Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Page 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Page 19
5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 0 kr. útborgun Langtímaleiga Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða. Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun, tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald. Losnaðu við vesenið með langtímaleigu Kynntu þér málið í síma 591-4000 Á R N A S Y N IR Hann hafði aldrei slegist við nokkurn mann áður. Ég gekk með hann í hringinn og við buð- um í hvern sem var, að lokum beit einn á agnið og gerði sig kláran. Mario var ekkert að hika við sinn slag, brunaði beint í gæjann og fljótlega lá hann í jörðinni. Eftir slaginn var Mario dreginn út úr hringnum í viðtal við sjónvarpsstöð í Perú. Hann talar enga spænsku þannig að ég gerðist túlkur fyrir hann og tókst að ræna viðtalinu af hon- um. Okkur var síðan sagt daginn eftir að við hefðum verið í frétt- unum í Perú.“ Stóra stundin „Á eftir Mario gerði ég mig kláran. Ég var tilbúinn að fá glóðarauga en nennti ekki að standa í brotnu nefi eða tapaðri tönn. Ætlaði bara inn og dýfa mér í drulluna því það er sama og tap ef maður fellur í jörðina. Það má heldur ekki berja eða sparka í liggjandi mann og dóm- ararnir verja liggjandi mann. Ég vildi gera smásýningu úr þessu, og fékk því að fara á öxlum Mario inn í hringinn á meðan við leituðum að andstæðingi. Einhverjum fannst þetta fyndið og við það jókst sjálfstraustið hjá mér. Einum fannst það ekki og langaði að berja mig. Sá gæi var ansi stór og var í skóm með stáltá. Mér var ráð- lagt biðja hann um að skipta um skó. Þá kom annar gæi, sá sami og Mario var nýbúinn að vinna og sá var alveg þokkalega þéttur með rosa sveiflu. Ég þorði varla í hann en gat varla guggnað aft- ur. Inn í hringinn fór ég og bjó mig undir að vera laminn í buff. Að sjálfsögðu fór ég úr að of- an og lyfti aðeins upp stuttbux- unum og fékk smá hvatningu fyrir. Mig langaði að njóta þess- ara mínútna þangað til ég yrði laminn í döðlur. Svo man ég ekki alveg hvað gerðist en eftir stutta stund og nokkur högg- skipti hrinti ég hinum gæjanum svo hann datt og ég var þar með sigurvegari. Þvílíkur léttir. Allar tennur á sínum stað. Ég fór út úr hringnum og þá fór fólk að klappa í stúkunni. Hversu fyndið, ég að sjálfsögðu tók smá Sparta öskur eins og ég væri nýbúinn að fullkomna þrennu í Pepsi-deild karla. Hetjustund lífs míns. Svo róaðist ég.“ Fljótt flýgur fiskisagan „Eftir slagsmálin fórum við upp í stúku og róuðum taugarnar með nokkrum bjórum með áhangendum okkar. Enginn skildi hvernig í ósköpunum við fundum Takanakuy og Santo Tomas. Um sexleytið vorum við orðnir virkilega svangir og þá var farið að rökkva og fólk farið að flytja sig heim. Við gengum um göturnar í leit að veit- ingastað og fólk brosti til okkar, fiskisagan flaug hratt. Um kvöld- ið vorum við óhæfir til að njóta augnabliksins því það mígrigndi svo fólk hélt sig innandyra. Þar að auki var ég að deyja í hnénu og úlnliðnum eftir slagsmálin, Geir var aumur við gagnaugað og Mario fann fyrir höfuðverk. Þvílíkur dagur. Hátíðin er með reglur og það má ekki hvað sem er. Við sáum einn rotast, en annars voru þetta minniháttar meiðsl, smá- blóð en engin beinbrot og engin umframharka. Mér sýndist fólk njóta sín, hvort sem um var að ræða slagsmálahunda, áhorfendur eða dómara. Reyndar mættu þeir alveg hafa einn lækni og sjúkra- bíl á svæðinu. Í heildina algjört ævintýri og í raun ótrúlegt að þessi hátíð skuli enn vera svona óþekkt og óspillt af útlendingum. Vonandi helst hún þannig en þó efast ég um það því við sáum t.d. að tveir erlendir myndatökumenn voru mjög frekir og voru alltaf fyrir þeim sem fyrir aftan voru. Vonandi slæst ég aldrei aftur við nokkurn mann en djöfull var þetta gaman.“ Marteinn ásamt norska vini sínum Geir Bendik Storesund sem barðist einnig. Konur slást líka á hátíðinni. Mario Ghobrial, Marteinn Briem og Geir Bendik Storesund í Colca Canyon. Marteinn fór úr að ofan og barðist í Víkingsstuttbuxum. Númer 15 takk fyrir og hafði sigur. * „Ég þorði varla í hann en gat varlaguggnað aftur. Inn í hringinn fór ég og bjó mig undir að vera laminn í buff.“

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.