Morgunblaðið - 29.01.2014, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Á morgun verða ákveðin tímamót í ís-
lenskri sjónvarpssögu því þá hefjast
nætursýningar á myndbandsverkum
fjölda myndlistarmanna á RÚV. Fjöl-
mörg verk verða sýnd á hverri nóttu
fram til 14. febrúar, allt frá dag-
skrárlokum til dagrenningar. Verk-
efni þetta nefnist Næturvarp og er
samstarf fyrirtækisins Slíjms sf.,
listamannanna sem sýna í Nætur-
varpi og RÚV. Verkin sem sýnd
verða í Næturvarpi eru eftir lista-
menn af ólíkum kynslóðum, allt frá
verkum frumkvöðla myndbandslist-
arinnar á heimsvísu líkt og Steinu Va-
sulka til verka listamanna sem eru
yngri en elstu myndbandsverkin.
Slíjm var stofnað af Kristínu Gunn-
arsdóttur og Eddu Kristínu Sigur-
jónsdóttur með það að markmiði að
standa fyrir verkefnum og samstarfi
við viðeigandi aðila í samfélaginu
hverju sinni og bjóða til upplifana,
meðvitundar, samræðu og alls hins
óvænta, eins og þær lýsa því.
„Þessi hugmynd er búin að blunda
í Slíjmi í nokkurn tíma og við höfum
verið að skoða bæði hlutverk ríkis-
fjölmiðils, það ábyrgðarhlutverk sem
hann ber og það efni sem er verið að
bjóða landsmönnum upp á,“ segir
Edda um Næturvarp. „Okkur þótti
myndbandsverk hafa augljósa teng-
ingu við sjónvarp og stofan heima
ákjósanlegur sýningarstaður til að
bjóða heim. Á RÚV er sýnt fjölbreytt
efni upp að vissu marki en það er
ákveðin tegund af efni sem er lítið
framboð af. Efni sem gefur ímynd-
unaraflinu lausan tauminn, býður inn
í óræðar víddir, efni sem er ekki endi-
lega bundið við frásögn. Við í Slíjmi
höfum mikinn áhuga á ímyndunarafl-
inu og ferðalaginu sem virkt ímynd-
unarafl getur boðið manni í. Það er
mikið til af gæðaefni sem okkur lang-
aði að sýna og það lá mjög beint við
að gera það í samstarfi við RÚV og
við erum mjög þakklátar fyrir góðar
viðtökur þar. Þetta er efni sem hefur
aðallega verið í boði á sýningar-
stöðum og ákveðinn hópur fer á þá en
ákveðinn hópur landsmanna fer aldr-
ei. Þetta er annar sýningarvett-
vangur,“ segir Edda. Myndbands-
verk séu þess eðlis að flakka um í
rýminu milli málverks og kvik-
myndar og Næturvarp merkilegt í
listasögulegu samhengi hér á landi,
fyrsta verkefni sinnar tegundar.
Myndbandsverk séu sjaldséð í ís-
lensku sjónvarpi sem sé þó hinn full-
komni miðill fyrir mörg þeirra. Nú
verði gerð bragarbót á því. Mynd-
bandsverkin verði öll sýnd oftar en
einu sinni og ólík áhersla eftir nótt-
um. Áhersla verði lögð á verk sjö
listamanna en myndbandsverk yfir
þrjátíu listamanna verða sýnd.
Ferðalag í kyrrðinni
– Þetta er dálítið erfiður sýningar-
tími, það horfa ekki margir á sjón-
varpið á nóttunni, eða hvað?
„Mig grunar að þeir séu fleiri en þú
heldur,“ svarar Edda. Flestir horfi á
sjónvarp heima hjá sér, séu þar inni í
sínum þægindaramma og kjörið fyrir
þá að ferðast inn í víddir myndbands-
verkanna í kyrrðinni og myrkrinu.
„Sumir eru sofandi og þá fer þetta
framhjá þeim en ég held að þeir séu
ótrúlega margir sem vaka fram eftir.
Þetta byrjar líka við dagskrárlok og
þau eru oft fyrir miðnætti,“ bendir
Edda á og bætir við að þeir sem vakni
mjög snemma geti einnig notið Næt-
urvarps. Spurð að því hvort verkin
verði aðgengileg í sjónvarpsleigu,
VoD, segir Edda það ekki liggja fyrir
að svo stöddu.
Næturvarp er hluti af stærra verk-
efni á vegum Slíjms, Salon, sem Edda
lýsir sem tilraunavettvangi fyrir sam-
tal. Boðið verði til „samtals í óvænt-
um kringumstæðum með áherslu á
kynna nýjar eða gleymdar nálganir
að viðfangsefnum svo stuðla megi
að bættum samskiptum og
starfsferlum, aukinni þekk-
ingarmiðlun og almennri
gleði“. Starfsemi Slíjms má
kynna sér á Facebook:
facebook.com/Slijm.
