Morgunblaðið - 29.01.2014, Side 28

Morgunblaðið - 29.01.2014, Side 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Tilraunir þínar til að sannfæra aðra geta komið þér í vandræði. Yfirmenn eru ánægðir með það hvað þú ert úrræðagóð/ur. Þú ert komin á rétta braut í ástamálunum. 20. apríl - 20. maí  Naut Það eru ýmsar breytingar sem þig lang- ar til að ná fram. Vertu ekkert að boða heil- brigt líferni þeim sem ekki kæra sig um það. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú átt eftir að komast að raun um það að vinnufélagar þínir eru hjálplegir þessa dagana. Hvernig væri að nota tækifærið og nýta sér það sem er ókeypis? Dæmi: ganga í náttúrunni, brosa eða hrósa. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér finnst einhverjir hafa óvenju mikil áhrif á þig þessa dagana og vilt rífa þig lausa/n. Fylgdu réttlætiskennd þinni fyrst og fremst því þá farnast þér vel. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hæfileikar þínir eru margir en þú nýtir þá ekki sem skyldi. Komdu jafnvægi á ásta- lífið svo þú getir komið einhverju í verk. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Vertu á verði gagnvart tungulipru fólki og mundu að ekki er það alltaf sannleikurinn sem ratar af munni þess. Að skipta auðveld- lega um gír gæti gefið gull í mund. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér leiðist og þá ferðu að búa til vanda- mál. Vendu þig af því að leggja upp laupana of snemma. Berstu áfram aðeins lengur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það mun reyna verulega á hæfni þína á næstunni og þú mátt búa þig undir að sum verka þinna verði fyrir óvæginni gagn- rýni. Einhver sendir þér vinabeiðni sem þú áttir alls ekki von á. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú lendir í klemmu þegar náinn vinur leitar til þín um ráðgjöf en vill í raun heyra allt annað en sannleikann. Orð hafa kraft til að kenna, særa og hvetja. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ekki leggja of hart að þér í dag. Himintunglin hvetja þig til þess að tjá þig af varúð um mál sem þú þekkir ekki nógu vel. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú nýtur meiri athygli en þú átt að venjast. Notaðu daginn til þess að losa þig við þessa hamslausu hrifningu fyrir fullt og allt. Þú lætur oft glepjast um of af fagurgala sem kemur þér í koll seinna. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hafðu ekki of miklar áhyggjur af hlut- unum. Dagurinn er tilvalinn til að njóta, fara á kaffihús, heimsækja vini eða gera ekki neitt. Hollt mataræði er svar við þínum kvillum þessa mánuðina. Sæmundur Bjarnason kastaðifram á boðnarmiði og sneri út úr þekktum húsgangi: Fésbókin er Frónbúans fyrsta barnaglingur. En verður seinna í höndum hans hvatvís puttalingur. Það er orðið mikið sport meðal skálda og hagyrðinga að yrkja um afa sem fór á honum Rauð. Hall- mundur Kristinsson tekur af skarið og segir að afi ætti nú að fara að hætta þessum þvælingi. Hann hafi ekkert upp úr þessu. Gvendur afi á gamla Rauð geystist suður á bæi, fékk þar skorpið bóndabrauð og bóg af gömlu hræi. Ingólfur Ómar Ármannsson prjónar við það: Amma vann og bjó til brauð, búi hélt í lagi, en flónið afi fór á Rauð fullur suður á bæi. Í gær birtist vísnagáta Kristjáns Eiríkssonar sem er svohljóðandi: Ósk og þrá er einatt bundin, arði tengd og gróða nógum, jóð í lífi fljóða fundin, í Flugu keypt í Brimnesskógum. Helgi R. Einarsson