Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Blaðsíða 39
5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Act Heildverslun | Dalvegi 16b - 201 Kópavogur | 577 2150 | act@actehf.is
Rakvél
Rakvél
Lithium
rafhlaða Skeggsnyrtir
Lithium rafhlaða
Alhliða snyrtitæki
Lithium rafhlaða
S9600-Remington SILK sléttujárn
Digital LCD skjár sem sýnir hitan 150-240˚C
Hitnar á 10 sek. Hægt að læsa hitastilli, digital skjár
Fæst í öllum helstu
raftækjaverslunum á Íslandi
Ci96S1 – Silk alhliða hár-mótunartæki
25mm klofin töng sem býr til margar tegundir af hárgreiðsl-
um, meðalstórar krullur, lausar krullur, bylgjur, mjúka liði.
Digital skjár 120-230˚C, hitnar upp á 30 sek., læsing á
hitastillir, slekkur sjálfkrafa á sér
eftir 60 mín., alþjóðlegur s
traumur 120-240V
AC 9096 – Remington
Silk hárblásari
Kraftmikill 2400W hárblásari,
AC motor, blæs 140 km/h,
kaldur blástur
Hárklippa
Ci96Z1 – Silk Waving Wand
Bylgju járn, 16mm x 26mm töng, Digital skjár
120-220˚C, slekkur sjálfkrafa
á sér eftir 60 mín.,
alþjóðlegur straumur
120-240V
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
É
g sé að þú hefur haft það
gott um jólin,“ sagði
kraftlyftingaþjálfarinn
minn þegar við hittumst í
gær eftir tveggja vikna fjarveru
hvort frá öðru. Ég svaraði því ját-
andi og lofaði að ég væri búin að
taka síðasta sopann af maltinu og
appelsíninu … allavega í bili og ég
væri líka komin í ótímasett
kampavínsbindindi …
Jólin eru nefnilega tíminn til að
njóta og ef maður getur ekki
fengið að vera í friði með alla
heimsins óhollustu í æð er ekki
þess virði að draga
andann yfirhöfuð.
Þessir hátíðadagar
geta þó verið svolítið
yfirþyrmandi með
öllum sínum kræs-
ingum og í árs-
byrjun er það alls
ekki það versta sem
getur gerst í lífi
fólks að skipta jóla-
ölinu út fyrir vatn og
Nóa-konfektinu fyr-
ir hafragraut. Eins
notalegt og það er að
hafa munninn fullan
af karamellu og súkkulaði þá fær
maður líka leiða á því og ofátið
verður svo hversdagslegt þegar
það er búið að standa yfir í meira
en viku.
Svo má ekki gleyma því að það
skiptir meira máli hvernig lífi
maður lifir milli nýárs og jóla en
milli jóla og nýárs. Þótt þjálfarinn
hafi séð það á núlleinni að ég væri
pínu feit þá verð ég að viðurkenna
að ég fann alls ekkert fyrir þessu
þegar ég lá á náttfötunum uppi í
sófa með fullan munninn. Náttföt
teygjast náttúrlega endalaust.
Það var ekki fyrr en á gamlárs-
kvöld sem ég áttaði mig á því að
kjóllinn sem ég hafði verið svo óg-
urlega lekker í fyrir jólin var eig-
inlega við það að springa á saum-
unum. Og svo gat ég ekki rennt
honum upp ein míns lið heldur
þurfti liðsauka. Þegar ég mætti í
boðið reyndi ég
að standa sem
mest svo líffærin
yrðu ekki fyrir
varanlegu tjóni.
Áramótaheitið
verður þó alls
ekki að fara í
megrun heldur
halda áfram eins
og frá var horfið
fyrir jól. Það
felst nefnilega
ákveðin list í því
að breyta engu
og vera ánægð.
Og elska „det
Stelpur hlaupa í bleikum hlaupa
skóm
og eru með bleik teppi heima h
já sér.
Er þetta
dóttir ykkar?
Það eru bara stelpur sem
blása tyggjókúlur.
Í 30 ára afmæli Coke Light í
Lundúnum með Pöttru og
Elísabetu á Trendnet.is
hele“ sama hvað talan sýnir á
vigtinni.
Á þessum árstíma er til siðs að
horfa yfir farinn veg og skoða líf
sitt frá ýmsum sjónarhornum.
Þegar ég skoðaði líf mitt áttaði ég
mig á því að 2013 er árið sem ég
varð aftur stelpa.
Stelpa sem læsti sig úti og klifr-
aði inn um glugga á annarri hæð á
15 cm hælum, stelpa sem hljóp
hálft maraþon, stelpa sem tók
skyndiákvarðanir, stelpa sem fór
frekar út og hitti vini sína en að
vera heima að taka til, stelpa sem
fór að ganga í gúmmístígvélum,
stelpa sem blés tyggjókúlur,
stelpa sem stóð á haus og stelpa
sem setti á sig hárkollur í partíi
og tók mynd. Stelpa sem ákvað að
tíminn væri núna og hans þyrfti
að njóta í botn.
Eitt af eftirminnilegustu
augnablikum ársins var þegar
stelpan hitti Sigmund Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra
og Svanhildi Hólm Valsdóttur, að-
stoðarmann Bjarna Benedikts-
sonar fjármálaráðherra, í Hörpu.
Þá kom kona upp að okkur og
spurði: „Er þetta dóttir ykkar?“
og benti á mig. Ég velti því fyrir
mér um stund hvort það þyrfti að
senda konuna í sjónmælingu …
enda ekki á hverjum degi sem
stelpan er spurð að því hvort hún
sé dóttir jafnaldra sinna.
martamaria@mbl.is
Stelpa stendur
á haus.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, undirrituð
og Svanhildur Hólm Valsdóttir.