Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Síða 9
5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Þ
að gerðist hratt. Svo
hratt að fáir áttuðu sig
á því hvað hafði gerst.
Monica Seles sat á
bekk sínum á tenn-
isvellinum í Hamburg 30. apríl
1993 og var að safna kröftum fyrir
lokaátökin gegn Magdelenu
Maleevu. Enn einn sigurinn var í
augsýn. Þá spratt skyndilega
ókunnugur maður á fætur og lagði
til hennar með hnífi. Seles brá að
vonum og rak upp vein. „Skyndi-
lega fann ég fyrir nístandi sárs-
auka og þegar ég tók um herða-
blaðið var ég alblóðug,“ rifjaði hún
upp síðar. Sjokkið var algjört og
Seles hneig niður á völlinn, þar
sem hópur manna stumraði yfir
henni. Árásarmaðurinn var yf-
irbugaður og afvopnaður.
Seles var flutt með hraði á
sjúkrahús, þar sem í ljós kom að
áverkinn var ekki alvarlegur.
Hnífurinn, sem gerður var til úr-
beininga, hafði aðeins stungist
hálfan annan sentimetra inn í bak
hennar. Seles var heppin, litlu
mátti muna að hnífurinn hæfði
mænuna.
Sárið á bakinu greri hratt.
Sama verður ekki sagt um hitt
sárið, það sem var á sálinni. Seles
féll gjörsamlega saman og gat
ekki hugsað sér að spila tennis í
bráð. Raunar liðu 27 mánuðir
þangað til hún sneri aftur á völl-
inn. Þá var hún ekki lengur sami
leikmaðurinn. Þessi einbeitta, nán-
ast ósvífna, keppnismanneskja var
skyndilega hógvær og berskjölduð.
Árangurinn var eftir því.
Vinsældirnar jukust
Annað breyttist eftir að Seles
sneri aftur, vinsældirnar jukust til
muna. Þrátt fyrir afbragðsárangur
fyrir hnífsstunguna var hún aldrei
sérstaklega vinsæll tennisleikari.
Virkaði köld og fráhrindandi. Eftir
áfallið héldu allir með henni.
Fyrst af vorkunnsemi en síðan
vegna þess að hún þótti hafa
brugðist við örlögum sínum af
æðruleysi og reisn. Monica Seles
varð hvers manns hugljúfi.
Athyglin var mikil og kom hún
meðal annars fram í gamanþátt-
unum Barnfóstrunni (e. The
Nanny) í Bandaríkjunum árið
1996.
Seles lék í átta ár til viðbótar
sem atvinnumaður, til ársins 2003,
en vann aðeins eitt stórmót, Opna
ástralska 1996. Hún lagði spaðann
formlega á hilluna fyrir fimm ár-
um og ári síðar var hún tekin inn
í Frægðarhöll íþróttarinnar.
Árásarmaðurinn, Günther
Parche að nafni, var dyggur aðdá-
andi helsta keppinautar Seles á
þessum tíma, þýsku stúlkunnar
Steffi Graf. Var tilgangur hans að
taka Seles úr umferð. Það heppn-
aðist. Parche átti við geðræn
vandamál að stríða og var fundinn
ósakhæfur. Í stað þess að dæma
hann til fangavistar var honum
gert að leita sér geðhjálpar. Seles
var mjög ósátt við þær lyktir mála
og lék aldrei framar í Þýskalandi.
„Maðurinn stakk mig af yfirlögðu
ráði en hlaut enga refsingu. Fyrir
vikið þykir mér óþægilegt að fara
aftur til Þýskalands og sé það
ekki gerast,“ sagði hún síðar.
Seles fæddist í Novi Sad í Júgó-
slavíu (nú Serbíu) 2. desember
1973 og er því nýorðin fertug.
Hún er af ungverskum uppruna
en faðir hennar starfaði um árabil
sem skopmyndateiknari við dag-
blöð. Seles tók sér fyrst tenn-
isspaða í hönd fimm ára gömul og
ekki varð aftur snúið. Hæfileik-
arnir blöstu við öllum og hún
keppti á fyrsta atvinnumótinu að-
eins fjórtán ára, 1988. Fyrsti titill-
inn kom ári síðar er hún lagði
goðsögnina Chris Evert á móti í
Bandaríkjunum og fyrsti stóri tit-
illinn árið 1990, á Opna franska
meistaramótinu. Samtals vann Sel-
es það mót í þrígang, Opna
bandaríska tvisvar og Opna ástr-
alska fjórum sinnum. Þá vann Sel-
es til bronsverðlauna á Ólympíu-
leikunum í Sydney 2000.
Glímdi við þunglyndi
Seles býr í Bandaríkjunum og
varð raunar bandarískur ríkisborg-
ari árið 1994. Hún fékk líka ung-
verskan ríkisborgararétt árið 2007.
Lítið hefur farið fyrir Seles í
seinni tíð. Árið 2008 tók hún raun-
ar þátt í sjónvarpsþáttunum Dans-
að með stjörnunum í Bandaríkj-
unum og ári síðar gaf hún út
endurminningar sínar, þar sem
hún fjallar meðal annars um glímu
sína við þunglyndi og matarfíkn
eftir árásina. Þá ræðir hún um
baráttu föður síns við krabbamein
sem varð honum á endanum að
aldurtila.
Seles er ógift en frá árinu 2009
hefur lagsmaður hennar verið auð-
kýfingurinn Tom Golisiano sem er
32 árum eldri. orri@mbl.is
HVAÐ VARÐ UM?
Monicu Seles
Hugað að Seles andartaki eftir að hún var stungin í bakið á móti í Þýskalandi.
Ekki verður annað sagt en árin hafi
farið mjúkum höndum um Seles.
MONICA SELES VAR
UNDRABARN Á TENN-
ISVELLINUM, HAFÐI UNNIÐ
ÁTTA STÓRA TITLA ÁÐUR
EN HÚN VARÐ TVÍTUG.
ALLT BREYTTIST Á AUGA-
BRAGÐI ÞEGAR VITSKERTUR
MAÐUR STAKK HANA Í
BAKIÐ MEÐAN Á LEIK
STÓÐ Í ÞÝSKALANDI.
Monica Seles einbeitt á svip á Opna ástralska meistaramótinu í tennis 2003.
Reuters
Seles skildi tennisspaðann aldrei við
sig í æsku. Varð atvinnumaður 14 ára.
Viðhaldsfríar
hurðir
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 29 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187