Morgunblaðið - 29.01.2014, Page 22

Morgunblaðið - 29.01.2014, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014 ✝ Steinunn Jóns-dóttir (Stella) fæddist á Ísafirði 27. desember 1923. Hún lést hinn 17. janúar 2014 á Hjúkrunarheimil- inu Sunnuhlíð, Kópavogi. Foreldrar Stein- unnar voru þau Hrefna Sigurgeirs- dóttir og Jón Arin- björnsson. Bróðir Steinunnar var Sigurgeir, f. 11.4. 1921, d. 26.4. 2005, kvæntur Hrafnhildi Thors og eiga þau fjögur börn. Þann 17. janúar 1953 giftist Steinunn, Sigfúsi Halldórssyni tónskáldi, f. 7.9. 1920, d. 21.12 1996. Börn Steinunnar og Sig- fúsar eru: 1) Gunnlaugur Yngvi, f. 12.3. 1955, maki hans er Jóhanna Greta Möller, f.1958. Synir þeirra eru: a) Sig- fús, f. 1976 í sambúð með Hel- enu Dögg Haraldsdóttur, um og þá oftar en ekki í hús- um sem faðir hennar hafði byggt. Hún gekk í Austurbæj- arskóla og síðar í Mennta- skólann í Reykjavík en hætti námi áður en hún lauk stúd- entsprófi. Eftir það starfaði hún um eins árs skeið á skrif- stofu KRON, en réð sig eftir það til starfa á lögfræðiskrif- stofu Sigurgeirs Sigurjóns- sonar. Eftir nokkurra ára starf þar hóf hún störf á skrifstofu vélsmiðjunnar Héðins þar sem hún vann til ársins 1947 að hún hélt utan til náms. Fyrst til Sví- þjóðar og síðan til Danmerkur þar sem hún nam við Hånd- arbejdet Fremme hannyrða- skólann. Eftir heimkomuna hóf hún störf að nýju hjá Héðni og vann þar til ársins 1955. Frá 1958 til 1971 starfaði Steinunn í Útvegsbanka Íslands, lengst af sem ritari bankastjóra og lögfræðinga. Eftir það helgaði hún sig heimilisstörfum. Síð- ustu 10 árin dvaldi Steinunn á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi. Útför hennar verður gerð frá Kópavogskirkju í dag, 29.janúar 2014, og hefst at- höfnin klukkan 13. f.1978. Börn Sig- fúsar með Huldu Egilsdóttur eru Gunnlaugur Yngvi, f. 1994 og Hrefna, f. 1998. Börn Hel- enu eru: Hulda Líf, f. 1997 og Ágúst Haraldur, f. 1999 b) Yngvi Páll, f. 21.4. 1978, í sam- búð með Guðrúnu Helgu Guðmunds- dóttur. f. 1983. Synir þeirra eru Jóhann Grétar, f. 2009 og Guðmundur Kári f. 2012. 2) Hrefna, f. 7.4. 1957, maki henn- ar er Ágúst Elías Ágústsson, f.1952. Þeirra barn er Helga, gift Jóhannesi Baldvini Jóns- syni f. 1979. Börn þeirra eru Steinunn Marsilía f. 2004, Anna Hrefna f. 2008 og Ágúst Bald- vin f. 2011. Fyrstu ár ævinnar bjó Steinunn á Ísafirði en fjöl- skyldan flutti til Reykjavíkur 1927 og bjó þar á ýmsum stöð- Það er mikið lán fólgið í því að eiga þess kost að alast upp á góðu heimili. Ég var svo heppinn að eiga foreldra sem sköpuðu mér ævintýralegan heim og mikið ást- ríki í uppvextinum. Nú hafa þau bæði kvatt þessa jarðvist og skilja eftir stór skörð. Pabbi dó fyrir 17 árum og nú er mamma líka farin. Ótrúlegt hvað umskipti í lífinu geta orðið með skjótum hætti. Það eru til að mynda ekki margir dagar síðan við mamma töluðum um ferð okkar tveggja til Kaup- mannahafnar vorið 1962. Það var ævíntýri fyrir sjö ára dreng að fá að sigla með Gullfossi og dvelja í borginni við Eyrarsund um skeið. Á fyrsta degi um borð í skipinu keypti hún fyrir mig litla tvo bíla í versluninni og var það upphafið að fyrstu söfnunaráráttu minni. Við rifjuðum upp stóran hluta ferðarinnar og mundum bæði vel eftir því að hafa farið á vitlausum stað úr strætó þegar við fórum í dýragarðinn, hversu oft við geng- um út á Löngulínu og þar fram eftir götunum. Seinna, þegar