Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2014
Í
helgar bækur, fornar en ferskar, sækja
menn frásagnir um hvernig góð ár og mögur
eiga sinn takt. Gjarnan er lagt út af draumi
Jósefs um sjö feitar kýr og sjö magrar. En
ótal sinnum hafa menn bent á að ráðning
draumsins forna um mögru árin hafi ekki
aðeins gengið upp í það sinnið heldur hafi hann haft
forspárgildi æ síðan. Vitnisburðir þessa eru fleiri og
jafnóteljandi og eyjar Breiðafjarðar og hólar Vatns-
dals voru fyrir daga flugvéla og gervitungla með
myndavélar.
Saga er sögð
Saga segir að einn helsti forystumaður Íslands hafi
ráðgast við mestan efnahagsvitring landsins í byrjun
7. áratugar síðustu aldar og spurt um horfur efna-
hagslífsins. Sá mun þá hafa haft draum Jósefs í huga
og taldi ekki ólíklegt að í hönd færu sjö góð ár, en
ætla mætti að þá myndi þjóðin standa frammi fyrir
miklum erfiðleikum í efnahagslífinu. Ekki liggur fyrir
hvað forystumanninum þótti um slíka framsetningu.
En sagan segir, að þegar síldin hvarf sporlaust sjö ár-
um síðar, með þeim miklu erfiðleikum sem þeim at-
burði fylgdu, hafi forsætisráðherrann hugsað upp-
hátt: Hann skyldi þó ekki hafa haft rétt fyrir sér hann
dr. Benjamín. Engu skal slegið föstu um sannleiks-
gildi frásagnarinnar, en hún er oft rifjuð upp. Sumir
hafa hana sem sannindamerki, aðrir fremur til gam-
ans.
Hitt er svo annað mál, að svo sem sjö árum eftir
hvarf síldarinnar og hrun efnahagslífsins kom til
valda ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks og hagur þjóðarinnar vænkaðist um líkt
leyti. Verðbólga, sem farið hafði úr böndum, minnk-
aði næstu árin, þótt átök á vinnumarkaði og óraun-
hæfir samningar sneru þeirri þróun við. Ríkisstjórnin
kom ró á varnar- og öryggismál og góðum áfanga var
náð í sókn þjóðarinnar í landhelgismálum. Sjö árum
frá því að fyrrnefnd ríkisstjórn tók við stefndi verð-
bólga hins vegar í áður óþekktar hæðir.
Veruleiki ekki sóttur í drauma?
Glöggir stjórnmála-, hag- og sagnfræðingar gætu
auðveldlega bent á að hin „helga regla“ um sjö ára
sveifluna væri fjarri því að vera algild um þetta
nefnda tímabil eða önnur, þótt þær vörður sem vísað
var til hafi vissulega verið til staðar. En hvers vegna
er þá verið að láta eftir sér að nefna framangreinda
speki til sögunnar? Það er gert jöfnum höndum til
gamans og uppörvunar. Á haustdögum nýliðins árs
var rækilega rætt um fimm ára „afmæli“ bankafalls-
ins, sem sumum þykir nútímalegt guðlast að kalla
ekki „hrun“, hvenær sem það ber á góma. En þótt
ósköpin fullkomnuðust hér á landi haustið 2008 eins
og annars staðar (ekki síður í löndum, þar sem engin
einkavæðing hafði átt sér stað áratuginn á undan), þá
er ljóst að hinn eiginlegi efnahagslegi jarðskjálfti
varð upp úr miðju ári 2007. Á þessu ári verða því sjö
ár frá þeim mikla kippi, þótt höggbylgjur hans næðu
ekki fórnarlömbum sínum fyrr en rúmu ári síðar.
Fróðlegt er að sjá spár þeirra, sem telja sig hafa
meira fram að færa en aðrir, þegar efnahagsmál, við-
skipti og brask eru rædd af fagmennsku. Ekki verður
séð að mjög sé vitnað til kúnna í draumi Jósefs þegar
horft er í kristallskúlurnar núna og sagt að líflegir
markaðir, rísandi fasteignaverð og umfangsmikil
verslun millistéttar að rétta úr kút séu ótvíræð góð-
ærismerki. Enda eru hindurvitni og draumar ekki
boðlegt innlegg þegar slíkir spekingar spá. En þegar
lesendur, hlustendur og allur andahópurinn, sem
fylgist í andakt með spánum, áttar sig á því, hve
margir spekingarnir koma kunnuglega fyrir, er hætt
við að tvær grímur renni á fleiri en einn. Því þegar
þeir sömu lásu í kristallskúlurnar sínar í ársbyrjun
2007 og sáu aðeins glitrandi gull þar og í spilunum
voru þeir jafnöruggir og núna. En kristallskúlurnar
reyndust úr sápu og spilin illa stokkuð eða vitlaust
gefin.
Vilji menn endilega trúa því að betri tíð með blóm í
vöndum (a.m.k. í velræktuðum löndum, þar sem hag-
inn er horfinn í hagvöxtinn) sé í augsýn gæti verið
meira hald í draumi Jósefs. Eins og nefnt var þá virt-
ist sjö ára sveiflan frá síldarhruni vera að taka sveigj-
una upp árið 1974. En það kom snemma svikkur á
sveifluna, ekki náttúrulegur síldarsvikkur, eins og sjö
árum fyrr, heldur mannlegur. Hann var afleiðing
pólitísks ráðabruggs og undiröldu sem því fylgdu.
Árangur gufaði upp og sjö ára pólitísk upplausn tók
við frá árinu 1976-2003.
Hvað er í kortunum?
Markaðir í Bandaríkjunum eru vissulega í hárri stöðu
og hækkandi um áramót. Verð á gulli, sem hafði
fimmfaldast í eftirleik kreppunnar, hefur tekið
hressilega dýfu, sem sýnir að kaupahéðnar fikra sig
Sjö er tala sem segir sex
* Evruríkin gátu ekki brugðist viðsínum vanda sjálfstætt. Þauhöfðu glutrað niður sjálfstæðri mynt
og efnahagslegu fullveldi. Erfiðleika-
löndin voru knúin til að fara eftir
hinum gamla leiðarvísi Hoovers frá
1928-1932. Þau skyldu nauðug ýta
undir eigin niðursveiflu með ríkis-
keyrðu handafli!
Reykjavíkurbréf 03.01.14