Morgunblaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 27
„Nei nei! Þeir tóku mér opnum
örmum. Ég var nú svolítið að stríða
þeim fyrst – sagðist vera kominn í
þróunarstarf til að hjálpa þeim að
moka úr öskustónni því hérna var
náttúrlega ennþá allt á kafi í vikri. Á
þessum árum vildu Eyjamenn að allt
yrði eins og það var fyrir gos. En
mér hefur alltaf liðið vel hér.
Ef ég minni þá núna á að ég sé að-
fluttur þá harðneita þeir því. Ég er
þess vegna löngu innvígður.“
Stefán hóf að kenna við Tónlistar-
skólann í Vestmannaeyjum 1976,
hefur starfað við skólann síðan og
verið skólastjóri hans frá 2011.
Hann hóf strax að leika með Lúðra-
sveit Vestmannaeyja og var stjórn-
andi hennar í 20 ár, 1976-77 og 1988-
2007.
Stefán hefur starfað í Rotary-
hreyfingunni í Vestmannaeyjum frá
1976, hefur þrisvar verið forseti
klúbbsins og er Paul Harris-félagi.
Hann sat í sóknarnefnd Landakirkju
í mörg ár og hefur setið í stjórn SÍL,
Sambands íslenskra lúðrasveita um
árabil.
Fjölskylda
Kona Stefáns er Jóhanna Gunn-
arsdóttir, f. 31.3. 1956, garðyrkju-
fræðingur. Hún er dóttir Gunnars
Jóhannssonar múrara og Unu Krist-
jánsdóttur húsfreyju en þau eru
bæði látin.
Fyrri kona Stefáns er Svanbjörg
Gísladóttir, f. 7.6. 1953, skrifstofu-
maður í Reykjavík. Stefán og Svan-
björg skildu 2004.
Börn Stefáns og Svanbjargar eru
Dagbjört, f. 9.4. 1977, húsfreyja í
Kópavogi, en maður hennar er Þór-
arinn Sveinsson, starfsmaður við
Alcan í Straumsvík, og eiga þau tvö
börn; Sigrún, f. 9.9. 1980, húsfreyja í
Vogum á Vatnsleysuströnd og á hún
tvö börn; Gísli, f. 31.1. 1984, háseti á
Herjólfi, búsettur í Eyjum en kona
hans er Guðrún Bergrós Tryggva-
dóttir, húsfreyja og verkakona, og
eiga þau tvö börn; Kristín, f. 4.6.
1986, nemi í Kaupmannahöfn en
maður hennar er Davíð Sigurðsson
nemi.
Dætur Jóhönnu eru Alda Jóns-
dóttir, f. 12.12. 1977, lögfræðingur
hjá RSK, en maður hennar er Arn-
þór Jónsson viðskiptafræðingur og
eiga þau einn son, og Marta Jóns-
dóttir, f. 17.5. 1979, lögfræðingur hjá
Samgöngustofu en maður hennar er
Smári Þorbjörnsson kennari.
Hálfsystkini Stefáns, samfeðra,
eru Eiríkur, f. 1963, húsasmiður á
Selfossi; Jón Kristinn, f. 1966, raf-
verktaki í Reykjavík; Grétar, f. 1968,
bóndi í Smjördölum í Flóa, og Mar-
grét, f. 1970, framhaldsskólakennari
og fararstjóri, búsett í Hafnarfirði.
Hálfsystkini Stefáns, sammæðra,
eru Elín Gunnarsdóttir, f. 1957,
íþróttakennari í Reykjanesbæ; Guð-
munda Gunnarsdóttir, f. 1959,
bankastarfsmaður á Selfossi; Erla, f.
1962, íþróttakennari í Reykjavík, og
Kristján Geir Gunnarsson, f. 1971,
markaðsstjóri hjá Nóa - Síríusi, bú-
settur í Mosfellsbæ.
Foreldrar Stefáns: Sigurjón Jóns-
son, f. 16.4. 1929, d. 17.7. 1991, bóndi
í Smjördölum, og Sigrún Kristjáns-
dóttir, f. 24.1. 1929, húsfreyja á Sel-
fossi. Stjúpfaðir Stefáns er Gunnar
Kristmundsson, f. 5.11. 1933, fyrrv.
verslunar- og skrifstofumaður á Sel-
fossi.