svarar og seg- ir að í svarinu gæti áhrifa af samtali Egils Helgasonar við Guðrúnu Johnsen um bankahrunið: Heimska og græðgi út um allt, afætur og vargar. Þó að lán sé víða valt VONIN mörgu bjargar. Davíð Hjálmar Haraldsson svar- ar: Hannar gátur, heimtar svör, hylur kersknisglott á vör ýtinn Kristján Eiríksson. Ætli lausnin nú sé Von? Kristján Eiríksson svaraði þegar hann heyrði svar Davíðs Hjálmars: Rétt er þessi ráðning þín, réðir strax úr þessum vanda. Aðra sendi upp á grín, ekki mun sú fyrir standa: Fögur var dóttir bónda á Borg. Bjó hún um skeið í öskustó. Hólabiskupsins svæfði sorg. Sú af lærdómi mat til bjó. Hér þyrfti að ráða hverja línu fyrir sig. Það væri gaman að fá fleiri svör í bundnu máli. Lausnin birtist í vísnahorni morgundagsins. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af fésbók, vísnagátu og afa á honum Rauð Í klípu SPEGILLINN HAFÐI VIT Á AÐ ÞEGJA ÞEGAR ÞAÐ ÁTTI VIÐ. GEIRI ÞOLDI NEFNILEGA EKKI GAGNRÝNI SNEMMA Á MORGNANA. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MÉR FANNST ÞIÐ SEGJA AÐ ÞIÐ ÆTLUÐUÐ AÐ TAKA MATINN MEÐ YKKUR?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vita að við erum samferða á þessu ferðalagi. NÆST ÆTTUM VIÐ AÐ FÁ RÁÐLEGGINGAR HJÁ LANDSLAGS- ARKITEKT. VEISTU HVAÐ ER BEST VIÐ AÐ VERA Í MEGRUN, GRETTIR? MAÐUR ER KANNSKI ÚTI AÐ LABBA ... OG FÓLK HRÓPAR: „HÆ, ÞÚ ÞARNA, MJÓA MANNESKJA!“ HLJÓMAR EINS OG LEYNI- KLÚBBUR! Tungumálið getur verið viðsjálttæki. Yfirleitt er merking texta augljós, en stundum verður hann slíkt torf að ógerningur er að skilja. Þótt merking hvers orðs fari ekki á milli mála, verður útkoman þegar orðin hafa verið spyrt saman allt ann- að en ljós. x x x Vinkona Víkverja rakst á eftirfar-andi texta á heimasíðu Ríkis- skattstjóra: „Sú fjárhæð sem þannig er ákvörðuð á að jafnaði ekki að vera lægri en viðmiðunarfjárhæð sem ákveðin er í reglum ríkisskattstjóra en getur verið hærri eða lægri eftir því sem tilefni er til með hliðsjón af raunverulega greiddum launum fyrir sambærileg störf hjá óskyldum eða ótengdum aðila, umfangi og eðli starfseminnar og starfsins, taxta fyr- ir útselda vinnu í starfsgreininni, af- komu rekstrarins og fé sem bundið var í rekstrinum í ársbyrjun.“ x x x Innvígðum eru þessi orð ugglausteins og opin bók, en Víkverji verð- ur að viðurkenna að hann kveikti ekki á perunni og vonar að það sé ekki fyr- ir vöntun á vitsmunaskortsleysi. x x x Annars vill Víkverji síður en svobaktala skattinn. Hann man þá tíð er hann sat yfir skattframtölum og skilaði þeim inn um lúgu í Tryggvagötu rétt fyrir miðnætti þeg- ar skilafrestur rann út. Nú opnar Víkverji vefsíðu. Þar blasa við allar tölur, yfirlit yfir reikninga og eignir í verðbréfum (núll stendur þar við verðlaus bréf úr föllnum bönkum sem eru eins og steingervingar í framtal- inu og Víkverji sér enga sérstaka ástæðu til að láta minna sig á). Vík- verja finnst reyndar öðrum þræði óþægilegt að allar þessar upplýs- ingar skuli vera aðgengilegar og blasa við yfirvöldum með þessum hætti og veltir fyrir sér hvort rétt sé að fórna friðhelgi síns einkalífs fyrir þægindin, sem fylgja því að þurfa ekki að færa þessar tölur sjálfur inn í framtalið. Þar sem Víkverja finnst gott að láta auka sér leti hefur hann enn ekkert gert í málinu og þykir víst ólíklegt að hann geri það úr þessu. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef- ast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.