Morgunblaðið - 29.01.2014, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Talið var í gær að um 90 byggingar
hefðu brunnið í skógar- og kjarreld-
um sem loguðu í bæjunum Hasvåg og
Småvære í sveitarfélaginu Flatanger
í Norður-Þrændalögum í Noregi.
Yfirvöld sögðu að allir íbúar bæjanna
væru heilir á húfi, að sögn frétta-
vefjar Aftenposten.
Í bæjunum voru alls 139 byggingar
og í fyrstu var talið að þær hefðu allar
eyðilagst en síðustu fregnir hermdu í
gær að útlit væri fyrir að hægt yrði
að bjarga 50 þeirra, að því er fram
kom á vef NRK, norska ríkisútvarps-
ins. Þar sagði ennfremur að ástandið
í Hasvåg væri ekki jafn slæmt og ótt-
ast var og hugsanlega mætti bjarga
þar einhverjum byggingum. Á þessu
svæði er mikið um sumar- og frí-
stundahús, en lítið um fasta búsetu.
Þeim rúmlega 30 íbúum sem hafast
þarna við allt árið hefur verið komið á
öruggan stað og engar fregnir hafa
borist af slysum á fólki, að sögn
NRK.
Tugir slökkviliðsmanna voru að
störfum, en afar erfitt var að ráða við
eldinn þar sem gróður er þarna þurr
og talsvert hvassviðri.
Líklega af völdum neista
frá raflínum
Anders Anundsen, dómsmála-
ráðherra Noregs, var staddur í Flat-
anger í gær. Hann sagði að ástandið
væri „sorglegt“. „Ég er kominn hing-
að til að fylgjast með því hvernig unn-
ið er úr málum, en það sem skiptir
mestu máli er að sýna þeim, sem
þetta snertir mest, samlíðan,“ sagði
Anundsen í samtali við norska ríkis-
sjónvarpið. „Margir hafa misst allt
sitt.“
Að Hasvåg liggur einungis einn
vegur, en ekki var talið óhætt að fara
um hann vegna eldanna og torveldaði
það slökkvistarfið talsvert. Ekki var
hægt að senda þyrlur til bæjanna
vegna hvassviðrisins.
Skip norsku strandgæslunnar, KV
Bergen, hélt til Flatanger og átti að
koma þangað í gærkvöldi. Skipið er
búið öflugum vatnsdælum og getur
einnig flutt bæði fólk og búnað.
Tilkynning barst um eldinn um
klukkan 22.30 í fyrrakvöldi. Flatan-
ger var án símasambands og raf-
magns.
Upptök eldanna eru talin vera
neistar frá raflínum sem slógust sam-
an í rokinu, að því er fram kom í til-
kynningu frá sveitarstjórn Flat-
anger.
Talið að hátt í 100
hús hafi brunnið
Slys urðu ekki á fólki í stórbruna í Norður-Þrændalögum
EPA
Tugir húsa brunnu Hús í ljósum logum í bænum Hasvåg í Noregi. Myndin var tekin í björgunarskipi.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Svonefndir ólígarkar, fámennur
hópur auðmanna, eru taldir geta
skipt sköpum um pólitíska framtíð
Viktors Janúkó-
vítsj, forseta
Úkraínu, ekki
síður en mótmæl-
endurnir sem
hafa krafist þess
að hann segi af
sér.
Örfáir ólíg-
arkar stórauðg-
uðust á einka-
væðingu stjórnvalda í Úkraínu eftir
hrun Sovétríkjanna 1991 líkt og
rússnesku ólígarkarnir sem voru inn
undir hjá Borís Jeltsín, þáverandi
forseta Rússlands. Þegar Vladímír
Pútín komst til valda í Rússlandi fyr-
ir fjórtán árum leyfði hann ólígörk-
unum að halda eignum sínum gegn
því að þeir hefðu ekki afskipti af
stjórnmálum landsins. Þegar auð-
ugasti ólígarkinn, Míkhaíl Khodor-
kovskí, tók að styðja stjórnarand-
stæðinga og virtist jafnvel hafa
augastað á forsetaembættinu var
hann handtekinn og dæmdur í fang-
elsi fyrir fjársvik.
Ólígarkarnir í Úkraínu studdu
Viktor Janúkóvítsj í forsetakosning-
unum árið 2004 þegar hann var lýst-
ur sigurvegari þeirra en hæstiréttur
Úkraínu úrskurðaði að kjósa ætti að
nýju vegna stórfelldra kosninga-
svika. Ólíkt rússnesku auðkýfing-
unum hafa úkraínsku ólígarkarnir
verið óhræddir við að hafa afskipti af
stjórnmálunum, einkum Rínat
Akhmetov, auðugasti maður lands-
ins, sem er talinn hafa átt stóran
þátt í því að koma Janúkóvítsj til
valda.
