Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Qupperneq 46
Viðtal
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2014
F
C Ural er ekki þekktasta
knattspyrnufélag heims-
ins en þar spilar Sölvi
Geir Ottesen, landsliðs-
maður. Það vakti óneit-
anlega töluverða athygli þegar
Sölvi samdi við liðið en hann fékk
algjöran kóngasamning samkvæmt
frétt Ekstra Bladet í Danmörku,
einkabílstjóra, íbúð og fjölmargar
milljónir. Sölvi hafði áður verið í
Danmörku og leikið þar með stór-
liði FCK frá Kaupmannahöfn en
eftir að hafa verið frystur hjá fé-
laginu var alltaf ljóst að hann
myndi færa sig um set fyrir þetta
tímabil.
Sölvi drekkur te á kaffihúsinu
þar sem fundur okkar fer fram.
„Ég datt inn í te-menninguna eftir
að ég flutti til Rússlands. Rússar
drekka mikið te,“ segir Sölvi en
hann kann nokkuð vel við sig við
Úral-fjöllin þó fjarlægðin frá fjöl-
skyldunni sé erfið. „Lífið í Rúss-
landi er nokkuð gott. Það er nóg
að gera í fótboltanum og það er
meginástæða þess að ég fór til
liðsins. Út af fótboltanum. Ég er
þarna til að spila fótbolta, ég legg
til hliðar lífsgæði og félagslega
pakkann en í svona aðstæðum
kann ég vel við mig.“
Skype-maður mikill
Fjölskylda Sölva, Sandra Karls-
dóttir kona hans og börnin þrjú,
hefur komið sér vel fyrir í fallegri
íbúð í úthverfi borgarinnar þar
sem þjónustustigið er hátt. Fjöl-
skyldan vildi flytja heim því fimm
ára sonur Sölva er einhverfur og
þarf aðstoð í leikskóla. „Danmörk
á að heita velferðarríki en við vor-
um aldrei nógu ánægð með kerfið
þar í landi. Það má margt segja
um Ísland en kerfið hér er frábært
og hérna heima fær sonur minn þá
aðstoð sem hann þarf.“ Börn Sölva
og Söndru eru Ásta 11 ára, Alex-
ander Helgi 5 ára og Magnús Daði
3 ára. „Við einblíndum á gott
hverfi og gott svæði. Við vorum
svo heppin að finna það. Stuðn-
ingskerfið fyrir einhverfa er mjög
gott hér á landi og sérstaklega þar
sem við búum. Það var alltaf vitað
að þau ætluðu að flytja heim á
þessum tíma bara út af guttanum.
Þannig lagað hefði ekki skipt mig
neinu að vera í Tyrklandi, Grikk-
landi, Englandi, Þýskalandi eða
Rússlandi. Maður hefði alltaf verið
svolítið mikið á Skype.
Ég er eðlilega mikið á Skype því
maður hittir ekki marga, hvorki þá
sem kunna ensku eða tala íslensku.
En það er munur að vera í lands-
liðinu því þá kemur maður heim
oftar og fær að hitta sína nánustu.
Lalli (Lars Lagerbäck landsliðs-
þjálfari) leyfir okkur að hitta okk-
ar fólk á milli æfinga. En það er
erfitt þegar maður fer af klak-
anum, ég viðurkenni það.“
Flug til Yekaterinburg tekur níu
klukkutíma í þremur áföngum og
heildartími ferðalagsins er í kring-
um 17 klukkutíma. Stundum leng-
ur sem er vont fyrir bakveika
menn en Sölvi hefur glímt við
meiðsli í baki í nokkur ár. „Þeir
hjá Ural vita alveg hvernig ég er í
bakinu og ég segi þeim líka hvern-
ig ég er í bakinu. Ég þekki
skrokkinn minn það vel í dag og
veit hvenær ég þarf að hætta á
æfingum. Þeir hlusta á mig og
Aleinn í Rússlandi
SÖLVI GEIR OTTESEN, LANDSLIÐSMAÐUR Í KNATTSPYRNU, BÝR FJARRI FJÖLSKYLDU SINNI, ALEINN Í YEKATERINBURG Í RÚSSLANDI OG LEIKUR ÞAR KNATTSPYRNU MEÐ
FC URAL. FJÖLSKYLDAN HANS FLUTTI HEIM TIL ÍSLANDS OG HEFUR KOMIÐ SÉR FYRIR Í ÚTHVERFI BORGARINNAR. Á MEÐAN ER FAÐIRINN 4265 KÍLÓMETRA Í BURTU
OG ÞARF AÐ LÁTA SPRAUTA SIG 20 SINNUM Í HVERRI VIKU TIL AÐ LAGA BAKIÐ SEM HEFUR VERIÐ AÐ PLAGA HANN Í TÖLUVERÐAN TÍMA. SÖLVI SEGIR AÐ HANN HAFI
LAGT FÉLAGSLEG OG VERALDLEG GÆÐI Á HILLUNA Í SMÁSTUND EN ÞÓ KANN HANN AFSKAPLEGA VEL VIÐ SIG, ALEINN Í RÚSSLANDI.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Í SLAND
RÚSSLANDReykjavík
Moskva
Yekaterinburg
Ísland - Rússland