Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2014
Ólafur Darri Ólafsson leikari hefur
þá trú að almennilegar mann-
eskjur komist lengra en fífl í þessu
lífi. Þessu sjónarmiði lýsir hann í
samtali við Sunnudagsblað Morg-
unblaðsins í dag. Tilefnið er yfir-
vofandi frumsýning Leikfélags
Reykjavíkur á einu merkasta leik-
riti allra tíma, Hamlet eftir William
Shakespeare, en Ólafur Darri fer
með titilhlutverkið í sýningunni.
Með Ólafi Darra í viðtalinu er
nýútskrifuð leikkona, Hildur Berg-
lind Arndal, sem leikur Ófelíu í
sýningunni, og bárust dramb og
stjörnustælar í tal. Hildur Berg-
lind kveðst ekki hafa fundið fyrir
slíku á sínum fyrsta vetri í Borg-
arleikhúsinu og Ólafur Darri full-
yrðir að slíkir tilburðir þekkist ekki
í íslensku leikhúsi. Fyrir tilviljun
blasti við honum ljósmynd af Ingv-
ari E. Sigurðssyni. „Þetta er lík-
lega stærsta stjarnan í íslenskri
leiklist. Einhver almennilegasti
maður sem ég hef kynnst.“
Þetta er án efa rétt hjá Ólafi
Darra. Þegar maður hugsar út í
það lekur oflætið ekki beinlíns af
þeim leikhúsmönnum sem náð hafa
lengst hér á landi. Má þar nefna
Gísla Örn Garðarsson, Baltasar
Kormák, Hilmi Snæ Guðnason,
Benedikt Erlingsson, auk téðs
Ingvars. Enginn þeirra hefur látið
velgengnina stíga sér til höfuðs,
þvert á móti hafa þeir auðmýkst
við hverja raun og gefið sig alla á
vald listinni. Eitt nafn vantar auð-
vitað í þessa upptalningu. Það er
Ólafur Darri Ólafsson. Glæsilegri
fulltrúa íslenskrar leiklistar á er-
lendum vettvangi er varla hægt að
hugsa sér.
Það sem meira er, Ólafur Darri
hefur ekki heldur orðið var við gor-
geir í kollegum sínum erlendis en
hann hefur víða farið á undan-
förnum árum. Ekki einu sinni í
Hollywood, þaðan sem ýmsum sög-
um fer af þóttafullri hegðun stjarn-
anna. Er það vel.
RABBIÐ
Fá eru þau, fíflin
Orri Páll Ormarsson
Í efra Breiðholti er að finna skíðabrekku en þar sem snjóalög eru af skornum skammti þessa dagana er hægt að ganga upp hólinn og renna sér niður. Til
þess eru mörg tæki. Stiga-sleðar eru frábær leið til að kynnast brekkunum en það er alltaf klassískt að fara niður hólinn á snjóþotum, rassþotum eða
bara gamla góða svarta ruslapokanum.
Ómar Óskarsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, kíkti í brekkuna við Jakasel og leit á mannfjöldann í gegnum linsuna sína. Sá þessa ungu herramenn
koma á öðru hundraðinu, minntu helst á formúlu eitt bíl koma niður brekku. Beygjan var hinsvegar tekin of snöggt, það kann ekki góðri lukku að stýra
og duttu drengirnir af sleðanum – brosandi út að eyrum.
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Ómar
FALL ER FARARHEILL
SLEÐABREKKAN VIÐ JAKASEL Í BREIÐHOLTI ER EIN AF SKEMMTILEGRI BREKKUM REYKJAVÍKUR. ÞAR SKEMMTA UNG-
MENNI SÉR Á STIGA-SLEÐUM OG SNJÓÞOTUM. HLÆJA ÞRÁTT FYRIR FALL Í HARÐRI BREKKUNNI.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Bingó.
Hvar? Vinabæ, Skipholti 33.
Hvenær? Sunnudag klukkan 19.15.
Bingó í Vinabæ
Hvað? Vínartón-
leikar.
Hvar? Hofi á Ak-
ureyri.
Hvenær? Sunnudag
kl. 17.
Nánar Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur
með Kvennakórnum Emblu um borg
draumanna, Vín. Verð: 3.500 kr.
Sveiflandi og hrífandi
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Innreið nútímans í íslenska
hönnun.
Hvar? Hönnunarsafn Íslands.
Hvenær? Opið um helgina frá kl. 12-
17.
Nánar: Á sýningunni er farið yfir þann
hluta íslenskrar menningarsögu sem
hefst með innreið módernismans.
Síðasta sýningarhelgin
Hvað? Haukar –
Keflavík.
Hvar? Ásvöllum.
Hvenær? Sunnudag
kl. 19.15.
Nánar: Liðin í öðru
og þriðja sæti mætast
í toppslag Dominos-deildar kvenna í
körfuknattleik. Tveir aðrir leikir fara
einnig fram.
Körfubolti kvenna
Hvað? Enski bikarinn.
Hvar? Stöð 2 sport.
Hvenær? Laugardag og sunnudag.
Nánar: Ein skemmtilegasta keppni í
heimi, enski bikarinn, fer fram um
helgina. Sex leikir verða sýndir í beinni
útsendingu.
Enski boltinn
Hvað? Jólasveinagjörningur.
Hvar? Kling & Bang.
Hvenær? Laugardag kl. 20.
Nánar: Myndlistarmennirnir Ragnar
Kjartansson og Ásmundur Ásmundsson
standa fyrir sínum árlega jólasveina-
gjörningi.
Jólin senn á enda
* Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson