Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Side 4
F átt er Íslendingum ofar í huga dags daglega en veðrið, jafnvel þegar það telst hefðbundið. Það ber án efa víða á góma þessa dagana, eins undarlegt og það hefur verið síðustu vikuna. „Segja má að þessi syrpa hafi hafist á Þorláksmessu og staðið yf- ir meira og minna síðan. Fyrstu dagana var að vísu nokkuð klassísk norðanátt með snjókomu en síðan 27. desember hefur verið viðvar- andi norðanátt sem er, vel að merkja, mjög mild í grunninn; það er mjög sérstakt að hér sé svona hlýtt í norðaustanátt og slydda í byggð bæði fyrir norðan og austan, og meira að segja bara slydda á stundum fyrir vestan.“ Kalda loftinu rutt burt „Íslendingar eru vanir umhleyp- ingum yfir veturinn með miklum snjó og hvassviðri á köflum en svona langur kafli með norðanaust- anátt með þessu sérkennilega milda veðri má teljast óvenjulegt. Það er ekki algengt að hann standi inn Eyjafjörðinn með hláku 3. janúar! Hér fyrir sunnan er svo þriggja til fjögurra stiga hiti og tekur varla upp klakann; í suðaustan átt og rakara lofti er venjulega allt á floti en nú leys- ir ekki þrátt fyrir hitann. Það segir manni það að til að komi venjulegar vetrarleysingar þarf loft að ná ákveðnum raka en nú er það svo þurrt að það bara blotnar á klakanum en vinnur ekkert á hon- um.“ Ein aðalástæðan fyrir þessu sér- kennilega veðri undanfarið, að sögn Einars, er sú að megninu af því kalda lofti sem venjulega er fyrir norðan Ísland hefur verið rutt burtu af sterkum lægðum sem beina mildu lofti úr suðri. Veðurkerfin á haus „Venjulega er norðaustan bál á vetrum knúið áfram af hita sem er á milli Íslands og Grænlands en þegar hlýnar svona mikið til norð- urs er norðaustan vindröstin miklu þykkri en venjulega, nær sem sagt hærra upp í lofthjúpinn og er af allt öðru tagi. Ágætur kollegi minn kallaði þetta norðaustan bakflæði! Þessi syrpa er orðin svo löng að segja má að veðurkerfin hér við landið standi á haus.“ Um þessar mundir berst inn til landsins úr norðri mun rakara loft en venjulega í norðaustanátt, svo mikil ísing verður til fjalla. Nefnir Einar, sem dæmi um vandræði vegna þess, mastrið sem féll í Þist- ilfirði í vikunni. „Víða hefur ísing valdið truflunum í raforkukerfinu, þess mikla skýjaísing sem við köll- um hefur herjað á mannvirki alls staðar ofan við 400 metra hæð, til dæmis fraus vindmælir á Hall- ormsstaðahálsi 27. desember.“ Einar ítrekar að það sé furðulegt að slydda og rigning skuli vera í byggð alveg upp í miðjar hlíðar fjalla, þótt vissulega sé snjókoma ofar. „Það var kominn klakabunki víða á vegi en svo þiðnaði og þá varð fljúgandi hálka. Vetrarástand er hins vegar á fjallvegum og þó að ekki sé alltaf ofankoma bætir stöðugt á vegna þess að éljagangur er og skafrenningur dag eftir dag.“ Framtíðin óljós Einar spáir því að veðrið verði svipað fram yfir helgi en útlit sé fyrir breytingar um miðja næstu viku. Þá gæti kólnað en hann segir reyndar ekki loku fyrir það skotið að aftur róist síðari hluta vikunnar. „Langtímaspám ber ekki alveg saman; veðrið gæti verið að breyt- ast en samt sem áður er engin trygging fyrir því að það fari ekki í sama farið eftir stutt hlé í næstu viku.