljósmengun svo ferðamenn geti verið öruggir um að sjá til him- ins á þeim svæðum. Eins og áður segir er stefnt á að opna stjörnuskoðunarhúsið um helgina og mun það líklega standa fleirum en gestum hótelsins til boða. „Það hefur borist töluvert af fyrir- spurnum um hvort hægt verði að kaupa aðgang að húsinu fyrir aðra en hótelgesti sem geta nýtt sér að- stöðuna endurgjaldslaust. Það eru margir áhugasamir um að komast í betri græjur en við eigum eftir að út- færa hvernig við höfum þetta,“ segir Friðrik. Stjörnurnar í myrkrinu Morgunblaðið/hag Norðurljós og stjörnuhiminn Síbreytileg fegurð sem laðar að ferðamenn.  Tveimur stjörnusjónaukum komið fyrir í sérútbúnu húsi við Hótel Rangá  Selja það sem sést í myrkrinu Annir í flug- stjórnarmiðstöð- inni í Reykjavík á fimmtudag voru sambærilegar við þær sem voru í eldgosinu í Eyja- fjallajökli þegar þurfti að beina allri flugumferð yfir hafið norður fyrir gosstöðv- arnar. Ástæðan er hagstæðir há- loftavindar sem hafa verið ríkjandi undanfarna mánuði og hafa leitt til þess að umferð um íslenska flug- stjórnarsvæðið hefur aukist um allt að 30%. Friðþór Eydal, talsmaður Isavia, segir að annirnar hafi ekki kostn- aðarauka í för með sér. Notendur þjónustunnar greiði fyrir hana sam- kvæmt útreikningum Alþjóðaflug- málastofnunarinnar. Hún innheimtir gjöld af notendum sem miðast við kílómetrafjöldann sem floginn er á hverju svæði um sig. kjartan@mbl.is Þyngri flugumferð við Ísland  Isavia hagnast á meiri umferð Frá flugumferðar- miðstöðinni. Einbýlishús eða raðhús í Fossvogi óskast – staðgreiðsla Er með kaupanda að einbýlis eða raðhúsi í Fossvogi. Traustur kaupandi – staðgreiðsla. Upplýsingar gefur Kjartan Hallgeirsson s. 824-9093. Sérhæð í vesturborginni óskast – staðgreiðsla Höfum kaupanda að 150-200 fm hæð á Högum, Melum, Ægissíðu eða Skjólunum. Staðgreiðsla í boði. Upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Einbýlishús í vesturborginni óskast – staðgreiðsla Höfum kaupanda að 250-350 fm einbýlishúsi í vesturborginni. Gjarnan við Ægisíðu eða í Skjólunum og með sjávarútsýni. Staðgreiðsla í boði. Upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Einbýlishús í Vesturborginni eða Þingholtunum óskast – staðgreiðsla Höfum kaupanda að 300-400 fm einbýlishúsi í Þingholtunum eða Vesturborginni. Staðgreiðsla í boði. Upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Sérhæð í nágrenni Kjarvalsstaða eða landsspítala óskast – staðgreiðsla Höfum kaupanda að 130-180 fm sérhæð eða sérbýli í nágrenni Kjarvalsstaða eða Landsspítala. Staðgreiðsla í boði. Upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson. Reykjavík Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • www.eignamidlun.is Óskum eftir eignum fyrir viðskiptavini okkar Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt, ekkja Jonathans Motzfeldt, fv. formanns landsstjórnar Grænlands, tók við bók ljósmyndarans RAX, „Veiðimenn norðursins“ í höfuðstöðvum Arion banka í gær en þar stendur nú yfir sýning á Grænlandsmyndum hans. Það var Klara Steph- ensen, umsjónarmaður listaverka og sýningar- halds Arion banka, sem átti frumkvæðið að sýn- ingu RAX en hún lætur senn af störfum. Ljósmyndasýning RAX í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni Morgunblaðið/Golli Mætti með ljósmyndabókina af norðurslóðum Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Í dómi yfir pilti, sem í fyrradag var dæmdur til að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun fyrir tilraun til að bana níu ára gamalli stúlku í Hafnar- firði, kemur fram að móðir hans hafði allnokkru áður gert sér grein fyrir að „eitthvað væri í vændum“. Móðirin lét heilbrigðisyfirvöld og félagsþjónustu vita að hún gæti ekki tryggt að pilt- urinn ylli ekki einhverjum gríðarlegu líkamstjóni eða yrði jafnvel einhverj- um að bana. Daginn áður en hann réðst að stúlkunni með hníf og reyndi að skera hana á háls hafði drengurinn verið útskrifaður af barna- og ung- lingageðdeild Landspítalans, BUGL, gegn mótmælum starfsmanna barna- verndar Hafnarfjarðarbæjar sem töldu enn fulla ástæðu til að halda að hann gæti verið hættulegur sjálfum sér og umhverfi sínu. Dómurinn er ítarlegur, um 16 blað- síður að lengd, og í honum eru m.a. ástandið verra en ella og leitt til inn- lagnar á BUGL. Mánuði áður en hann réðst á stúlk- una, 27. apríl 2013, braust pilturinn inn til skólasystur sinnar, með það í huga að ráða henni bana, en hún var ekki heima. Hann var í kjölfarið vist- aður á BUGL í um þrjá daga en fór þaðan á Stuðla. Þaðan útskrifaðist hann 10. apríl en leggja þurfti hann inn á BUGL strax daginn eftir. Þaðan var hann síðan útskrifaður 26. apríl. Árásina framdi hann daginn eftir. Móðir varaði við hættu af syni sínum  Pilturinn var mjög veikur  Óttaðist að hann ylli einhverjum gríðarlegu líkamstjóni eða yrði ein- hverjum að bana  Hrakaði eftir að starfsmaður fór í leyfi  Útskrifaður af BUGL daginn fyrir árásina Djúpstæður vandi » Pilturinn sem um ræðir á við djúpstæðan og langvarandi geðrænan vanda að etja. » Taldi Héraðsdómur Reykja- ness hann ósakhæfan og hann var því ekki dæmdur í fangelsi heldur til að sæta öryggis- gæslu á viðeigandi stofnun. raktar umsagnir geðlækna og sál- fræðinga. „Á skjön félagslega“ Tveir geðlæknar benda á að pilt- urinn hafi haft stuðning af þroska- eða iðjuþjálfa í skólanum en þegar hann fór í leyfi haustið 2012 hafi eng- inn komið í hans stað. Í kjölfarið hafi piltinum hrakað og verið fluttur á deild fyrir börn sem væru „að lenda á skjön félagslega“ og verið farinn að reykja og drekka. Það hefði gert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.