Morgunblaðið - 29.01.2014, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 29. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Miklu meiri Íslendingur en Svíi
2. Fundu líkamsleifar við vatnið
3. Bærinn er brunninn
4. Ég mun ekki deyja í dag
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Málverk af rithöfundinum og ljóð-
skáldinu Gerði Kristnýju verður með-
al málverka sem boðin verða upp á
vegum uppboðshússins Christie’s í
Lundúnum í haust. Samtökin Poet in
the City sem skipuleggja ljóða-
upplestra fengu nokkur skáld sem
fram koma á þeirra vegum til að sitja
fyrir á málverkum og var Gerður eini
útlendingurinn í þeim hópi en meðal
skálda sem setið hafa fyrir eru Sea-
mus Heaney heitinn og Jo Shapcott,
eitt virtasta skáld Breta. Pening-
unum sem safnast í uppboðinu verð-
ur varið til góðgerðarmála. Gerður
fór utan um helgina til að sitja fyrir. Í
mars verður opnuð mikil sýning um
víkinga í The British Museum og
standa Poet in the City fyrir upplestri
og pallborðsumræðum um bók-
menntaarf Íslendinga í tengslum við
hana í maí. Gerður Kristný mun þá
lesa upp úr Blóðhófni, ljóðabók sinni
sem kom út í enskri þýðingu í Bret-
landi árið 2012.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Málverk af Gerði
Kristnýju boðið upp
„Little Talks“, lag hljómsveitar-
innar Of Monsters and Men, í túlkun
tónlistarmannsins Kurts Hugo
Schneider, er flutt í nýrri netauglýs-
ingu Coca-Cola. Lagið er m.a. leikið
á kókflöskur, -dósir og
-glös. Auglýsinguna
má finna á YouTube
með því að slá The
Sound of
AHH by
KHS, inn
í leitar-
glugga „Little
Talks“
Lag OMAM notað í
auglýsingu Coca-Cola
Á fimmtudag Suðaustan 10-15 m/s og slydda eða rigning suð-
austantil, en gengur í vestan 8-13 með snjókomu vestantil.
Á föstudag Gengur í allhvassa eða hvassa austanátt með snjó-
komu eða slyddu austantil, en rigningu við ströndina.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt með slyddu eða rigningu aust-
anlands og snjókomu í innsveitum. Frost 0 til 5 stig inn til landsins.
VEÐUR
Manchester City og Chelsea
geta bæði skotist upp fyrir
Arsenal á topp ensku úr-
valsdeildarinnar í knatt-
spyrnu í kvöld eftir að Ars-
enal gerði 2:2-jafntefli við
Southampton á útivelli í
gærkvöld. Liverpool styrkti
stöðu sína í hinu mikilvæga
4. sæti með því að gjörsigra
granna sína í Everton 4:0 en
Man. Utd er sex stigum á
eftir í 7. sæti í kjölfar 2:0-
sigurs á Cardiff. »2
Toppsætið í boði
fyrir City í kvöld
Framkvæmdastjóri KSÍ segir að það
sé ólíðandi að félög noti vísvitandi
ólöglega leikmenn í mótsleikjum.
Með því séu úrslitin í raun
ákveðin fyrirfram, og þar
með séu menn aðeins
hársbreidd frá
því að
hagræða úrslit-
um leikja. Þrótt-
ur tefldi sjö
ólöglegum leik-
mönnum fram
gegn Fylki og
hafði því tapað
0:3 fyrirfram,
hvernig sem leikur-
inn færi. »1
Ólíðandi að félögin noti
ólöglega leikmenn
Hann lætur verkin tala, hinn 56
ára gamli Claude Onesta, þjálf-
ari nýkrýndra Evrópumeistara
Frakka í handknattleik. Maður-
inn með grásprengda hárið er
jafnan í svartri skyrtu á vara-
mannabekknum og hefur náð
stórkostlegum árangri frá því
hann tók við landsliðsþjálfara-
starfinu árið 2001. »4
Claude Onesta
lætur verkin tala
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Helgi Bachmann er fyrsti Íslend-
ingurinn til þess að ljúka háskóla-
prófi í stjórnun í tengslum við
hamfarir og áhættu. Fyrsti hópur-
inn í Danmörku útskrifast frá há-
skóla (Metropolitan University
College) í Kaupmannahöfn í dag og
er Helgi eini útlendingurinn í
hópnum. 26 útskrifast og þar af
fjórar konur.
„Ég gerðist danskur ríkisborgari
vegna þess að ég vildi verða lög-
reglumaður,“ segir Helgi sem flutti
til Kaupmannahafnar níu ára gam-
all 1995. Hann segir að hann hafi
þurft að gegna herskyldu og hafi
getað gert það hjá almannavörnum
Danmerkur. Þar hafi hann starfað
sem slökkviliðsmaður og björg-
unarmaður og þegar ákveðið hafi
verið að byrja með nám í stjórnun
í tengslum við hamfarir og áhættu
í ágúst 2010 hafi hann sótt um og
komist inn. „Síðasta prófið var á
föstudag og eftir útskriftina byrja
ég að sækja um vinnu,“ segir hann.
Mikil reynsla
Helgi er sjálfboðaliði hjá al-
mannavörnum og hefur verið það í
fjögur ár. Hann segir vinnuna þar
svipaða og hjá Landsbjörg á Ís-
landi. Slökkvilið ríkisins falli undir
almannavarnir og því hafi hann
verið kallaður út í stórum elds-
voðum og öðrum hamförum auk
þess sem hann hafi meðal annars
sinnt öryggisgæslu á tónleikum.
Þessi starfsvettvangur sé heillandi.
„Síðan væri spennandi að vinna við
samvinnu og samhæfingar hjá Evr-
ópusambandinu eftir nokkur ár.“
Hann segist hafa verið mjög
virkur meðan á náminu stóð, meðal
annars tekið að sér verkefni á
Grænlandi og verið í starfsnámi
hjá Landsbjörg. „Ég hef lagt
áherslu á að fá reynslu í „alvöru“
veröldinni en ekki bara úr bókum
en þriðjungur námsins felst í
starfsnámi,“ segir hann.
En af hverju vildi hann verða
lögreglumaður? „Réttlætið var mér
ofarlega í huga en svo var ég líka
viss um ég gæti sinnt starfinu
miklu betur en allir hinir,“ segir
hann hlæjandi og bætir við að
hann hafi síðan kosið að fara í há-
skólanámið. „Þetta er svið sem
hægt er að betrumbæta mikið auk
þess sem það er mjög spennandi,“
segir hann.
Draumurinn breyttist
Hamfarir og
áhætta viðfangs-
efni Helga
Hamfarir Helgi Bachmann útskrifast í dag, hefur öðlast góða reynslu og er tilbúinn í slaginn.
Á vaktinni Helgi Bachmann hefur starfað sem slökkviliðsmaður.