Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2014
Frumkvöðlar leynast víða og þeir eru afmargvíslegum toga. Þeir hafa það ekkiallir að markmiði að verða leiðandi á sínu
sviði með fjárhagslegan ávinning að leiðarljósi.
Sumir verða jafnvel frumkvöðlar án þess að
hafa nokkurn tímann ætlað sér landvinninga,
fá kannski aldrei að vita af því að litið er til
þeirra sem frumkvöðla. Í atvinnulífinu hins
vegar er í auknum mæli litið til frumkvöðla um
aukinn hagvöxt. Þar eru menn fyrir löngu bún-
ir að átta sig á mikilvægi frumkvöðla, vilja
gjarnan veg þeirra sem mestan og hvetja þá til
dáða.
Öðru máli gegnir um þá sem verða gjald-
þrota. Þessir sem „renna á rassinn með allt
sitt“, „keyra fyrirtækin í þrot“ og voga sér
jafnvel stundum að „fara aftur af stað“ með
rekstur. Kennitöluflakkarar eru þeir jafnvel
uppnefndir. Menn hafa illan bifur á gjald-
þrotum.
Í efnahagslífinu eru hins vegar lexíurnar
tvær um hagnað og tap nánast jafn mik-
ilvægar. Hagnaðarvonin drífur menn áfram en
tapið vísar veginn út úr óarðbærum rekstri og
vonandi í arðbæran. Með gjaldþroti er komið í
veg fyrir sóun á verðmætum. Þess vegna er
t.d. mikilvægt að ekki séu skapaðar falskar
væntingar í rekstri með opinberum styrkjum
sem mögulega fresta nauðsynlegu gjaldþroti.
Þeir sem fá opinbera styrki missa af skilaboð-
unum sem markaðurinn vill senda. Þeir fá ekki
að njóta kennslustundanna tveggja um hagnað
og tap. Gjaldþrotin eru því oft kærkomin.
En skyldu þeir eiga eitthvað sameiginlegt,
frumkvöðlarnir sem allir vilja styðja og hvetja
áfram og gjaldþrotapeyjarnir svokölluðu? Já,
reyndar. Nánast allir frumkvöðlar sem eitthvað
kveður að hér á landi eiga að baki misheppn-
aðan rekstur í einhverju formi. Sum þessara
frumkvöðlafyrirtækja sem við teljum nú til
óskabarna þjóðarinnar eiga rætur að rekja til
gjaldþrota fyrirtækja, hefðu mögulega ekki
orðið til nema vegna þess að fullreynt var með
eitthvað annað.
Hitt er svo annað mál að kostnaður kröfu-
hafa af gjaldþrotaskiptum nemur nokkur
hundruð milljónum króna á ári. Það kann að
vera sjálfsögð krafa að þeir sem stofna fyr-
irtæki geri ráð fyrir þeim möguleika strax í
upphafi að illa fari og að fyrirtækin sjálf standi
straum af kostnaði við möguleg gjald-
þrotaskipti en ekki þeir sem óska eftir gjald-
þrotaskiptum sem yfirleitt eru kröfuhafar.
Þannig mætti hugsa sér að við skráningu fé-
lags yrði innheimt trygging sem næmi skipta-
tryggingu við gjaldþrot, í dag 250 þúsund
krónum. Varla myndi það draga úr nokkrum
bjartsýnismanni við stofnun fyrirtækis.
Til varnar gjaldþrotum
* Gjaldþrot eru oft kær-komin. Þau losa bæðiskuldara og lánardrottna
við óraunhæfar væntingar
og leiða oft til arðbærari
verkefna af beggja hálfu.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Eins og flestum er kunnugt var
stórstjarnan Bono, söngvari hljóm-
sveitarinnar U2, staddur hér á
landi um áramótin. Margir af vina-
lista Andra
Freys Viðars-
sonar, útvarps-
manns á RÚV,
hafa eflaust náð
að smella mynd af
sér með kauða til birtingar á Fa-
cebook. Þeim sem áttu það eftir
vildi Andri Freyr hrósa. „Ok, á ein-
hver sem var í teiti með Bono í
gær eftir að birta mynd af sér með
honum? Ef svo er þá á sá eða sú
hrós skilið!“
Tobba Mar-
inósdóttir fjöl-
miðlakona spurði
álits á Facebook
um einkar óvenju-
legt nafn á dreng.