ég var kominn á næsta stig áráttuhegðunar minn- ar sem var hljómplötusöfnun kom stundum fyrir að ég var svo illa haldinn af löngum í einhverja plötu að hún hljóp undir bagga með mér og bjargaði „sálarheill“ minni. Ég man t.d. vel eftir að hún lét mig hafa aura til að ég gæti keypt Disraeli Gears með Cream en ég er hræddur um að það hafi verið skorið af matarpen- ingunum það sem eftir lifði mán- aðar. Ég var svokallað lyklabarn. Fékk lykil um hálsinn þegar ég var 6 ára en það var þó alltaf hugsað fyrir því að ég fengi að borða í nærliggjandi húsi. Ég er síður en svo bitur yfir þessu hlut- skipti mínu. Tel að ég hafi bara verið heppinn að fá að alast upp við aðstæður þar sem fyrst og fremst ríkti frelsi sem efldi sjálf- stæði mitt. Ég veit þó að mamma þráði ekkert heitar en að vera heimavinnandi og hugsa um börnin sín. Ég var ekki mikið fyrir að láta kjassa mig og kyssa þegar ég var barn og þetta skildi mamma mætavel. Hún skildi hvernig mér leið og kom sinni væntumþykju í minn garð til skila með öðrum hætti. Ég hef einhvern veginn alltaf vitað hvað henni þótti vænt um mig og ég vona að hún hafi vit- að hversu undur vænt mér þótti um hana. Nú kann einhver að halda að allt hafi verið látið eftir mér en svo var nú aldeilis ekki. Mamma var á margan hátt ströng í upp- eldinu. Hún setti reglur og vildi að eftir þeim væri farið. Það var líka oftast gert, held ég. Það var samt enginn hávaði eða læti í henni þegar að mér varð eitthvað á. Það var bara talað við mig eins og maður við mann og eftir slík samtöl velktist maður ekki í nein- um vafa um hver réði. Hún var gáfuð og vel að sér um margt auk þess sem minni hennar var ótrú- legt og þannig var það til hinsta dags. Mamma var fyrst og fremst kona sem elskaði fjölskyldu sína og tók virkan þátt í sigrum henn- ar og sorgum. Það skipti ekki máli hverjir áttu í hlut. Börnin, tengdabörn, barnabörn eða barnabarnabörn. Öll vorum við henni svo kær og öllum þótti okk- ur afskaplega vænt um hana. Þó hún hafi nú kvatt þessa jarðvist þá mun hún lifa um í hugum okk- ar allra. Gunnlaugur Yngvi. Í dag kveð ég ástkæra tengda- móður mína og minningarnar hrannast upp. Í fyrsta skipti er ég kom í Víði- hvamminn var mér tekið opnum örmum, umvafin ást og hlýju og þannig varð það fram á síðasta dag. Eitt vildi hún samt hafa á hreinu, að í hennar húsum væri sonur hennar aldrei kallaður ann- að Gunnlaugur, ekki Gulli. Stella var mjög listhneigð. Hún saumaði og prjónaði ekki bara nánast öll föt á Hrefnu og Gunn- laug þegar þau voru börn heldur fengu barnabörnin og barna- barnabörnin líka að njóta þessara krafta hennar. Ef hún fann ekki rétta sniðið bjó hún það bara til. Hjá okkur er margt fallegs hand- verks eftir hana. Stella var alltaf að gera eitt- hvað í höndunum, man ég þær stundir er við sátum tvær og saumuðum út. Sérstaklega eftir að Sigfús sonur minn fæddist en fyrstu sex mánuðina eftir fæð- ingu hans bjuggum við Gunnlaug- ur hjá Sigfúsi og Stellu. Við Stella áttum ýmislegt sam- eiginlegt og er þá fyrst að nefna hannyrðirnar. Naut ég kennslu hennar ríkulega í þeim efnum. Við höfðum báðar gaman af ljóð- um Davíðs Stefánssonar en hún var líka mjög hrifin af Jónasi Hallgrímssyni, sérstaklega ný- yrðunum sem hann kom með í ís- lenskt mál en áhugi hennar á ís- lensku máli var mikill og leiðrétti hún mig gjarnan ef henni fannst ég ekki tala rétt