Bendlaður við mafíu
Akhmetov á um hundrað fyrir-
tæki, m.a. námu- og stálfyrirtækið
METINVEST, stærsta einkafyrir-
tæki Úkraínu. Til
að mynda á hann
námur í Donbas í
austanverðu
landinu þar sem
stuðningurinn við
Janúkóvítsj er
mestur. Akhma-
tov hefur verið
sakaður um að
vera viðriðinn
skipulögð glæpasamtök í Úkraínu en
það hefur aldrei verið sannað. Hann
er einnig eigandi fótboltafélagsins
Shaktar Donetsk sem hann erfði eft-
ir að gamall samstarfsmaður hans,
meintur mafíuforingi, beið bana í
sprengjutilræði árið 1995. Aldrei
hefur verið upplýst hverjir urðu
honum að bana.
Auðguðust á spillingunni
Ólígarkarnir hafa hagnast stór-
lega á pólitísku spillingunni í Úkra-
ínu síðustu tvo áratugi. Auður þeirra
hefur aukist mjög á síðustu þremur
árum eftir Janúkóvítsj varð forseti.
Talið er að ólígarkarnir hafi beitt
sér fyrir því að ríkisstjórn Janúkó-
vítsj hóf samningaviðræður um auk-
ið samstarf við Evrópusambandið
vegna þess að þeir vildu fá aðgang
að mörkuðum í Vestur-Evrópu. For-
setinn ákvað hins vegar í nóvember
sl. að hætta við að undirrita sam-
starfssamning við ESB og hugsan-
legt er að ólígarkarnir hugsi honum
þegjandi þörfina vegna þeirrar
stefnubreytingar.
Ólígarkarnir eru einnig taldir
vera óánægðir með aukin umsvif
„Fjölskyldunnar“, hóps kaupsýslu-
manna sem tengjast forsetanum og
syni hans, sem hefur stórauðgast í
forsetatíð Janúkóvítsj. Einn þeirra,
Sergej Kúrtsjenkó, hefur safnað
auði sem metinn er á jafnvirði tæpra
100 milljarða króna, að sögn breska
dagblaðsins The Guardian. Tímarit-
ið Forbes í Úkraínu rannsakaði auð-
söfnun Kúrtsjenkós og komst að
þeirri niðurstöðu að hann hefði ekki
getað orðið svona auðugur á þremur
árum án hjálpar pólitískra bak-
hjarla. Kúrtsjenkó svaraði þessu
með því að kaupa eignarhaldsfélag
sem á tímaritið, að því er fram kem-
ur á vef The Guardian.
Ólígarkarnir hafa haldið pólítísk-
um áhrifum sínum síðustu tvo ára-
tugi með því að vera sveigjanlegir í
stjórnmálunum. Hermt er að þeir
hafi að undanförnu gert sér dælt við
leiðtoga stjórnarandstöðunnar til að
baktryggja sig og eiga hauka í horni
ef Janúkóvítsj hrökklast frá völdum.
Ólígarkarnir óttast að pólitíska
kreppan leiði til efnahagshruns í
landinu, þ.e. ef viðskiptin við aðildar-
lönd Evrópusambandsins og fleiri
vestræn ríki minnka.
Athygli vakti að Akhmetov birti
yfirlýsingu á netinu á laugardaginn
var þar sem hann lagði áherslu á að
leysa þyrfti stjórnmálakreppuna
með friðsamlegum hætti, ekki kæmi
til greina að beita vopnavaldi. Sama
dag gaf Janúkóvítsj loksins eftir,
féllst á samningaviðræður við leið-
toga stjórnarandstöðunnar og
bauðst til að deila með þeim völd-
unum með því að mynda nýja ríkis-
stjórn. Var það tilviljun að forsetinn
féllst á eftirgjöfina sama dag og auð-
ugasti olígarkinn hafnaði valdbeit-
ingu? Nei, segja sumir.
Ólígarkarnir
taldir geta
skipt sköpum
Janúkóvítsj getur ekki lengur stólað
á auðkýfinga sem studdu hann til valda
Forsætisráðherra Úkraínu, Myk-
ola Azarov, sagði af sér í gær
ásamt allri ríkisstjórninni í von
um að það dygði til að binda
enda á mótmælin í Kíev og
fleiri borgum síðustu vikur.
Leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar sögðust samt ætla að
halda áfram baráttunni fyrir
því að Janúkóvítsj forseti léti
af embætti.
Ekki er vitað hver tekur við
embætti forsætisráðherra. Ar-
sení Jatsenjúk, leiðtogi Föður-
landsflokksins, hafnaði í gær
tilboði Janúkóvítsj um að fara
fyrir nýrri stjórn. Annar leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, Vítalí
Klítsjkó, kvaðst ekki vilja verða
ráðherra í ríkisstjórn meðan
Janúkóvítsj væri forseti.
Þing Úkraínu afnam í gær
umdeild lög sem sett voru 16.
janúar til að takmarka réttinn
til mótmæla. Stjórnarand-
staðan hafði krafist þess að
lögin yrðu felld úr gildi.
Öll stjórnin
sagði af sér
Stjórnarandstæðingar á þinginu.
EFTIRGJÖF SAMÞYKKT
Takk hreinlæti ehf, Viðarhöfða 2, 110 Reykjavík - Sími 577 6500 - Fax 577 6505
Geymslubox Ýmsarstærðirog gerðir
Viktor Janúkóvítsj
Rínat Akhmetov