„Hvað finnst ykkur um nafnið Hill-
aríus ef það er strákur?“ Hún á von
á barni með Karli Sigurðssyni,
Baggalúti. Hann svaraði að nafnið
væri leyft en einungis með einu l-i.
„Fáum Arnar til að berjast fyrir
þessu með okkur. Annars líst mér
líka ágætlega á Mensalder.“
Siggi Hlö, umsjónarmaður út-
varpsþáttarins
Veistu hver ég
var? á Bylgjunni,
var sáttur við að
vera tekinn fyrir í
Áramóta-
skaupinu. „Því-
líkur heiður að vera tekinn fyrir í
Skaupinu. Mjög sáttur með Pétur
Jóhann og tók eftir að hann var
greinilega búinn að liggja yfir mín-
um hreyfingum en það geta ekki
allir hreyft sig svona fimlega og í
senn eggjandi. Fyrir utan grín í
minn garð þá er þetta besta Skaup
allra tíma (fyrir utan 1984).“
Söngfuglinn
okkar hún Sig-
ríður Thorla-
cius átti góða
áramótakveðju á
Facebook. „Allt
verður merkingarþrungið við ára-
mót. Sturtan verður lengri – eins
og skítur heils árs þurfi að fara úr
hárinu áður en nýtt ár bankar upp
á. Konur eiga það til að fara að
henda úr skápunum, klippa hár
jafnvel og lakka sérstaklega vel
neglur. Hvert einasta skref er ein-
hverskonar áramótaskref. Og er
það allt vel. Bless 2013. Farðu
bara. 2014 – komdu fagnandi.“
AF NETINU
Hamborgarabúllan eða Tommi’s Burger Joint,
eins og staðurinn heitir upp á engilsaxnesku,
gæti átt besta hamborgarann í heimsborginni
Lundúnum, ef marka má ferðasíðuna
yelp.co.uk. Kosning stendur nú yfir meðal
gesta síðunnar og koma fimm staðir til greina.
Auk Hamborgarabúllunnar eru tilnefndir
Patty and Bun, Honest Burgers, Burger and
Lobster og Bleeker Street Burger.
Á heimasíðu Yelp getur að líta fjölda um-
sagna um gæði borgaranna á Tommi’s Burger
Joint og eru þær mestmegnis lofsamlegar.
Meðalstjörnugjöf gesta síðunnar er fjórar og
hálf stjarna af fimm mögulegum.
Tómas Tómasson veitingamaður er að gera góða hluti með búlluna sína í Lundúnum.
Morgunblaðið/Heiddi
Á Tommi besta borgarann?
Eins og fram hefur komið í fréttum eyddi Vil-
borg Arna Gissurardóttir öðrum jólunum í
röð á Suðurskautslandinu og komst á hæsta
fjall álfunnar, Vinsons, á aðfangadag eins og
að var stefnt.
Vilborg Arna var með góðum hópi Íslend-
inga á ferð og leikkonan Halla Vilhjálms-
dóttir var þar fyrir tilviljun meðal annarra í
hóp með henni og varð þeim stöllum vel til
vina. Orkuboltinn Halla hefur verið einkar at-
hafnasöm á árinu sem var að líða en auk þess
sem hún kleif fleiri en eitt fjall á árinu eyddi
hún drjúgum tíma í að æfa sig á mótorhjólinu
sínu, sitja fyrir og leika í Bretlandi og víðar.
Halla kom til London á gamlársdag, losaði sig
við suðurskautsbúnaðinn og hélt beint í ný-
árspartí þar í borg. Fáeinum klukkustundum
síðar var hún búin að bóka far til Íslands og
dvelur nú hér á landi og hvílir lúin bein.
Heimshorna
á milli
Halla Vilhjálmsdóttir leikkona hefur haft brenn-
andi áhuga á fjallamennsku í tæplega tvö ár.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vettvangur