mál. Líkt og ég hafði Stella gaman af lestri góðra bóka og síðasta ár notaði hún tím- ann vel til að hlusta á bækur sem hún fékk frá Hljóðbókasafninu. Við studdum sama flokkinn í stjórnmálum. Við tengdamæðg- urnar ræddum oft pólitíska við- burði og höfðum gaman af, hún lét hins vegar þau orða falla oftar en einu sinni að ekki þýddi að ræða um pólitík við son sinn. Stella var einnig ágætis tungu- málamanneskja og ættfræði var henni oft ofarlega í huga. Tengdamamma gekk hljóðlega um heiminn og var ekki mikið fyr- ir að láta á sér bera. Fjölskyldan var henni allt. Hún umvafði okkur öll ást sinni og hlýju. Barnabörn- um sínum og langömmubörnum (sem kölluðu hana alltaf ömmu Stellu) var hún frábær Amma með stóru A-i. Stella var ekki skaplaus, langt í frá, hún sagði sína meiningu umyrðalaust, ekki með neinum látum en það var tekið mark á því sem hún sagði. Hún fylgdist með öllu sínu fólki fram á síðasta dag. Hún vissi um helstu áhugamál okkar og fylgdist vel með Val og Arsenal eða hvernig liðinu sem hann Yngvi þjálfaði gengi. Það var allt á hreinu á þeim bæ en ég veit þó ekki til þess að hún hafi haft neinn sérstakan áhuga á íþróttum. Elsku Stella, þú fékkst að sofna svefninum langa án þess að þjást og tengdapabbi er nú búinn að heimta ástina sína aftur. Það hafa verið gleðifundir. Ég skal passa litla drenginn hennar mömmu sinnar eins og þú sagðir svo oft og hlóst. Ég þakklát fyrir að hafa verið hjá þér síðustu tvo dagana sem þú lifðir og það var jafn skemmtilegt að spjalla við þig þá sem endra- nær. Takk fyrir að hafa alltaf ver- ið til staðar fyrir okkur. Ég er rík- ari eftir að hafa kynnst þér. Starfsfólki Sunnuhliðar (Álf- hól) viljum við fjölskyldan þakka góða umönnun. Þín. Jóhanna. Elsku amma mín, Það er skrítið að sitja og skrifa þessi orð. Það má með sanni segja að heimurinn minn sé daufari án þín, en jafnframt að það séu for- réttindi að hafa fengið að þekkja þig og hafa verið þér kær. Þú verður ávallt fyrirmynd mín í svo mörgu og ég kem ávallt til með að bera minningu þína gegnum líf mitt í hjarta mínu. Ég kveð þig nú í bili. En í söknuðinum brosi ég. því þegar ég hugsa til þín, þá eru það eingöngu góðar minningar sem fara í gegnum huga minn. Ég vildi að við gætum átt eitt samtal í viðbót, en það verður víst að bíða betri tíma. Þangað til þá segi ég góða ferð, Stella, amma mín. Ég elska þig. Þinn Sigfús Gunnlaugsson (Uggi.) Það er með mikilli sorg í hjarta sem ég kveð þig, elsku amma mín, en minningarnar lifa og munu gera það um ókomin ár. Það er huggun harmi gegn að þú hafir fengið að fara svo friðsællega frá okkur, á brúðkaupsdeginum ykk- ar afa. Ég man síðasta skiptið sem ég heimsótti þig, ef ég hefði vitað þá hvað yrði hefði ég sagt þér hve mikið ég elskaði þig, ekki bara sem ömmu heldur sem einn minn besta vin. Það var hægt að trúa þér fyrir öllu, leyndarmálin voru vel geymd hjá þér. Þú varst fróðleiksbrunnur með svo ótrú- legt minni að maður kom aldrei að tómum kofunum hjá þér. Þær eru ófáar minningarnar tengdar þér úr æsku minni og svo seinna á fullorðinsárum sem mér þykir óendanlega vænt um. Að heimsækja ömmu Stellu og afa Sigfús í Víðihvamminn var alltaf ánægjulegt og ég man þegar við bræðurnir veifuðum ykkur bless í hvert einasta skipti úr bílnum þar til það sást ekki lengur í húsið. Ég man líka þegar ég taldi allar postulínsstytturnar þínar og til- kynnti þér svo