“ Mestur kuldi á norðurslóðum er nú á milli Grænlands og Kanada, að sögn Einars. Austan við Græn- land er óvenju hlýtt, sem fyrr segir og ekki útlit fyrir að kólni svo mjög að frost nái tveggja stafa tölu hér á landi á næstunni. Óvenjulegt er að norðanáttin sé jafn mild og raun ber vitni á þessum árstíma í Eyjafirði. Mannfólki og öðrum líður vel úti við við leik eða störf. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Norðaustan „bakflæði“ óvenjulegt í langan tíma VEÐRIÐ HEFUR VERIÐ ÓVENJULEGT UNDANFARIÐ: FRÁ 27. DESEMBER VIÐVARANDI MILD NORÐANÁTT OG AFAR SÉR- STAKT AÐ SVO HLÝTT SÉ Í NORÐAUSTANÁTT HÉRLENDIS AÐ SLYDDA EÐA RIGNING SÉ FYRIR NORÐAN OG AUSTAN. 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2014 Góður skíðasnjór er í Blá-fjöllum eins og hvarvetnaá landinu þrátt fyrir hlý- indin að undanförnu, en skíðasvæði höfuðborgarbúa hefur þó ekki verið opið almenningi nema fáeina daga í vetur. Flesta daga hafa keppn- ismenn samt sem áður getað stund- að æfingar. Það er hvöss norðaustanátt sem sett hefur strik í reikninginn í vet- ur, bæði í Bláfjöll- um og í Skálafelli. Of hvasst hefur verið til að opna svæðið en færið verið „meiriháttar hvern einasta dag sem hefur verið opið,“ eins og Ein- ar Bjarnason, rekstrarstjóri skíða- svæðið í Bláfjöllum, sagði í gær. Skíðasvæðin fyrir norðan og austan hafa verið opin upp á síð- kastið, á Akureyri hefur fólk til dæmis getað notið þess að renna sér flesta daga síðan 22. nóvember, þegar svæðið í Hlíðarfjalli var opn- að. Guðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður skíðasvæðisins í Hlíð- arfjalli, segir að það stefni í góðan skíðavetur. „Það hefur verið ágæt- ismæting í brekkurnar í vetur en þó snjóaði helst til of mikið um hátíð- arnar,“ segir hann. Aðeins hefur þurft að hafa lokað nokkra daga vegna veðurs. Norðanmenn vonast til þess að ekki hlýni um of því í byrjun mars eru á dagskrá alþjóðlegir vetr- arleikar í Hlíðarfjalli, þar sem keppt verður bæði á brettum og í ýmissi skíðafimi. Gert er ráð fyrir um 100 keppendum á þessu fyrsta móti, frá Norðurlöndunum, en markmiðið að gera mótið að stór- viðburði með þúsund keppendum og mörg þúsund gestum eftir nokk- ur ár. Þá er gert ráð fyrir að einn- ig verði keppt á Dalvík og Siglu- firði. Eins gott að veðurguðirnir verði skíðafólki hliðhollir næstu árin, því hér er vissulega spennandi mál á ferðinni. Góð aðsókn hefur verið í Hlíðarfjalli. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Góður skíðasnjór * „Frá og með risalægðinni 1982 var eins og nýir tímar værugengnir í garð. 930 hPa lægðir urðu ekki algengar en fóru aðsjást við og við. Undanfarinn mánuð hefur keyrt um þverbak.“ Trausti Jónsson veðurfræðingur á bloggsíðu sinni. Þjóðmál SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is Miklum lægðagangi sunnan við Ísland úr vestri fylgir afar óvenjulegt veður víðar en hér. „Segja má að það sé furðuveður víða,“ segir Einar Sveinbjörnsson. „Það hefur til dæmis rignt gríðarlega mikið á Bretlands- eyjum og í suðurhluta Skand- inavíu er óvenjuhlýtt; slabb og hreinlega vorástand á sumum skíðasvæðum í Noregi þar sem þeir hafa yfirleitt verið mjög öruggir með snjó. Norðmenn hafa þurft að fresta skíðamótum síðustu daga.“ Einar segir hlýja loftið ná miklu austar nú en venjulega. Kuldinn austan úr Síberíu hafi í fyrravetur leit- að vestur eftir Evr- ópu en nú sé öldin önnur. Hin sterka lægð úr vestri haldi Síberíukuldanum mun austar en áður. VANTAR SNJÓ

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.