Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Qupperneq 12
Í myndum
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2014
Lifandi tónlist um helgar
Flamenco dans á fimmtudögum
Tapashúsið | Ægisgarður 2, 101 Reykjavík | info@tapashusið.is
NÝR OG SPENNANDI
JÓLAMATSEDILL
TAPASHÚSID BORDPANTANIR
Í SÍMA 512-8181
S
igurgeir Jónasson byrj-
aði ungur að taka ljós-
myndir og birtist sú
fyrsta á prenti þegar
hann var 13 ára. Fyrsta
fréttamynd hans fyrir Morg-
unblaðið birtist hins vegar í nóv-
ember 1959, fyrir tæpum hálfum
fimmta áratug! Milljónir mynda
eru í safni Sigurgeirs, en hann
þorir reyndar ekki að nefna ná-
kvæmari tölu. Vestmannaeyjabæ
verður afhent safnið formlega til
varðveislu á morgun, sunnudag.
Sigurgeir fæddist í Vest-
mannaeyjum 1934 og verður því
áttræður á þessu ári. Hann hefur
búið í Eyjum alla tíð.
„Það er merkilegt að vera
tengdur blaðinu svona lengi og lík-
lega undarleg þolinmæði af beggja
hálfu!“ segir Sigurgeir í samtali
við Sunnudagsblað Morgunblaðs-
ins. Auk þess að sinna ljósmyndun
var Sigurgeir fréttaritari Morg-
unblaðsins um tíma og vert er að
geta þess að hann og Jakobína
Guðlaugsdóttir, eiginkona hans,
voru umboðsmenn Morgunblaðsins
í Eyjum í um 30 ár.
Fjölskylda Sigurgeir stofnaði
fyrirtæki um safnið árið 2005 og
var unnið við frekari flokkun og
skráningu í nokkur ár. Styrkir
fengust til verksins framan af, en
eftir að efnahagskreppan skall á
varð það nánast ómögulegt. Með
Hús við Heimagötu fer undir hraun í eldgosinu á Heimaey 1973. Myndina tók Sigurgeir Jónasson í mars. Hann á þúsundir, jafnvel tugþúsundir mynda, frá gosinu í Eyjum í safni sínu.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Eyjar með augum
Sigurgeirs í áratugi
Í SAFNI SIGURGEIRS JÓNASSONAR Í VESTMANNAEYJUM ERU MILLJÓNIR LJÓSMYNDA,
SEM HANN HEFUR TEKIÐ Á HÁLFRAR ALDAR FERLI. SIGURGEIR ER LESENDUM
MORGUNBLAÐSINS AÐ GÓÐU KUNNAR ENDA ÞJÓNAÐI HANN BLAÐINU Í ÁRATUGI.
VESTMANNAEYJABÆ VERÐUR FORMLEGA AFHENT SAFNIÐ TIL VARÐVEISLU UM HELGINA.
Jónas Sigurðsson í Skuld, faðir Sigurgeirs, á lundaveiðum í Álsey.