Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Síða 38
Hvar kaupir þú helst föt?
Hér heima versla ég mest í GK Reykjavík og „vintage“ sítískubúðunum, annars
finnst mér Zara alltaf skemmtileg og svo er alltaf gott að komast út í H&M, Ur-
ban og þessar búðir. Ég var dugleg að versla á Ebay hérna áður en það hefur
eitthvað minnkað. Ég er mikið í jógafötunum þar sem ég kenni jóga alla daga og
er þá skemmtilegra að hafa þau falleg og leyfir ég mér því að kaupa þau í Lu-
lulemone.
Hver er þín tískufyrirmynd?
Það er svo sem engin ein, maður er duglegur að skoða tískublogg, kíkir í blöðin
þegar maður fer á kaffihús og skoðar fólk í kringum sig. Þessar skvísur eru
hver annarri flottari svo ég er ekkert að gera upp á milli þeirra.
Hverju myndir þú aldrei klæðast?
Maður sér þetta kannski frekar hjá karlpeningnum en íþróttabuxur og blaser
jakki eða íþróttabuxur og spariskór. Þetta er bannað! Ég man eftir ömmu í
krumpugallanum, hvítum sokkum og svörtum hælaskóm, hún var kannski móð-
ins þá en ég mundi ekki fara í þetta dress.
Áttu flík sem þú klæðist heima en myndir aldrei fara í út úr húsi?
Nei, ég held bara ekki, ekki nema Snoopy-náttsloppinn minn sem er rosa kósí en
ekkert voðalega fallegur eftir margra ára notkun.
Hvað ætlarðu að fá þér fyrir nýja árið?
Ég fæ eflaust eitthvað rosa fallegt fyrir nýja árið, kjól, skó eða eitthvað annað
sem ég þarf svo sem ekkert á að halda. En ekkert fyrirfram ákveðið. Ég er þó
bjartsýn á að með nýju ári komi meiri gleði, hamingja og enn skemmtilegri
tímar sama hvort ég verð í nýjum skóm eða ekki.
Hvað finnst þér best við vetrartískuna?
Pelsar, kápur, stórar hlýjar peysur, rauður varalitur, húfur, treflar, kertaljós,
kakó og kósíheit allt í bland... Elska það. Sakna þess þó stundum geta
verið í hælunum vegna færðar.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgi-
hlut myndirðu kaupa?
Vá, þó að maður þykist vera nægjusamur kom peningamerki í aug-
un og græðgin blossaði upp við að heyra þessa spurningu. Ætli ég
myndi ekki kaupa mér einhverja tryllta yfirhöfn eða skó frá Stellu
McCartney, leðurjakka frá Alexander Wang, kjól frá Victoriu Beck-
ham og eitthvað fleira fyrir afganginn.
Áttu flík sem þú tímir ekki að klæðast?
Nei, ég er hætt að spara „fínu“ fötin mín og reyni að nota þau eins
mikið og ég get, maður á að skarta því sem maður á, við vitum
aldrei hvar og hvort við verðum á morgun.
Hvert er þitt eftirlætis tískutímabil og hvers vegna?
Tímabilin 1920 og 1950 hafa alltaf heillað mig, veit eiginlega ekki
hvað það er. Það hefur kannski verið einhver uppreisn í tísku-
heiminum í lok heimsstyrjaldanna sem ég er að fíla. Annars hef-
ur mig alltaf langað að klæðast glæsilegum pilsmiklum kjól eins
og þær klæddust í kringum 1850 og láta bjóða mér á dansiball.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt?
Mér finnst skipta mestu að fíkin sé vönduð og endingargóð,
ég kaupi mér frekar eina
dýra flík sem ég veit að ég
mun nota mikið og lengi.
Dýrar yfirhafnir og töskur
eru einfaldlega góðar fjár-
festingar.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Drífu langar í
kjól frá Victoriu
Beckham.
LEYFIR SÉR AÐ KAUPA FALLEG JÓGAFÖT
Hætt að spara
„fínu“ fötin
DRÍFA ATLADÓTTIR JÓGAKENNARI ER ÁVALLT FLOTT TIL
FARA. DRÍFA SEGIR ÞAÐ SKIPTA MESTU MÁLI AÐ FLÍKUR SÉU
VANDAÐAR OG ENDINGARGÓÐAR OG TELUR DÝRAR TÖSKUR
OG YFIRHAFNIR GÓÐAR FJÁRFESTINGAR.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Dior-
varalitur nr.
999 er
fallega rauður
á litinn.
Drífa Atladóttir er
bjartsýn á að með
nýju ári komi meiri
gleði og hamingja.
Skór frá Stellu
McCartney eru
á óskalistanum.
Tímabilin
1920 og
1950 hafa
alltaf
heillað.
*Föt og fylgihlutir Það er skemmtilegra að vera í töff íþróttafötum í ræktinni og úr mörgu flottu að velja »40