Úr frændgarði Stefáns Sigurjónssonar
Stefán
Sigurjónsson
Vigdís Gestsdóttir
húsfr. í Stardal
Stefán Þorsteinsson
b. í Stardal á Stokkseyri
Guðmunda Þóra Stefánsdóttir
húsfr. í Geirakoti
Kristján Þórður Sveinsson
b. í Geirakoti í Flóa
Sigrún Kristjánsdóttir
húsfr. á Selfossi
Guðbjörg Jónsdóttir
húsfr. í Ásum af Reykjaætt
Sveinn Einarsson
b. í Ásum í Gnúpverjahr.
Vigfús Jónsson
b. í Þorleifskoti í Flóa
Kristín Vigfúsdóttir
húsfr. í Smjördölum
Sigurjón Jónsson
b. í Smjördölum í Flóa
Jón Þorkelsson
b., smiður og sjóm. í Smjördölum
Sigríður Magnúsdóttir
húsfr. í Smjördölum
Þorkell Jónsson
b. í Smjördölum
Sólveig Snorradóttir
húsfr. í Þorleifskoti af Kröggólfs-
staðaætt, Bergsætt og Engeyjarætt
Jórunn Snorradóttir
húsfr. á Hvoli í Ölfusi
Salvör Gissurardóttir
húsfr. í Rvík
Gissur Jörundur
Kristinsson
framkvæmdastj.
í Kópavogi
Hannes
Hólmsteinn
Gissurarson
prófessor
Brúðarvals Stefán og Jóhanna stíga
dans undir berum himni.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014
Valgeir Helgason, prófastur íÁsum í Skaftártungu, fædd-ist á Litla-Sandi á Hvalfjarð-
arströnd 29.1. 1903. Hann var sonur
Helga Jónssonar, bónda og oddvita
á Litla-Sandi og á Þyrli á Hvalfjarð-
arströnd, og f.k.h., Guðleifar Jóns-
dóttur frá Svarfhóli í Svínadal.
Helgi var sonur Jóns Árnasonar,
smiðs í Bakkakoti á Álftanesi og síð-
ar í Hafnarfirði, og Valgerðar Árna-
dóttur húsfreyju. Guðleif var dóttir
Jóns Erlendssonar, bónda og vefara
á Hóli og á Svarfhóli í Svínadal, og
k.h., Guðrúnar Hannesdóttur.
Valgeir var ókvæntur og barn-
laus.
Hann lauk stúdentsprófum frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1925,
embættisprófi í guðfræði frá Há-
skóla Íslands 1931, kennaraprófi frá
Kennaraskóla Íslands sama ár og
lauk einnig sundkennaraprófi.
Valgeir var kennari á Flateyri
1925-26, í Grindavík 1926-27 og í
Reykjavík 1931-32. Þá var hann
barnakennari í Skaftártungum
1933-34 og 1944-51, unglingakennari
þar 1934-35 og kenndi jafnframt
sund.
Valgeir var settur prestur í
Stóra-Núpsprestakalli 1932 og vígð-
ur til Þykkvabæjarklausturspresta-
kalls 1933. Hann sat í Hlíð í Skaft-
ártungu í tvö ár, í Hrífunesi
1935-42, í Ásum í tvö ár, í Hemru
1944-52 og eftir það í Ásum.
Valgeir var prófastur í Vestur-
Skaftafellsprófastsdæmi frá 1963,
skipaður prófastur í sameinuðu
Skaftafellsprófastsdæmi 1971 en lét
af störfum sem sóknarprestur og
prófastur 1980, þá 77 ára að aldri.
Þá flutti hann að Suður-Vík í Mýr-
dal og bjó þar til æviloka.
Valgeir var formaður skóla-
nefndar Skaftártunguhrepps 1933-
71, formaður skattanefndar og um-
boðsmaður skattstjóra Suðurlands-
umdæmis, sat í hreppsnefnd
Skaftártunguhrepps og var hrepp-
stjóri hans 1948-80.
Prentaðar hafa verið hugvekjur
eftir Valgeir í Nýjum hugvekjum og
í Vestur-skaftfellskum ljóðum frá
1962 er að finna níu ljóð eftir hann.