Rýmið milli málverks
og kvikmyndar
Myndbandsverk sýnd að næturlagi á RÚV í fyrsta sinn
Á RÚV Kyrrmynd úr myndbandsverki Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur, King-
dom of you, frá árinu 2004. Birt með leyfi listamannsins.
Bandaríski leikarinn Johnny Depp mun
hljóta fyrstur ný verðlaun bandarískra sam-
taka förðunar- og hárgreiðslumeistara sem
starfa við kvikmyndir, Make-Up Artists and
Hair Stylists Guild, sem veitt verða 15. febr-
úar nk. Depp hefur leikið í fjölda kvikmynda
þar sem hann er nær óþekkjanlegur sökum
mikils farða og furðulegra hárgreiðslna og
hlýtur fyrir það verðlaunin.
Gervafjöld Johnny Depp
skrautlegur í hlutverki Edward
Scissorhands.
Depp verðlaunaður
fyrir fjölmörg gervi
Thomas Pausz,
vöruhönnuður
og aðjunkt við
hönnunar- og
arkitektúrdeild
Listaháskóla Ís-
lands, heldur
opinn fyrir-
lestur í dag kl.
12.10 í fyrir-
lestrasal A í
húsnæði skólans að Þverholti 11.
Fyrirlesturinn ber yfirskriftina
„Design Dialogues–Elastic Edit-
ions“ og í honum mun Thomas
fjalla um nýleg verkefni með
áherslu á spurningar sem varða
þátttöku og samráðsferli í hönn-
un, skv. tilkynningu. Þá muni
hann kynna nýja hugmynd um út-
gáfuröð rita um hönnun. Fyrir-
lesturinn er hluti af fyrirlestra-
röð hönnunar- og arkitektúr-
deildar Listaháskóla Ísland,
Sneiðmynd.
Þátttaka og sam-
ráðsferli í hönnun
Thomas Pausz
Eftirtaldir myndlistarmenn eiga
verk í Næturvarpi:
Hekla Dögg Jónsdóttir, Sig-
urður Guðjónsson, Steina &
Woody Vasulka, Ragnar Kjart-
ansson, Magnús Sigurðarson,
Kolbeinn Hugi Höskuldsson,
Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Birgir
Andrésson, Hrafnkell Sigurðs-
son, Steingrímur Eyfjörð, Er-
ling T.V. Klingenberg, Bjarni
Massi, Elín Hansdóttir, Tómas
Lemarquis, Gunnar Jónsson,
Úlfur Grönvold, Loji Höskulds-
son, Bryndís Hrönn Ragnars-
dóttir, Curver, Una Margrét
Árnadóttir, Snorri Ásmunds-
son, Sigríður Tulinius, Selma
Hreggviðsdóttir, Anna Hallin &
Olga Bergman, Haraldur Jóns-
son, Sigurður Guðmunds-
son, Finnbogi Pétursson,
Gjörningaklúbburinn,
Tumi Magnússon,
Hreinn Friðfinnsson,
Styrmir Örn Guð-
mundsson, Hrafn-
hildur Arnar-
dóttir og
Þorgeir Guð-
mundsson.
Listamenn
Næturvarps
YFIR 30 HÖFUNDAR
Steina Vasulka
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fim 30/1 kl. 19:30 65.sýn Fös 7/2 kl. 19:30 71.sýn. Sun 23/2 kl. 19:30 74.sýn
Fös 31/1 kl. 19:30 69.sýn Fim 13/2 kl. 19:30 72.sýn.
Fim 6/2 kl. 19:30 70.sýn. Fös 14/2 kl. 19:30 73.sýn
Veilsa aldarinnar - leikrit ársins 2013.
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Lau 1/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 8/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 15/2 kl. 19:30 13.sýn
Síðustu sýningar!
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Fös 21/2 kl. 19:30 Frums. Fös 28/2 kl. 19:30 4.sýn Mið 12/3 kl. 19:30 7.sýn
Lau 22/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 6/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 13/3 kl. 19:30 8.sýn
Mið 26/2 kl. 19:30 Aukas. Fös 7/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 14/3 kl. 19:30 9.sýn
Fim 27/2 kl. 19:30 3.sýn Lau 8/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 15/3 kl. 19:30 10.sýn
Dásamleg, fáránleg della - óbærilega fyndinn nýr söngleikur!
Pollock? (Kassinn)
Fös 31/1 kl. 19:30 32.sýn Lau 8/2 kl. 19:30 34.sýn
Lau 1/2 kl. 19:30 33.sýn Lau 15/2 kl. 19:30 35.sýn
Skemmtilegt leikrit með framúrskarandi leikurum. Síðustu sýningar.
