Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Blaðsíða 4
F
átt er Íslendingum ofar í
huga dags daglega en
veðrið, jafnvel þegar það
telst hefðbundið. Það
ber án efa víða á góma
þessa dagana, eins undarlegt og
það hefur verið síðustu vikuna.
„Segja má að þessi syrpa hafi
hafist á Þorláksmessu og staðið yf-
ir meira og minna síðan. Fyrstu
dagana var að vísu nokkuð klassísk
norðanátt með snjókomu en síðan
27. desember hefur verið viðvar-
andi norðanátt sem er, vel að
merkja, mjög mild í grunninn; það
er mjög sérstakt að hér sé svona
hlýtt í norðaustanátt og slydda í
byggð bæði fyrir norðan og austan,
og meira að segja bara slydda á
stundum fyrir vestan.“
Kalda loftinu rutt burt
„Íslendingar eru vanir umhleyp-
ingum yfir veturinn með miklum
snjó og hvassviðri á köflum en
svona langur kafli með norðanaust-
anátt með þessu sérkennilega
milda veðri má teljast óvenjulegt.
Það er ekki algengt að hann
standi inn Eyjafjörðinn með
hláku 3. janúar! Hér fyrir sunnan
er svo þriggja til fjögurra stiga
hiti og tekur varla upp klakann; í
suðaustan átt og rakara lofti er
venjulega allt á floti en nú leys-
ir ekki þrátt fyrir hitann. Það
segir manni það að til að komi
venjulegar vetrarleysingar þarf loft
að ná ákveðnum raka en nú er það
svo þurrt að það bara blotnar á
klakanum en vinnur ekkert á hon-
um.“
Ein aðalástæðan fyrir þessu sér-
kennilega veðri undanfarið, að sögn
Einars, er sú að megninu af því
kalda lofti sem venjulega er fyrir
norðan Ísland hefur verið rutt
burtu af sterkum lægðum sem
beina mildu lofti úr suðri.
Veðurkerfin á haus
„Venjulega er norðaustan bál á
vetrum knúið áfram af hita sem er
á milli Íslands og Grænlands en
þegar hlýnar svona mikið til norð-
urs er norðaustan vindröstin miklu
þykkri en venjulega, nær sem sagt
hærra upp í lofthjúpinn og er af
allt öðru tagi. Ágætur kollegi minn
kallaði þetta norðaustan bakflæði!
Þessi syrpa er orðin svo löng að
segja má að veðurkerfin hér við
landið standi á haus.“
Um þessar mundir berst inn til
landsins úr norðri mun rakara loft
en venjulega í norðaustanátt, svo
mikil ísing verður til fjalla. Nefnir
Einar, sem dæmi um vandræði
vegna þess, mastrið sem féll í Þist-
ilfirði í vikunni. „Víða hefur ísing
valdið truflunum í raforkukerfinu,
þess mikla skýjaísing sem við köll-
um hefur herjað á mannvirki alls
staðar ofan við 400 metra hæð, til
dæmis fraus vindmælir á Hall-
ormsstaðahálsi 27. desember.“
Einar ítrekar að það sé furðulegt
að slydda og rigning skuli vera í
byggð alveg upp í miðjar hlíðar
fjalla, þótt vissulega sé snjókoma
ofar. „Það var kominn klakabunki
víða á vegi en svo þiðnaði og þá
varð fljúgandi hálka. Vetrarástand
er hins vegar á fjallvegum og þó
að ekki sé alltaf ofankoma bætir
stöðugt á vegna þess að éljagangur
er og skafrenningur dag eftir dag.“
Framtíðin óljós
Einar spáir því að veðrið verði
svipað fram yfir helgi en útlit sé
fyrir breytingar um miðja næstu
viku. Þá gæti kólnað en hann segir
reyndar ekki loku fyrir það skotið
að aftur róist síðari hluta vikunnar.
„Langtímaspám ber ekki alveg
saman; veðrið gæti verið að breyt-
ast en samt sem áður er engin
trygging fyrir því að það fari ekki í
sama farið eftir stutt hlé í næstu
viku.“
Mestur kuldi á norðurslóðum er
nú á milli Grænlands og Kanada,
að sögn Einars. Austan við Græn-
land er óvenju hlýtt, sem fyrr segir
og ekki útlit fyrir að kólni svo
mjög að frost nái tveggja stafa tölu
hér á landi á næstunni.