hvað þú ættir margar. Seinna var ég svo hepp- inn að fá að búa hjá ykkur í einn vetur og mun ég búa að því alla ævi, þvílík forréttindi. Það var svo notalegt að setjast hjá þér og spjalla, þú sitjandi í ruggustóln- um þar sem þú réðir dönsku krossgáturnar og hlustaðir á afa spila. Við gátum rætt um alla heimsins hluti og skipti engu máli hvar var stigið niður fæti. Ég á eftir að sakna þín, elsku amma mín, meira en orð fá lýst. Það er eigingirnin í manni að halda að allt haldist óbreytt, að fólkið manns verði alltaf til staðar. Ég skal passa upp á fjölskylduna þína sem var þér allt, langömm- ustrákana þína sem þér þótti svo vænt um og elskaðir. Þeir eiga oft eftir að fá að heyra vitnað í lang- ömmu sína. Það að þú og afi séuð sameinuð í eilífðinni huggar okk- ur og gleður en þó skilur það eftir tómarúm sem aðeins tíminn get- ur grætt. Ég elska þig, amma mín, megi Guð geyma þig. Þinn Yngvi. Steinunn Jónsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma Stella. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Gunnlaugur Yngvi og Hrefna, Jóhann Grétar og Guðmundur Kári. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA GUNNARSDÓTTIR, Prestastíg 11, áður Hraunbæ 128, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 31. janúar kl. 15.00. Pálmi Ingólfsson, Guðrún Ingólfsdóttir, Eiríkur Rögnvaldsson, Ingólfur Eiríksson, Marianne Tonja Ringström Feka, Daniel Feka og Dennis Feka. ✝ Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, ÁRNI JÓNSSON bóndi, Hlíðarendakoti, Fljótshlíð, andaðist að heimili sínu fimmtudaginn 16. janúar. Jarðarförin fer fram frá Breiðabólstaðarkirkju föstudaginn 7. febrúar kl. 11.00. Guðrún Stefánsdóttir, Gerður Guðrún Árnadóttir, Jón Örn Árnason, Ásdís Hulda Árnadóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR L. JÓNSSON, Kríuási 47, Hafnarfirði, lést á Borgarspítalanum fimmtudaginn 23. janúar. Útförin fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 31. janúar kl. 13.00. Sigurgeir Sigurðsson, Nana Mardiana, Fanney Sigurðardóttir, Ágúst Þórðarson, Guðrún Halla Sigurðardóttir og barnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HAUKUR HARALDSSON, Austurgerði 4, Reykjavík, lést á dvalarheimilinu Mörk í Reykjavík þriðjudaginn 28. janúar. Auður Jónsdóttir, Jón Haukur Hauksson, Brandur A. Hauksson, Margrét Hauksdóttir, Hannes Guðmundsson, Ólafur Þór Hauksson, Guðný Þ. Ólafsdóttir, Kristín Hauksdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁGÚSTA HÖGNADÓTTIR, Fiskakvísl 7, lést á Landspítalanum, Fossvogi, föstudaginn 24. janúar. Hún verður kvödd frá Fossvogskirkju mánudaginn 3. febrúar kl. 13.00. Þeir sem vilja minnast hennar leyfi líknarfélögum að njóta þess. Elín Ingibjörg Eyjólfsdóttir, Júlíus Helgi Eyjólfsson, Svala Huld Hjaltadóttir, Katrín Lilja og Guðjón Ágúst. ✝ Okkar ástkæra ættmóðir, STELLA STEFÁNSDÓTTIR, Mýrarvegi 117, Akureyri, er látin. Jarðarförin auglýst síðar. Afkomendur. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ANTON BALDVIN FINNSSON skipasmíðameistari, Ránargötu 25, Akureyri, sem lést 22. janúar, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 31. janúar kl. 13.30. Steinunn Ragnheiður Árnadóttir, Jóhanna Maríanna Antonsdóttir, Ingibjörg Antonsdóttir, Þórarinn Arinbjarnarson, Ragnheiður Antonsdóttir, Árni Freyr Antonsson, Dóra Margrét Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.