Valgeir lést 23.1. 1986.
Merkir Íslendingar
Valgeir
Helgason
85 ára
Guðrún Guðnadóttir
Kári Pálsson Þormar
80 ára
Eyrún Óskarsdóttir
Guðbjörg Júlíusdóttir
Halla Magnúsdóttir
75 ára
Bjarni Þjóðleifsson
Helga Þórólfsdóttir
Hjördís Magnúsdóttir
Steinn Magnússon
Valdimar Ólafsson
70 ára
Ingimundur Ingimundarson
Ingvi Ingiþórs Ingason
Sigrún Sigurðardóttir
60 ára
Eyrún Leifsdóttir
Frosti Hlynur Sigurðsson
Guðlaugur V. Eysteinsson
Hólmfríður Júlíusdóttir
Lárus Jóhann
Jóhannsson
Óskar Heimir Ingvarsson
Páll Ragnar Sigurðsson
Þorbjörg Unnur
Magnúsdóttir
50 ára
Björn Geir Jóhannsson
Gísli Harðarson
Helga Bylgja Gísladóttir
Laufey Karlsdóttir
María Hjördís
Þorgeirsdóttir
Stefán Sigurður
Ólafsson
Þórarinn Gunnarsson
40 ára
Ágúst Jónsson
Elín Anna Skúladóttir
Garðar Þór Magnússon
Hrafnar Jafet Hrafnsson
Inga Huld Sigurðardóttir
Jóna Björg
Halldórsdóttir
Malgorzata Wyderska
Ragna Elíza Kvaran
30 ára
Andri Már Sigurðsson
Andris Klavins
Gísli Már Rúnarsson
Jóhannes Harðarson
Til hamingju með daginn
40 ára Hanna er bóndi á
Króksstöðum og starfar
við Bónus á Akureyri.
Maki: Stefán Viðar Erl-
ingsson, f. 1963, bóndi og
sölumaður hjá BYKO.
Börn: Aron Bjarni Davíðs-
son, f. 1994; Guðrún Jóna
Stefánsdóttir, f. 2004, og
Friðrika Ólöf Stefáns-
dóttir, f. 2006.
Foreldrar: Magnþór Jó-
hannsson, f. 1952, og
Friðrika Valgarðsd., f.
1953.
Hanna Sigríður
Magnþórsdóttir
30 ára Jónþór ólst upp í
Súðavík, lauk stúdents-
prófi frá VÍ, skipstjórnar-
prófi frá Stýrimannaskól-
anum og er skipstjóri og
útgerðarmaður.
Maki: Dagný Hermanns-
dóttir, f. 1986, snyrtifræð-
ingur.
Synir: Emil Leó, f. 2009,
og Eiríkur Bjarkar, f. 2013.
Foreldrar: Eiríkur Bjarkar
Ragnarsson, f. 1960, og
María Hrafnhildardóttir, f.
1964.
Jónþór
Eiríksson
40 ára Elma lauk stúd-
entsprófi frá FB og prófi í
klæðskeraiðn frá Sönder-
borg í Danmörku og er
klæðskeri hjá LR í Borgar-
leikhúsinu.
Maki: Þorgils Björg-
vinsson, f. 1972, tónlistar-
maður.
Synir: Bergur, f. 1994, og
Máni, f. 2003.
Foreldrar: Rósa I. Odds-
dóttir, f. 1940, og Guð-
mundur Þ. Bjarnason, f.
1933, d. 1999.
Elma Bjarney
Guðmundsdóttir
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Kringlunni og
Síðumúla 35
www.jens.is
Eyjafjallajökull
5.900.-
fæst í Jens
Kringlunni og
Síðumúla
Jöklaskálar nú einnig í hvítu
Vatnajökull
7.900.-
fæst í Jens
Kringlunni og
Síðumúla
Dekraðu við heimilið á nýju ári
20% afsláttur af
Henrik ljósi
verð 26.320.-
(áður 32.900.-)
fæst í Jens
Síðumúla20% afsláttur af
Adilson ljósi
verð 23.920.-
(áður 29.900.-)
fæst í Jens
Síðumúla
30% afsláttur af
blaðastöndum
verð 8.330.-
(áður 11.900.-)
fæst í Jens
Síðumúla