Morgunblaðið - 29.01.2014, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 29.01.2014, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Betri hafnaraðstaða gæti skapað ýmis tækifæri hér í Borgarnesi. Þar horfum við meðal annars til ferða- þjónustunnar og að menn geti róið héðan og sótt sér í soðið. Möguleik- arnir gætu raun- ar verið miklu fleiri,“ segir Páll S. Brynjarsson, bæjarstjóri í Borgarbyggð. Á fundi bæjar- ráðs í Borgar- byggð á dögunum kynnti bæjarstjórinn hugmyndir Faxaflóahafna hf. um framkvæmdir við Borgarneshöfn í Brákarey. Þar á bæ hafa um 60 millj. króna verið eyrnamerktar verkefninu og er ætl- unin að fara í undirbúningsvinnu á þessu ári. Á næsta ári yrði höfnin svo dýpkuð og þar komið fyrir flot- bryggju, en það er aðstaða sem þyk- ir henta vel fyrir smærri báta. End- ur fyrir löngu sigldi Akraborgin alla leið í Borgarnes, en áratugir eru síð- an það lagðist af. Höfnin er þó alltaf til staðar og síðan Borgfirðingar gerðust aðilar að Faxaflóahöfnum árið 2005 hefur verið rætt um að bæta aðstöðuna. Sandburður er þó meðal þess sem setur strik í reikn- inginn. Krabbaveiðar og skútur Síðasta árið hefur úr Borgarnesi verið gerður út bátur til tilrauna- veiða á krabba. Þá eiga nokkir karl- ar skektur og henda út færum á firði ef sá gállinn er á þeim. „Útgerð hér hefur verið að eflast og það er ekki langt síðan smábáta- félagið Þormóður í Borgarnesi var endurvakið. Þá sjáum við fyrir okk- ur tækifæri við höfnina, ef til dæmis skútufólk myndi vilja renna hér inn. Væntanlega verður þetta þó alltaf frekar í smærri stíl,“ segir Páll S. Brynjarsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg Borgarfjörður Styrkja á möguleika til sjósóknar og siglinga úr Borgarnesi með endurbótum á höfninni í Brákarey, sem er fremst á myndinni. Verja 60 millj. kr. í Borgarneshöfn  Ferðaþjónusta og fiskur í soðið Páll Snævar Brynjarsson Allar vörur á HÁLFVIRÐI Engjateigur 5• Sími 581 2141• www.hjahrafnhildi.is• Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 Vertu vinurokkará facebook LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 | SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660 Verslunin í Spönginni LOKAR – allt á að seljast SILFUR 50% afsláttur GULL 30% afsláttur ÚR 50% af sláttur DKNY - Casio - Fossil - Diese l Laugavegi 63 • S: 551 4422 Þú minnkar um eitt númer Skoðið sýnishornin á laxdal.is Perfect fit Ný sending Vertu vinur á ÚTSÖLU VÖRUR 40-60% AFSL. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Skrúfur, múrboltar og festingavörur Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 Río Tungusófi 3+t verð 149.900 áður 33 6.200 AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM70% Allt a ð ÚTSALA Rúm frá 99.000 Tungusófar frá 125.900 kr Hornsófar frá 129.900 kr Sófasett frá 199.900 kr Havana bogasófi verð 199.900 áður 30 2.166 Sjónvarpskápur 55.900 Skenkur 77.000 Sjónvarpsskápar frá 33.500 Barskápur 89.000 Blaðamannafélag Íslands (BÍ) hefur undirritað nýja kjarasamninga við útgáfufélagið Birting og Fréttatím- ann, samkvæmt tilkynningu frá fé- laginu. Áður hafði verið gerður kjarasamningur við DV. Félagið segir viðræður við aðra fjölmiðla, sem standa utan Samtaka atvinnu- lífsins (SA), ganga vel. Samning- arnir verða bornir undir atkvæði á viðkomandi vinnustöðum í dag. Fyrsta fundinum í kjaradeilu BÍ við SA hjá ríkissáttasemjara lauk síð- degis í gær og segir í tilkynningu BÍ að fundurinn hafi verið árangurs- laus. Nýr fundur hefur verið boð- aður að viku liðinni. SA fara með samningsumboð fyrir Árvakur, út- gefanda Morgunblaðsins og mbl.is, 365, útgefanda Fréttablaðsins, Vís- is og Stöðvar 2 og Ríkisútvarpið. Í Morgunblaðinu í gær var vitnað ranglega í tilkynningu BÍ um samn- ing félagsins við útgefendur DV og dv.is. Í tilkynningunni stóð hvergi að viðræðum BÍ við SA gengju vel, líkt og var í fréttinni, en fram kom að viðræðum við fjölmiðla, sem standa utan SA, miðaði vel. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Blaðamannafélagið semur við Birting og Fréttatímann

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.