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 2/2 kl. 13:00 28.sýn Sun 9/2 kl. 13:00 29.sýn Sun 16/2 kl. 13:00 30.sýn
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Karíus og Baktus (Kúlan)
Sun 2/2 kl. 16:00 Sun 9/2 kl. 16:00 Sun 16/2 kl. 16:00
Karíus og Baktus bregða á leik.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 30/1 kl. 20:00 9.sýn Fim 6/2 kl. 20:00 12.sýn Lau 8/2 kl. 20:00 15.sýn
Fös 31/1 kl. 20:00 10.sýn Fös 7/2 kl. 20:00 13.sýn
Fös 31/1 kl. 22:30 11.sýn Fös 7/2 kl. 22:30 14.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Óraunveruleikir (Kassinn)
Mið 29/1 kl. 20:00 aukas. Fim 30/1 kl. 20:00 lokas.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fim 30/1 kl. 19:00 Mið 5/2 kl. 19:00 aukas Lau 8/2 kl. 13:00 aukas
Lau 1/2 kl. 13:00 aukas Fim 6/2 kl. 19:00 aukas Sun 9/2 kl. 13:00 lokas
Sun 2/2 kl. 13:00 aukas Fös 7/2 kl. 19:00 aukas
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Síðustu sýningar!
Jeppi á Fjalli (Sýnt í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri)
Lau 1/2 kl. 20:00 Sun 2/2 kl. 20:00 lokas
Menningarhúsið Hof, Akureyri
Hamlet (Stóra sviðið)
Fös 31/1 kl. 20:00 8.k. Fös 14/2 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00
Sun 2/2 kl. 20:00 Lau 15/2 kl. 20:00 Fös 28/2 kl. 20:00
Sun 9/2 kl. 20:00 Fös 21/2 kl. 20:00
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet.
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Mið 29/1 kl. 20:00 fors Fim 13/2 kl. 20:00 7.k Þri 25/2 kl. 20:00 15.k
Fim 30/1 kl. 12:30 fors Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Mið 26/2 kl. 20:00 aukas
Fös 31/1 kl. 20:00 frums Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Fim 27/2 kl. 20:00 aukas
Lau 1/2 kl. 20:00 2.k Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Fös 28/2 kl. 20:00 16.k
Sun 2/2 kl. 20:00 3.k Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Lau 1/3 kl. 20:00 aukas
Þri 4/2 kl. 20:00 4.k Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k
Lau 8/2 kl. 20:00 aukas Fim 20/2 kl. 20:00 aukas Þri 4/3 kl. 20:00 18.k
Sun 9/2 kl. 20:00 5.k Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Mið 5/3 kl. 20:00 19.k
Þri 11/2 kl. 20:00 6.k Lau 22/2 kl. 20:00 13.k Lau 8/3 kl. 20:00 20.k
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Sun 23/2 kl. 20:00 14.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
Bláskjár (Litla sviðið)
Lau 8/2 kl. 20:00 frums Sun 16/2 kl. 20:00 3.k Fös 28/2 kl. 20:00
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Fim 20/2 kl. 20:00 4.k
Fim 13/2 kl. 20:00 2.k Sun 23/2 kl. 20:00 5.k
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Mið 12/2 kl. 10:00 Fim 13/2 kl. 13:00 Þri 18/2 kl. 11:30
Mið 12/2 kl. 11:30 Mán 17/2 kl. 10:00 Sun 23/2 kl. 20:00
Mið 12/2 kl. 13:00 Mán 17/2 kl. 11:30 Sun 30/3 kl. 20:00
Fim 13/2 kl. 10:00 Mán 17/2 kl. 13:00
Fim 13/2 kl. 11:30 Þri 18/2 kl. 10:00
Fræðandi uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í
ÍD: Þríleikur (Stóra sviðið)
Lau 1/2 kl. 20:00 frums Sun 16/2 kl. 20:00 3.k Sun 2/3 kl. 20:00 5.k
Lau 8/2 kl. 20:00 2.k Sun 23/2 kl. 20:00 4.k Sun 9/3 kl. 20:00
Íslenski dansflokkurinn sýnir þrjú ný verk á kvöldinu Þríleikur
Jeppi á Fjalli – lýkur í janúar
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Lúkas (Aðalsalur)
Fös 31/1 kl. 20:00 Síðustu
sýningar
Fös 7/2 kl. 20:00 Síðustu
sýningar
Lau 8/2 kl. 20:00 Síðustu
sýningar
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
Horn á höfði (Aðalsalur)
Sun 9/2 kl. 14:00 Sun 23/2 kl. 13:00
Sun 16/2 kl. 14:00 Sun 23/2 kl. 15:00
Eldklerkurinn (Aðalsalur)
Sun 9/2 kl. 20:00 Lau 15/2 kl. 20:00
Útgáfutónleikar Dusty Miller (Aðalsalur)
Lau 1/2 kl. 20:00
Ástarsaga úr fjöllunum (Aðalsalur)
Lau 22/2 kl. 14:00 Lau 1/3 kl. 14:00
Fyrirgefðu ehf. (Aðalsalur)
Fös 14/2 kl. 20:00 Frumsýning Fös 21/2 kl. 20:00 Fös 28/2 kl. 20:00
Sun 16/2 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00
Dansaðu fyrir mig (Aðalsalur)
Fim 20/2 kl. 20:00 Lau 1/3 kl. 20:00
Sun 23/2 kl. 20:00 Sun 2/3 kl. 20:00