Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Side 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Side 27
Á líflegu heimili í Vesturbænum býr fimm manna fjölskylda og kann vel við sig enda hefur húsið fallega sögu. Margrét, sem er arkitekt og heilsumarkþjálfi og starfar bæði sjálfstætt og sem heilsumarkþjálfi á mannauðsskrifstofu umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur, segir mikið ævintýri að búa í húsinu sem afi hennar teiknaði og bjó í ásamt ömmu Margrétar og Leifi föður hennar. „Fjölskyldan bjó hér alla tíð, en þegar afi var 93 ára og amma var dáin vildi hann flytja í minna húsnæði. Þá bauðst mér og minni fjölskyldu að kaupa húsið. Afa þótti vænt um að húsið skyldi haldast í fjölskyldunni. Við gerðum mjög litlar breytingar á húsinu þegar við fluttum inn, en þurftum þó að endurnýja baðið og eldhúsið. Við gátum slípað upp parketið, en þetta parket er með því elsta sem lagt var í íslensk híbýli. Þetta eru skipaplankar sem voru sagaðir í Völundi og lagðir þegar húsið var byggt árið 1953,“ segir Margrét og bætir við að húsið hafi verið byggt á tímum Fjárhagsráðs og á miklum þrengingatímum. Húsið er fallega staðsett við hafið og segir Margrét dásamlegt að geta setið við eldhúsborðið og horft út á sjóinn. „Heimilið allt er minn griðastaður og þar líður mér mjög vel. Íbúðin er mjög vel skipulögð, hver fer- metri nýtist mjög vel og herbergin eru af mjög passlegri stærð og í góðum hlutföllum sem eru til þess fallin að manni líði vel,“ segir Margrét og segir mikilvægt við hönnun heimila að herbergja- og rýmisskipan hvetji til samveru fjölskyldunnar. „Ég vil að litir og ljós skapi hlý- legt andrúmsloft, það sé einfalt að þrífa og pláss til að dansa.“ Aðspurð hvað sé á óskalistanum inn á heimilið langar Margréti mikið í hægindastól í bókahornið og nýja borðstofustóla. Margrét ber mikla virðingu fyrir húsinu og munum þess. „Það er mjög góður andi í húsinu.“ Morgunblaðið/Kristinn Mikið af húsgögnum er frá afa Margrétar, Gísla Halldórssyni, sem teiknaði húsið. Fallegur arinn. Margrét leggur áherslu á að leyfa gömlum húsgögnum og innréttingum að njóta sín. Ævintýri að fá að búa í húsinu MARGRÉT LEIFSDÓTTIR, ARKITEKT OG HEILSUMARKÞJÁLFI, BÝR ÁSAMT FJÖLSKYLDU SINNI Á TÓMASARHAGA, Í FALLEGU HÚSI SEM AFI HENNAR, GÍSLI HALLDÓRSSON ARKITEKT, HANNAÐI. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is MIKILVÆGT AÐ HAFA PLÁSS TIL AÐ DANSA 5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.