Óvenjulegt er að norðanáttin sé jafn mild og raun ber vitni á þessum árstíma í Eyjafirði. Mannfólki og öðrum líður vel úti við við leik eða störf.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Norðaustan „bakflæði“
óvenjulegt í langan tíma
VEÐRIÐ HEFUR VERIÐ ÓVENJULEGT UNDANFARIÐ: FRÁ 27. DESEMBER VIÐVARANDI MILD NORÐANÁTT OG AFAR SÉR-
STAKT AÐ SVO HLÝTT SÉ Í NORÐAUSTANÁTT HÉRLENDIS AÐ SLYDDA EÐA RIGNING SÉ FYRIR NORÐAN OG AUSTAN.
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2014
Góður skíðasnjór er í Blá-fjöllum eins og hvarvetnaá landinu þrátt fyrir hlý-
indin að undanförnu, en skíðasvæði
höfuðborgarbúa hefur þó ekki verið
opið almenningi nema fáeina daga í
vetur. Flesta daga hafa keppn-
ismenn samt sem áður getað stund-
að æfingar.
Það er hvöss norðaustanátt sem
sett hefur strik í reikninginn í vet-
ur, bæði í Bláfjöll-
um og í Skálafelli.
Of hvasst hefur
verið til að opna
svæðið en færið
verið „meiriháttar
hvern einasta dag
sem hefur verið
opið,“ eins og Ein-
ar Bjarnason, rekstrarstjóri skíða-
svæðið í Bláfjöllum, sagði í gær.
Skíðasvæðin fyrir norðan og
austan hafa verið opin upp á síð-
kastið, á Akureyri hefur fólk til
dæmis getað notið þess að renna
sér flesta daga síðan 22. nóvember,
þegar svæðið í Hlíðarfjalli var opn-
að.
Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður skíðasvæðisins í Hlíð-
arfjalli, segir að það stefni í góðan
skíðavetur. „Það hefur verið ágæt-
ismæting í brekkurnar í vetur en
þó snjóaði helst til
of mikið um hátíð-
arnar,“ segir hann.
Aðeins hefur þurft
að hafa lokað
nokkra daga
vegna veðurs.
Norðanmenn
vonast til þess að
ekki hlýni um of því í byrjun mars
eru á dagskrá alþjóðlegir vetr-
arleikar í Hlíðarfjalli, þar sem
keppt verður bæði á brettum og í
ýmissi skíðafimi. Gert er ráð fyrir
um 100 keppendum á þessu fyrsta
móti, frá Norðurlöndunum, en
markmiðið að gera mótið að stór-
viðburði með þúsund keppendum
og mörg þúsund gestum eftir nokk-
ur ár. Þá er gert ráð fyrir að einn-
ig verði keppt á Dalvík og Siglu-
firði.
Eins gott að veðurguðirnir verði
skíðafólki hliðhollir næstu árin, því
hér er vissulega spennandi mál á
ferðinni.
Góð aðsókn hefur verið í Hlíðarfjalli.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Góður
skíðasnjór
* „Frá og með risalægðinni 1982 var eins og nýir tímar værugengnir í garð. 930 hPa lægðir urðu ekki algengar en fóru aðsjást við og við. Undanfarinn mánuð hefur keyrt um þverbak.“
Trausti Jónsson veðurfræðingur á bloggsíðu sinni.
Þjóðmál
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
Miklum lægðagangi sunnan
við Ísland úr vestri fylgir afar
óvenjulegt veður víðar en
hér. „Segja má að það sé
furðuveður víða,“ segir Einar
Sveinbjörnsson.
„Það hefur til dæmis rignt
gríðarlega mikið á Bretlands-
eyjum og í suðurhluta Skand-
inavíu er óvenjuhlýtt; slabb og
hreinlega vorástand á sumum
skíðasvæðum í Noregi þar
sem þeir hafa yfirleitt verið
mjög öruggir með snjó.
Norðmenn hafa þurft að
fresta skíðamótum síðustu
daga.“
Einar segir hlýja loftið ná
miklu austar nú en venjulega.
Kuldinn austan úr Síberíu
hafi í fyrravetur leit-
að vestur eftir Evr-
ópu en nú sé öldin
önnur. Hin sterka
lægð úr vestri haldi
Síberíukuldanum
mun austar en
áður.
VANTAR SNJÓ